Brúnastaða - bóndinn hefur vart vaknað með hýrri brá í morgun.
Nú hefur Ingibjörg Sólrún enn eina ferðina magnað upp hann Móra sinn. Í þetta sinn sent hann í skjóli nætur til að trylla búsmalann í fjósi og fjárhúsi Framsóknar.
Móri æsir til uppreisnar. Hann hvetur búsmalann til að gera hallarbyltingu og hrekja bóndann og búalið hans af óðalinu. Helst með skömm - sennilegast með pólitísku lífláti.
Móri hvíslaði lævíslega í nótt að nú beri búfénaðinum að hlýða kalli Samfylkingarinnar - hins eina sanna boðbera heiðarlegra stjórnmála þar sem heill íslensku þjóðarinnar og heilagur réttur hennar til að ráða eigin málum er ávallt í fyrirrúmi.
"Ilmurinn af töðunni - þessari grænu og góðu - hann berst frá Evrópu. En til að njóta hennar þá verðið þið að gangast við nasamúlnum frá frú minni, flokki og Evrópusambandinu", sagði Móri.
Nú reynir á hvort Framsóknarbýlið hefur á að skipa heilbrigðum bústofni eða samansafni af broddskitukálfum og riðugemsum, sem láta glepjast af honum Samfylkingar - Móra og boðskap þess trúfélags sem gerir hann út.
En fyrst ætti Brúnastaðabóndinn að ganga til verks og kveða Vesturgötufjandann niður.
Flokksformaður sem ætlar að njóta virðingar, getur ekki búið við að svona skrattakollar sem eru ráðherrar Samfylkingar á daginn noti næturnar til að espa opinberlega til hnífaslagsmála og byltingar í hans elskaða Framsóknarflokki.
Ég veit að Guðni ræður við að kveða niður Samfylkingar - Móra.

2 ummæli:
Æi, ég held að flest af því tiltölulega meinlitla fólki sem kaus framsóknarbófaflokkinn á sínum tíma, hafi flutt sig yfir í Vg, þótt slatti hafi farið yfir til ykkar í xF Eftir eru bara hýenurnar sem núna eru að rífa í sig leifarnar af SÍS, í formi hlutafélagsins GIFT.
Fjandi vel skrifuð grein. Eins og Össur er þekktur fyrir góðan ritstíl þá er þetta mjög vel skrifað hjá þér.
Skrifa ummæli