laugardagur, 29. mars 2008

Geert Wilders er ekki einn

Nokkrar umræður hafa spunnist á silfurvef Egils Helgasonar hér á Eyjunni vegna frumsýningar á kvikmyndinni FITNA. Ég hef aðeins blandað mér inn í þetta. Birti hér síðasta innlegg mitt fyrir neðan, en sjá má orðræður í heild sinni með því að smella hér.

En hér mitt nýjasta innlegg (með örlitlum breytingum):

-------------------------------

Ástæður styrjalda eru yfirleitt flóknar.

Nú er spurning hvort ekki sjóði upp úr í Evrópu meðal annars vegna framgangs íslam?

Egill afskrifar Wilders sem vitleysing. Morgunblaðið í sínum pólitíska rétttrúnaði kallar hann “hægri öfgamann” í frétt.

Nú veit ég lítið um Wilders þennan. Veitti honum ekki athygli fyrr en ég tók eftir miklum fréttum af FITNA myndinni nú í vetur, víða í evrópskum fjölmiðlum. En ég veit ekki betur en hann sé flokksbróðir Ayaan Hirsi Ali sem mætti í Kiljuna hjá honum Agli í vetur og mér sýndist Egill vera mjög hrifinn af. Ef Wilders er vitleysingur þá býr Hirsi Ali á næsta bæ við hliðina á honum.

Það er að mínu mati ekki rétt að afskrifa mynd Wilders sem einangrað útspil hjá einhverjum “vitleysing”. Bara viðbrögðin ein gegn myndinni gera það að verkum að allt hugsandi fólk hlýtur að staldra við. Af hverju eru viðbrögðin svona ofsafengin gegn þessari mynd sem sýnir í raun ekkert annað en það sem við höfum séð áður? Einhver rétttrúnaðarpésinn skrifar hér undir dulnefni fyrir ofan að margar svona myndir hafi verið gerðar áður. Má vera - ég veit það ekki. En þessi er sérstök, að minnsta kosti í augum þeirra sem fylgjast með og ástæður þess hef ég tilgreint.

Nú hefur íslamistum enn eina ferðina tekist að hefta málfrelsið. Vegna hótana hefur myndin verið fjarlægð af myndbandaveitunni þar sem hún birtist fyrst. Stjórnmálamenn í virtum lýðræðislöndum kringum okkur hafa skjálfað og nötrað á beinunum af hræðslu. Við hvað?

Það fer fram mjög mikil umræða um framgang íslam í Evrópu. Heilu skipsfarmarnir af bókum eru gefnir út sem fjalla um íslam og kristni. Og þær eru lesnar af fólki, því margir hafa af þessu áhyggjur. Fólk sem áður hefur ekki velt þessu mikið fyrir sér (eins og sá sem hér skrifar), er mjög hugsi yfir þessu öllu saman.

Margir halda því fram að íslam sé í stórsókn. Markmiðið sé í raun að brjóta lýðræðisríki Evrópu undir þessi trúarbrögð og það sem þeim fylgir. Þetta er gert með blöndu af innflutningi fólks sem fjölgar sér mjög hratt og miklu hraðar en þeim sem fyrir eru, trúboði, hryðjuverkum, skoðanakúgun og kannski ekki síst með því að beita fyrir sig nytsömum sakleysingjum úr hópi þeirra vestrænu sem fyrir eru í þessum löndum. Íslömsku öflin hafa næga þolinmæði því þau vita að tíminn vinnur með þeim eins og staðan er í dag. Og vinstri öflin í vestrænum ríkjum taka þessu fagnandi - umfaðma hinn íslamska fasisma. Sýna brjálæðingunum “umburðarlyndi og skilning” og úthúða þeim sem dirfast að spyrja spurninga. Reyna jafnvel að setja okkur í flokk með nasistum eins og dæmi hér á Íslandi sanna.

Evrópusambandið er í tómu rugli og nær engan veginn að hamla gegn þessu - löndin innan ESB eru hjálparvana í þessari þróun.

Eitt af fyrstu fórnarlömbunum í íslamsvæðingu Evrópu eru gildi sem við höfum talið sjálfsögð. Við getum talað um málfrelsi og lýðræði, kvenréttindi og önnur almenn mannréttindi. Trúfrelsi og fleira. Og við getum spurt okkur hvort við kærum okkur um þá þróun sem er í gangi?

Er það ásættanlegt að staðan sé þannig í dag til að mynda í Danmörku, að þar sé fjölmennt lögreglulið starfandi alla daga árið um kring í því að vakta múslímana með hlerunum á símum og tölvupóstum, að fylgjast með vefsíðum og öðrum samskiptum, að elta þá um borgir og bæi. Allt vegna undirliggjandi ótta sem nagar samfélagið innan frá og eyðir því að lokum? Þetta er svona í Danmörku - ég hef séð það með eigin augum.

Er Wilders að gera nokkuð annað en að reyna að vekja okkur til umhugsunar? Að vara Evrópu við?

Hann er ekki einn.

------------------

PS. Enn er hægt er að sjá FITNA hér á Eyjunni.

mánudagur, 24. mars 2008

Lúðvík og fullveldið

Páskahelginni eyddi ég niðursokkinn í að grúska í sagnfræði tengdri sjávarútvegi.

Í leit að upplýsingum á netinu datt ég niður á síðu á vef BBC þar sem geymdar eru gamlar kvikmyndaupptökur úr sögu bresks sjávarútvegs. Fiskveiðistjórnun og pólitík Evrópusambandsins, sem ýmsir Íslendingar þykjast sjá í dýrðarhillingum í dag, hefur lagt þessa grein bæði í Bretlandi og Skotlandi í algerar rústir svo vart stendur steinn yfir steini.

Smellið hér til að skoða þessa síðu.

Ég mæli sérstaklega með viðtalinu við "the communist fishing minister Ludvig Josephsson".

Það er hér:

Iceland and Cod - Panorama (1968/colour/sound)Listen to the views of industry and government officials on the Cod War. (4 minutes 12 seconds ©BBC)

Lúðvík er stórkostlegur þegar hann svarar spurningum forviða fréttamanns í upphafi myndskeiðsins um það hvernig Íslendingar treysti sér til að lifa sem fullvalda þjóð í þessu landi.

Þeir aðilar sem nú róa öllum árum að því að koma okkur inn í Evrópusambandið, undir því yfirskini að í því felist lausn á aðsteðjandi vanda íslensku þjóðarinnar, ættu sérstaklega að hlusta vandlega á þetta viðtal.

Síðan ættu þeir að loka sig af í einrúmi - og skammast sín.

föstudagur, 21. mars 2008

Afsökunarbeiðni til þjóðarinnar

Fimm ár eru liðin frá upphafi árásinnar á Írak. Á fimm árum höfum við orðið vitni að mannskæðri styrjöld sem frá upphafi var byggð á lygum. Harmleikurinn er í raun ólýsanlegur - einn sá versti sem heimsbyggðin hefur orðið vitni að.

Við í Frjálsynda flokknum höfum alltaf mótmælt þessum stríðsrekstri harðlega. Töldum og teljum enn að hann hafi verið mikil mistök. Strax kvöldið sem innrásin hófst þann 19. mars 2003, sendum við út yfirlýsingu.

Norska stórblaðið Aftenposten er með á vef sínum áhugaverða margmiðlunarsýningu um Íraksstríðið þar sem farið er yfir tímaskeið styrjaldarinnar, sýnt er kort yfir þau lönd sem hafa tekið þátt í stríðinu og á hvaða tímabili, þarna eru tölur yfir fallna, farið er yfir uppl0gnar forsendur styrjaldarinnar, og sýndar forsíður dagblaða heimsins við upphaf stríðsins.

Smellið hér til að skoða.

Þarna kemur meðal annars fram að Ísland er meðal þeirra þjóða sem hafa haft hermenn í Írak. Við erum með þeim fyrstu sem tóku þátt. Dettum inn strax í maí árið 2003. "Mai 2003 sendte Island to soldater", skrifar Aftenposten. Við erum með viðveru þarna til október 2007. "I oktober 2007 ble den siste, presseoffiseren Herdis Sigurgrimsdottir, hentet hjem", bætir Aftenposten við.

Og við erum enn á "lista hinna vígfúsu þjóða". Að minnsta kosti hefur ekki borist nein opinber yfirlýsing um að svo sé ekki. Hvorki frá ríkisstjórnum Íslands né Bandaríkjanna. Ingibjörg Sólrún varð í fyrrahaust uppvís að því að hafa reynt að blekkja þjóðina í þessum efnum. Sjá hér og svo þessa frétt á Eyjunni 13. september 2007.

Við sem vorum í stjórnarandstöðu á síðasta kjörtímabili reyndum ítrekað að ná fram til samþykktar þingsályktunartillögu sem hljóðaði svo:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að taka Ísland með formlegum hætti út af lista þeirra 30 þjóða sem studdu innrás Bandaríkjamanna og Breta í Írak vorið 2003 og lýsir því yfir að stuðningurinn við innrásina hafi verið misráðinn.“

Flutningsmenn voru ég, Ögmundur Jónasson (VG) og Össur Skarphéðinsson (Samfylkingu). Nú er það svo að Samfylking er búin að vera í ríkisstjórn í tæpt ár, og hefur meira að segja utanríkisráðuneytið.

Ekkert ber á því að það standi til að efna þessa þingsályktunartillögu sem hlaut þó að vera eitt af kosningaloforðum Samfylkingar. Þvert á móti - sá grunur læðist að manni að Samfylkingin hafi í raun notfært sér Íraksstríðið og hörmungarnar þar með ógeðslegum hætti til að að veiða atkvæði.

Friðelskandi Íslendingar voru réttilega með nagandi samviskubit yfir því að nafn þeirra lands hefði verið lagt við óhæfuverkin í Írak, án þess að það hefði verið borið undir þjóð og þing. Með því að standa að ofangreindri þingsályktun var Samfylkingin með kaldrifjuðum leikaraskap að spila á þessar tilfinningar almennings í landinu.

Sumir kalla slíkan leik lýðskrum.

"...mig kennir til í hjartanu yfir því að vera partur af Alþingi sem ekki getur losað sig við þennan svarta blett", vældi Össur með krókódílatárum þegar hann mælti fyrir tillögunni nú síðast í fyrra.

Orðin sem koma mér í huga þegar ég rifja þetta upp og minnist annara orða Össurar í ræðustól þingsins nú síðast þann 1. mars í fyrra eru hugtök sem eiga ekki erindi fyrir sjónir almennings á sjálfum píslardegi frelsarans, föstudeginum langa annó 2008.

En ég tek eftir því að Össur bloggar ekki um Írak.

Blóðvöllurinn í Írak var vígvöllur Samfylkingar í aðdraganda Alþingiskosninga.

Mér líður illa í dag, vegna þess að hafa verið með Samfylkingunni á ofangreindri þingsályktunartillögu. Ég sé nú að ég var dreginn inn í ljótan leik lyga, hræsni og blekkinga. Þessi leikur fór fram í fundarsal Alþingis. Leikstjórar? Össur Skarphéðinsson og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.

Föstudagurinn langi er dagur yfirbóta.

Ég bið þjóðina afsökunar - ég var blekktur af Samfylkingunni.

föstudagur, 14. mars 2008

F**k you "Fagra Ísland"















Fréttaskeyti berast úr Helguvík og enn eykst niðurlæging Samfylkingar og umhverfisráðherra flokksins.

Skilaboð Sjálfstæðisflokksins til systurflokksins í ríkisstjórn eru skýr þegar umhverfisstefna þess síðarnefnda er annars vegar.

Vísa í mynd hér fyrir ofan, og næstu færslu hér fyrir neðan...

miðvikudagur, 12. mars 2008

Heimilisofbeldi á stjórnarheimilinu
















Niðurlæging umhverfisráðuneytisins og Þórunnar Sveinbjarnardóttur er alger. Sveitarstjórnir Reykjanesbæjar og Garðs gáfu grænt ljós á framkvæmdaleyfi fyrir nýtt álver Norðuráls í Helguvík.

Þetta þurfti svo sem ekki að koma neinum á óvart, og allra síst umhverfisráðherra. Það hefur verið ljóst hvert stefndi í Helguvík í langan tíma og stjórnendur Norðuráls hafa ekki farið leynt með það. Ekki heldur sveitarstjórnarfólk á Suðurnesjum eða sumir af þingmönnum Suðurkjördæmis.

Hér má ekki gleyma þætti Sjálfstæðismanna sem ráða ferðinni. Árni Mathiesen fjármálaráðherra og félagi Þórunnar í ríkisstjórninni er þingmaður kjördæmisins og aðstoðarmaður hans er einn af innstu koppum í búri Íhaldsins í Reykjanesbæ. Þar ræður Íhaldið lögum og lofum í bæjarstjórn. Það er alger bábilja að ætla sér að það sem gerðist í bæjarstjórn Reykjanesbæjar nú síðdegis hafi verið eitthvað sem ekki hefur þegar hlotið blessanir í bak og fyrir á æðstu stöðum innan Sjálfstæðisflokkins.

Þórunn hlýtur að hafa mjög lélegt pólitískt nef hafi hún ekki áttað sig á stöðunni. Hún hefur sofið á verðinum og látið svína á sér í þessu máli. Setið með hendur í skauti eins og á myndinni sem fylgir hér með?

Að koma nú og lýsa furðu er í besta falli hjákátlegt.

Maður hlýtur að velta fyrir sér hvort Þórunn ætli hreinlega að láta bjóða sér þetta? Hvað þá Samfylkingin með sitt "Fagra Ísland"?

Trúverðugleiki umhverfisráðherra er í stórhættu og hið sama er að segja um kosningastefnu Samfylkingar í umhverfis- og stóriðjumálum frá því í fyrravor.

Í dag urðum við vitni að ofbeldi á stórnarheimilinu. Haganlega tímasett kjaftshögg. Þingið er að fara í páskafrí á morgun þannig að vart verður mikið rifist um þetta þar.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur reist níðstöng yfir Samfylkingunni.

"Fagra Ísland" hvað?

Álið er málið.

Samfylkingar - Móri brýst inn að næturþeli















Brúnastaða - bóndinn hefur vart vaknað með hýrri brá í morgun.

Nú hefur Ingibjörg Sólrún enn eina ferðina magnað upp hann Móra sinn. Í þetta sinn sent hann í skjóli nætur til að trylla búsmalann í fjósi og fjárhúsi Framsóknar.

Móri æsir til uppreisnar. Hann hvetur búsmalann til að gera hallarbyltingu og hrekja bóndann og búalið hans af óðalinu. Helst með skömm - sennilegast með pólitísku lífláti.

Móri hvíslaði lævíslega í nótt að nú beri búfénaðinum að hlýða kalli Samfylkingarinnar - hins eina sanna boðbera heiðarlegra stjórnmála þar sem heill íslensku þjóðarinnar og heilagur réttur hennar til að ráða eigin málum er ávallt í fyrirrúmi.

"Ilmurinn af töðunni - þessari grænu og góðu - hann berst frá Evrópu. En til að njóta hennar þá verðið þið að gangast við nasamúlnum frá frú minni, flokki og Evrópusambandinu", sagði Móri.

Nú reynir á hvort Framsóknarbýlið hefur á að skipa heilbrigðum bústofni eða samansafni af broddskitukálfum og riðugemsum, sem láta glepjast af honum Samfylkingar - Móra og boðskap þess trúfélags sem gerir hann út.

En fyrst ætti Brúnastaðabóndinn að ganga til verks og kveða Vesturgötufjandann niður.

Flokksformaður sem ætlar að njóta virðingar, getur ekki búið við að svona skrattakollar sem eru ráðherrar Samfylkingar á daginn noti næturnar til að espa opinberlega til hnífaslagsmála og byltingar í hans elskaða Framsóknarflokki.

Ég veit að Guðni ræður við að kveða niður Samfylkingar - Móra.

þriðjudagur, 11. mars 2008

Af tvennum sögum af Sólrúnu












Nú ætla ég aðeins að ræða tvennt sem ég sá og heyrði til afreka Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur í dag.

1. Sendiherrar:
Ég veit ekki hvort það pirraði fleiri en mig að sjá viðtal við utanríkisráðherra Samfylkingarinnar í sjö fréttum sjónvarps RUV. Smellið hér til að sjá það.
Voðalega er það ódýr skýring að Ingibjörg hafi viljað fjölga konum í hópi sendiherra og því hafi verið gripið til þess að skipa kvenkyns fyrrverandi ráðherra og þingmann Sjálfstæðisflokksins í sendiherrastöðu í Kanada. Með þessu er Ingibjörg Sólrún að sýna konum sem þegar starfa í utanríkisþjónustunni fádæma lítilsvirðingu. Hún er að koma þeim skilaboðum á framfæri að þrátt fyrir að þær séu vel menntaðar með áralanga reynslu í þjónustu íslensku þjóðarinnar á alþjóðavettvangi, þá séu þær svo vanhæfar sem diplómatar að fyrrverandi alþingiskonur á Íslandi séu þeim miklu fremri sem sendiherraefni, svo framarlega sem þær hafi rétt flokksskírteini.

Ekki eru þetta góð skilaboð til ungra kvenna sem vilja hasla sér völl í utanríkisþjónustunni og líklega ekki karla heldur. Ég á reyndar bágt með að trúa öðru en að það hljóti að standa utanríkisþjónustunni fyrir þrifum hvernig stjórnmálaflokkarnir ítrekað misnota sendiherrastöðurnar með þessum hætti. Sendiráðin hafa undanfarin ár verið greinilegur hluti af samtryggingakerfi innan Sjálfstæðisflokksins. Í dag sáum við að Samfylkingin er hluti af þessu kerfi. Kom kannski ekki á óvart - þetta blasti svo sem við þegar Guðmundur Árni Stefánsson var dubbaður upp í að verða sendiherra í Stokkhólmi fyrir nokkrum misserum síðan, eftir frækilega framgöngu í eftirlaunamálum ráðherra.

Annað sem pirraði mig í þessu viðtali var að Ingibjörg Sólrún var ekki að koma heiðarlega fram. Það má segja að hún hafi verið að blekkja þjóðina. Raunveruleg ástæða þess að Sigríður Anna Þórðardóttir var skipuð í þessa stöðu er ekki að Ingibjörg hafi gert það vegna þess að hún kaus svo "vegna þess að hún hafði fundið hæfa konu". Ástæðan er einfaldlega sú að Sjálfstæðisflokkurinn "á" sendiherrann í Kanada. Markús Örn hættir - Sigríður Anna fær. Ingibjörg Sólrún hefur í raun ekkert með það að gera. Henni kemur þetta ekki við. Hún hefði bara átt að segja það hreint út.

En - Samfylkingin með formanni hennar tekur þátt í þessum gamla hlutaskiptaleik stjórnmálaflokkanna, með þeim leiksýningum sem fylgja.

Vafalaust undir kjörorðinu; "Fólk er fífl".

2. Aðild að ESB:
Í þessari frétt sé ég haft eftir formanni Samfylkingar að Evrópusambandsaðild verði kosningamálið í næstu Alþingiskosningum. Samkvæmt áætlun er það ekki fyrr en eftir rúm þrjú ár, - í maí 2011. Gefum okkur að eftir þær þingkosningar náist þingmeirihluti fyrir því að fara í aðildarviðræður. Það mun taka tíma að komast að þeirri niðurstöðu, fara svo í viðræður, ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu um samninginn, breyta stjórnarskránni, ganga aftur til þingkosninga og áfram má telja.

Miðað við þetta þá mætti telja undur að Ísland yrði aðili að ESB fyrir árið 2015 - ef þá nokkurn tímann. Það er rosalega langt til 2015, og augljóst að ESB aðild er engin lausn á þeim vanda sem nú steðjar að efnahagslífi þjóðarinnar.

Ekki nema Ingibjörg Sólrún vilji ganga til alþingiskosninga fyrr og þannig láta sverfa til stáls í þessum málum og ná fram niðurstöðu um það hvert þjóðin vilji stefna?

Kosningar í vor eða sumar?

Ýsa á Ísafjörð!


Mér líst vel á að uppsjávarfiskarannsóknir Hafrannsóknarstofnunar fari austur á firði. Sjá þessa frétt. Það ætti að vera búið að gera þetta fyrir löngu. Síld, loðna, k0lmunni og makríll - rannsóknir á þessum fiskistofnum eiga heima fyrir austan.

En við eigum að ganga lengra. Sömuleiðis á að flytja botnfiskrannsóknirnar vestur á Ísafjörð. Karfi, ufsi, þorskur, ýsa - á Ísafjörð!

Á Akureyri er síðan rétt að staðsetja rannsóknir á skelfisk, krabbadýrum og öðrum hryggleysingjum. Einnig rannsóknir á sjávarspendýrum - selum og hvölum. Haffræðirannsóknir (straumar, hiti og selta) væru líka fínar í Eyjafirðinum.

Það er bara tómt rugl að stunda hafrannsóknir við Ísland frá Skúlagötu 4 í Reykjavík.

Koma svo, Einar Kristinn - þetta hlýtur þú að geta gert!

fimmtudagur, 6. mars 2008

Þórður Kakali og Evrópusambandið


Áfram halda hersveitir íslenskra ESB sinna í leiðangri sínum til að koma íslensku þjóðinni undir bláfánann í Brussel. Enda hafa þeir aldrei haft betri skilyrði til starfa sinna en nú, þegar helsti fylgisflokkur fullveldisafsalsins er kominn í ríkisstjórn.

Þjóðin virðist stöðugt veikjast fyrir áróðrinum. Kannski ekki að undra. Það er að harðna á dalnum og þá verður fólk móttækilegra. Við höfum klúðrað okkar dýrmætustu náttúruauðlind sem eru fiskistofnarnir. Útrásin svokallaða var ekkert annað en froða. Það stefnir óðfluga í djúpa efnahagskreppu. Sterk öfl meðal þjóðarinnar liggja hundflöt fyrir svokallaðri alþjóðavæðingu. Vilja helst selja útlenskum gróðaöflum bæði landið og miðin. Litið er gagnrýni laust til valdboðsins frá Brussel. Það er sótt að því sem gerir okkur að þjóð - bæði menningu og tungu. Hér er helst hæðst að þeim sem viðurkenna að þeim þyki vænt um þjóð sína og arfleifð.

Ég var að lesa bókina Þórður Kakali eftir Ásgeir Jakobsson. Ákaflega fín bók þar sem Ásgeir fer yfir sögu eins merkasta Íslendings sem uppi var á öld Sturlunga - og að mínu mati eins merkilegasta Íslendings fyrr og síðar. Ásgeir leyfir sér að leggja út af sögunni, hann fer á flug og ritar sínar eigin hugleiðingar. Í lok bókarinnar er kafli með texta Ásgeirs "Grunnurinn var aldrei lagður og því féll húsið". Þar fjallar Ásgeir um mat sitt á ástæðunum fyrir því að við misstum fullveldi okkar undir Noregskonung árið 1262. Það kostaði margra alda ófrelsi. Mig langar að vitna í hluta af þessu - mér finnst þetta á vissan hátt eiga skírskotun til samtímans:

"Íslenska þjóðin bjó ekki lengur við skóga og kafgresi landnámsaldar, heldur kólnandi tíðarfar og ofbeitt land, nagað ofan í rót af sauðfé og hrossum. Sauðfjárbúskapur þjóðarinnar var geysilega mikill, þar sem sauðfjárafurðir voru eini gjaldmiðillinn til kaupa á öllum varningi, og ekki síður var hrossabúskapur mikill, það þurfti ógrynni hrossa til hinna miklu liðflutninga, sem fylgdu öldinni. Harðæri voru farin að þjaka þjóðina með falli fólks og búfénaðar og þegar framleiðsla þjóðarinnar minnkaði, og hún gerðist fátækari að kaupeyri, minnkaði áhugi hinna erlendu kaupmanna fyrir siglingum til landsins, og þær voru farnar að strjálast, og því brá orðið fyrir ekki sjaldan í annálum: "Ekki kom skip af Noregi það sumar".


xxx


"Þegar nú allt það er tekið saman, sem rakið hefur verið um ástandið á síðari áratugum 13du aldar, hlaut sú spurning að verða áleitin með þjóðinni, hversu miklu hún ætti að kosta til að halda í eigið stjórnkerfi, sem þjóðinni hafði reynst illa, þegar ekki var annað eftir að sjálfstæði þjóðarinnar. Konungur frændþjóðar, sem tengslin höfðu aldrei verið slitin við, og réði fyrir allri verzlun og siglingum, bauðst nú til að friða landið og tryggja árlegar siglingar til þess gegn skattgjaldi og því, að þjóðin játaði hann formlega sem sinn konung. Var þetta ekki álitlegur kostur svo sem málum þjóðarinnar var komið? Urðu ekki bændur að bera þunga skatta í herleiðöngrum aldarinnar? Var ekki meira vit í að greiða skatt þeim, sem gat friðað landið, svo að bændur fengju frið við búsýslu sína og þyrftu ekki að sæta sífelldum herkvaðningum til herfara með stórum hrakningum? Höfðu svo ekki landsmenn búið við þennan kóng yfir sér í nær hálfa öld og reyndar þeirra forfeður við Noregskonunga alla tíð, meira eða minna? Hver kristnaði þjóðina? Hvaðan komu lögin? Höfðu ekki margir Íslendingar svarið þessum konungi eiða sem hirðmenn hans?"


xxx


Fullveldisbaráttan hin síðari er hafin - Ísland þúsund ár!


miðvikudagur, 5. mars 2008

Anders Fogh sem forseta!

Mig grunar að þó nokkuð mikið sé til í þessari frétt sem ég las á Eyjunni í morgun.

Hinn frjálslyndi Anders Fogh stefnir markvisst á að verða forseti Evrópusambandsins. Við skulum gera ráð fyrir að honum takist það.

Tony Blair Samfylkingarbróðir er ekki vinsæll maður í Evrópu. Fogh er hins vegar með hreinni skjöld. Hann hefur sýnt að í honum býr leiðtogi, hæfur til að ná hærra en að vera forsætisráðherra Danmerkur.

Hann veit mæta vel að það er mikilvægt að sýna að hann sé í góðu sambandi við Bandaríkin. För dönsku forsætisráðherrahjónanna á fund bandarísku forsetahjónanna nú um helgina, var annað og meira en kurteisisheimsókn.

Ég hef ekki farið leynt með þá skoðun mína að ég tel Anders Fogh Rasmussen með merkari stjórnmálamönnum. Hann er í mjög miklu uppáhaldi hjá mér.

Það væru góð tíðindi ef hann yrði forseti Evrópusambandsins.

þriðjudagur, 4. mars 2008

Tvíræðni í tali borgarfulltrúa?


Það hefur verið áhugavert að fylgjast með borgarstjórnarfundi í dag og í kvöld.

Svona í ljósi liðinnar umræðu undanfarinna vikna velti ég því fyrir mér hvort minnihlutinn hafi tekið sig saman um að nota þá taktík að reyna að grafa undan Ólafi F. Magnússyni með lævísum hætti þar sem með vandlegu orðavali og gjörðum er dylgjað um borgarstjórann? Að hann gangi ekki á öllum stimplum, - eins og við sögðum á sjónum í gamla daga.

Lítum á nokkur dæmi:

"Borgarstjóri rökræðir við sjálfan sig", segir Dagur (Samfylking).

"Lifir í sýndarveruleika - keisarinn ekki í neinum fötum", segir Svandís (Vinstri græn).

"Borgarstjóri ekki í tengslum við raunveruleikann" heyrði ég Sigrúnu Elsu Smáradóttir (Samfylking) segja í ræðustól áðan þegar ég hlustaði á beina útsendingu úr ráðhúsinu á netinu.

Fyrir þetta uppskar Sigrún Elsa áminningu, frá fundarstjóra Hönnu Birnu Kristjánsdóttir forseta borgarstjórnar.

Fyrr í dag lagði Óskar Bergsson (Framsókn) sjálfsagðar fyrirspurnir fyrir borgarstjóra. Ólafur Friðrik neitaði að svara borgarfulltrúanum. Borgarstjórinn sagði víst í staðinn eitthvað um að Óskar Bergsson sé smánarblettur á borgarstjórn Reykjavíkur. Að minnsta kosti fæ ég ekki séð annað á þessari frétt DV.

Er ekki fáheyrt að borgarstjóri afgreiði fyrirspurn frá kjörnum fulltrúa með svona skæting?

Hanna Birna sá víst enga ástæðu til að ávíta borgarstjóra fyrir svar hans til borgarfulltrúa Framsóknarflokksins. Hún stökk hins vegar á bjölluna um leið og fulltrúi minnihlutans nefndi hvort borgarstjóri væri í tengslum við raunveruleikann í sambandi við útfærslur í leikskólamálum.


(...meira ruglið).

Myndband: Vote Obama!

Jæja, í dag ræðst vonandi hvort Barack Obama takist að vinna tilnefningu demókrataflokksins í forsetaframboð í Bandaríkjunum.

Það er áhugavert að fylgjast með hvernig internetið fær sífellt meira vægi í kosningabaráttum vestanhafs. Þetta er þróun sem á eftir að halda áfram. Netið með alla sína margmiðlun er fjölmiðill framtíðarinnar þegar pólitík er annars vegar.

Um helgina benti ég á myndband þar sem kvikmyndaleikarinn Jack Nicholson lýsti yfir stuðningi við Hillary Clinton. Þar voru notuð stutt myndskeið úr bíómyndum sem Jack hefur leikið í gegnum tíðina. Sjá hér fyrir neðan:



Nú hefur borist svar úr herbúðum Barack Obama. Og enn er sótt í smiðju bíómynda sem Jack Nicholson hefur leikið í. Í þetta sinn viðurkennir leikarinn þó ekki auglýsinguna í lokin:



ÉG vona að Barack Obama vinni.

mánudagur, 3. mars 2008

Ísland á að draga Noreg inn í ESB


Það er augljóst að nú er uppi mikill áróður fyrir því að framtíðarfrelsun íslensku þjóðarinnar felist í því að ganga í Evrópusambandið.

Samfylkingin er sest í ríkisstjórn með veikgeðja Sjálfstæðisflokki. Við sjáum að Samfylkingin lætur ekkert tækifæri ónotað til að reka áróður sinn fyrir því að Ísland gangist Brussel á hönd. Það er smám saman verið að tomma þjóðinni í þessa átt, þó ríkisstjórnarsáttmálinn kveði á um að ekki verði sótt um ESB aðild á kjörtímabilinu.

Geir H. Haarde reynir að ítreka þetta á opinberum vettvangi úti í Evrópu og maður heyrir hæðnishlátrasköllin glymja úr herbúðum Samfylkingar í hvert sinn sem hann tjáir sig opinberlega. Einn af húskörlum Ingibjargar Sólrúnar sem jafnframt er varaformaður utanríkismálanefndar þingsins hleypur strax í vinsælan spjallþátt og ítrekar draum flokks síns um að færa Ísland undir Evrópufánann.

Samfylkingin ber enga virðingu fyrir forystu Sjálfstæðisflokksins.

Frá ESB berast reglulega þau tíðindi að Ísland sé hjartanlega velkomið í bandalagið. Ég held að þetta snúist ekki bara um Ísland. Suður í Brussel er þeim nokkuð slétt sama um þessa eyju hér norður í Ballarhafi sem telur bara 300.000 manns og stendur veikt efnahagslega séð. Í Brussel eru menn að hugsa um Noreg. Það er miklu fjölmennara land með geysisterkan efnahag. Háþróað þjóðfélag með góðum mannauð sem býr yfir miklum landkostum og náttúrauðlindum. Það er bara einn hængur á. Skoðanakannanir sýna að meirihluti Norðmanna er andvígur aðild að ESB.

Norska þjóðin segir NEI!

Þá er að finna leiðir til að breyta þessu. Það má gera með því að lokka Ísland inn í ESB á undan Noregi. Þá væru Norðmenn eina Norðurlandaþjóðin sem enn yrði fyrir utan. Í Brussel vona menn að við slíkar aðstæður myndi afstaða Norðmanna breytast úr meirihluta NEI í meirihluta JÁ.

Við sjáum þessa afstöðu skýrt í þessu viðtali sænska útvarpsins við Sven-Olof Petersson sendiherra Svíþjóðar hjá ESB. Hann segir það hreint út að hann telji að aðild Íslands að ESB muni leiða til þess að Noregur dragist inn líka.

"Norskt EU-motstånd kan vändas av Island"

Sænski sendiherrann saknar þess að hafa ekki liðsinni Norðmanna innan ESB. Hann minnist ekki á að Ísland geti veitt neitt fulltingi innan sambandsins.

Í þessu samhengi eru Íslendingar ekkert annað en nytsamir sakleysingjar.

Það á að nota okkur til að góma Norðmennina.

----------

(PS: Myndina sem fylgir fann ég áðan á síðu þeirri á Moggablogginu sem Egill Helgason benti á fyrr í dag. Vonandi sakar ekki að ég hafi fengið hana lánaða).

sunnudagur, 2. mars 2008

Ragnarakaræða Ólafs Ragnars









Það fór hálfgerð ónotakennd um mig þegar orðið "fæðuöryggi" glumdi hátt fyrr í dag frá gylltum Súlnasal Bændahallarinnar við Hagatorg í Reykjavík.

Skildi ég skilaboðin rétt þá er það eitt helsta forgangsverkefni íslensku þjóðarinnar nú að hún viðurkenni í reynd mikilvægi þess að íslenskur landbúnaður verði á hverjum tíma til þess fallinn að brauðfæða þjóðina.

Annars eigum við á hættu að falla úr hor.

Einhvern veginn var undirliggjandi í þessu öllu að ef ekki eigi svona illa að fara fyrir þjóðinni, - þá sé henni best að gangast undir "góða" búvörsamninga við bændur. Þá sé framtíðin tryggð.

Forseti lýðveldisins hélt ræðu við setningu búnaðarþings og hún var greinilega á einhverjum svona samningsnótum. "Sáttmáli um fæðuöryggi Íslendinga" er yfirskrift ræðuhandritsins. Lesið hana endilega, þetta er mikil lexía í dómsdagsspám. Mér varð ekki um sel þegar ég renndi yfir þetta. Mér sýnist að formaður Bændasamtakanna hafi talað á svipuðum nótum og forseti lýðveldisins. Kannski fluttu báðir sömu ræðuna?

Þessi ræðuhöld hljóma bara nokkrum dögum eftir að Norðmenn opna frægeymsluna miklu á Svalbarða.

Eru Ragnarök í nánd? Eru himnarnir að hrynja ofan í hausana á okkur?

Hver veit?

Reyndar fór ég nú að hugsa sem svo að ef einhver meiriháttar óáran skellur á úti í heimi, svo sem stórstyrjaldir, þá verði þess kannski skammt að bíða að dragi mjög úr flutningi á eldsneyti hingað til lands. Sennilega einnig varahlutum, tækjum og tólum. Íslenskur landbúnaður er einn sá tæknivæddasti í heiminum í dag. Hér höfum við djöflast um á traktorum lengur en elstu menn muna. Án véla og olíu gætu menn ekki einu sinni heyjað í skepnurnar. Að minnsta kosti ekki að því marki að dygði til að forða okkur frá stórkostlegum afföllum á búfé fyrsta veturinn ef virkilega illa færi.

Ef tryggja á matvælaöryggi á þessum forsendum þá legg ég til að byrjað verði á því að ganga svo til verks að ávallt séu til í landinu miklar birgðir af olíuvörum, og stórir lagerar af varahlutum og öllum öðrum tæknilegum aðföngum sem þarf í dag til að reka venjulegt íslenskt bú.

Forsetinn vitnaði í spár um að heimsmarkaðsverð á matvöru eigi eftir að tvöfaldast á næstunni. Hann gat upplýst þjóðina um að Kínverjar (og þar eru margir munnar að metta) hafi leitað eftir því að kaupa íslenskar landbúnaðarafurðir og kannski þeir muni bjóða bændum betur en íslenskir skattborgarar og neytendur gera í dag!

"Og hvað gera bændur þá?", spurði forseti í ræðu sinni.

Hann lét okkur um að velta svarinu í hugum okkar. Er ég einn um að skilja þetta með þeim hætti að hér hafi forsetinn verið að segja að ef við á Íslandi erum ekki reiðubúin að borga það sem upp er sett fyrir íslenskar landbúnaðarafurðir þá geti hæglega farið svo að mjólkin verði seld úr höndunum á börnunum okkar - alla leið til Kína?

Kínverjar bjóði betur - éti okkur út á gaddinn - við getum étið það sem úti frýs...??!

?

Who do you trust, - hubba, hubba, hubba?

Þá vitum við hvar Jack stendur í baráttunni:

"There is nothing on this earth sexier, believe me gentlemen, than a woman that you have to salute in the morning."

laugardagur, 1. mars 2008

Leiftursókn Samfylkingar heldur áfram


Félagar í Sjálfstæðisflokknum hljóta að vera hugsi yfir skoðanakönnuninni sem birt var í gær.


Fylgi Samfylkingar mælist nú 35 prósent. Í alþingiskosningum í vor fékk Samfylking 26,8 prósent á landsvísu (tapaði 4,2% frá 2003). Með öðrum orðum - samkvæmt þessu hefur Samfylking styrkt sig um nálega tíu prósent frá kosningum.
Þetta er ekkert smáræði!

Sjálfstæðisflokkur mælist með 38 prósent og dalar í fylgi um þrjú prósent frá síðustu mælingu. Í kosningunum í fyrravor fékk flokkurinn 36,6 prósent.

Nú er það svo að Sjálfstæðisflokkur mælist alltaf hærri í skoðanakönnunum en hann fær upp úr kössunum á kjördag.

Fylgi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar er nú í raun svipað. Það er augljóst að Samfylkingin hefur styrkt stöðu sína gríðarlega frá kosningum. Hún er í rosalegri tangarsókn. Íhaldið berst í bökkum og er í raun á undanhaldi á flestum vígstöðvum. Með stjórnarsamstarfinu við Samfylkinguna þá hefur Sjálfstæðisflokkurinn í raun lamað sjálfan sig í baráttunni við sinn höfuðandstæðing. Samfylkingin kann að notfæra sér þetta út í ystu æsar.

Fari fram sem horfir þá verður Samfylking stærsti stjórnmálaflokkur landsins og höfuðborgarsvæðisins eftir næstu sveitarstjórna- og alþingiskosningar. Sjálfstæðisflokkurinn glatar áratuga löngu hlutverki sínu sem stærsti flokkur þjóðarinnar.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir á Geir Hilmari Haarde og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur mikið að þakka. Sennilega allt þegar upp verður staðið...