Nú var að birtast frétt sem fengur er að.
Vonandi.
Friðarsinninn Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ætlar að hitta friðarsinnann Condoleezu Rice í Washington á föstudag.
Ef Ingibjörg ætlar að halda snefil af virðingu sem stjórnmálamaður og ráðherra Íslands þá verður hún nú að nota tækifærið og láta Bandaríkjamenn birta yfirlýsingu þess efnis:
Að Ísland hafi nú verið tekið með formlegum hætti út af lista þeirra 30 þjóða sem studdu innrás Bandaríkjamanna og Breta í Írak vorið 2003. Jafnframt á Ingibjörg að lýsa því yfir þegar hún hittir Rice að stuðningur Íslands við innrásina hafi verið misráðinn.
Þar með verður endanlega búið með samhljóða hætti að koma í verk þessari þingsályktunartillögu sem Samfylking, Vinstri Græn og Frjálsynd lögðu ítrekað fram á Alþingi á síðasta kjörtímabili, síðast fyrir réttu ári.
Með táknrænum hætti til að sýna að þingflokkar þessara þriggja flokka stæðu sameinaðir að baki tillögunni þá voru þingflokksformenn flokkanna einir látnir standa sem flutningsmenn. Ingibjörg Sólrún var og er formaður Samfylkingar. Hún var og er í þingflokki Samfylkingar.
Hún á ekki og má ekki komast undan því að efna þetta.
Nóg er nú svikið samt síðan Samfylkingin komst í ríkisstjórn.
Sjá annars pistil minn föstudaginn langa síðastliðinn.
þriðjudagur, 8. apríl 2008
Vígfús og Vígreif í Vosutúni?
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Hvernig er hægt að troða því inn undir þykkar höfuðskeljar ykkar sem hæst baula um að taka beri Ísland af lista yfir stuðningsríki innrásarinnar í Írak, að ÞAÐ ER EKKI HÆGT!
Ætlum við að standa fyrir stórkostlegum sögufölsunum? Það fær ekkert breytt þeirri sagnfræðilegu staðreynd að Ísland var eitt þeirra ríkja sem lýstu yfir stuðningi við innrásina í Írak. Það að krefjast þess að Ísland sé ,,tekið af listanum" er í besta falli óvitaskapur en í versta falli pólitískur blekkingaleikur af verstu sort. Um hvort er að ræða í þínu tilfelli?
Það er hins vegar hægt að krefjast þess af ISG og íslenskum stjórnvöldum að þau lýsi því yfir að stuðningurinn hafi verið misráðinn eða að Ísland styðji ekki núverandi hernám, en það er allt annað mál. Ekki myndi ég hvetja til þess en þið megið gera það mín vegna. En í almáttugs bænum hættu þessu kjaftæði um að ,,taka Ísland af listanum".
Mér sýnist þetta velta á því hvaða skilning fólk leggur í að "taka út af listanum". Auðvitað geri ég mér grein fyrir hinu augljósa að sögulegum staðreyndum verður ekki breytt.
En með því að segja að það eigi að "taka okkur af listanum" þá túlka ég það þannig að við afturköllum með skýrum og afgerandi hætti stuðning okkar við innrásina.
Ég fæ ekki séð annað en að sú stuðningsyfirlýsing standi enn óbreytt á þeim gögnum sem hægt er að skoða til dæmis á heimasíðu Hvíta hússins í USA.
Skrifa ummæli