Tilraunin mikla með Öreindahraðalinn er hafin.
Eðlisfræði hefur sennilega ekki verið jafn spennandi og síðan Thomas Alfa Edison kveikti á fyrstu ljósaperunni.
Á skrifaðri stundu er verið að fara að senda geisla númer tvö í gegnum hraðalinn. Hann fer í hring á móti sólu.
Með því að smella hér má fylgjast með tilrauninni í beinni útsendingu á netinu. Fann þetta á vef norska stórblaðsins Aftenposten.
Blaðið telur rétt að taka sérstaklega fram að fari svo að myndin rofni þá þurfi það ekki endilega að tákna að heimurinn sé að farast.
Norðmenn hafa alltaf haft skemmtilegan húmor.
miðvikudagur, 10. september 2008
Öreindahraðall í beinni
fimmtudagur, 28. ágúst 2008
Frammi fyrir honum einum
Þar sem ég sit hér við gluggann og horfi yfir Austurvöll og sé það sem þið sjáið á myndinni hér fyrir ofan; - nýkominn af fundi úti í bæ og við mér blasir andlátsfregn biskupsins okkar, þá verður mér eiginlega orða vant.
Mig langar til að vitna í þennan texta:
"Alþingishúsið og Dómkirkjan standa hlið við hlið í hjarta gömlu Reykjavíkur og renna nálega sjálfkrafa saman í eina mynd, þótt ólik séu um yfirbragð. Tvennt er þeim ætlað og skilin glögg þar í milli. En þau standa á einum grunni. Mér er sagt að vísu, að Dómkirkjan standi á klöpp, eða kór hennar, Alþingishúsið á möl. Í dýpri skilningi þurfa bæði sömu undirstöðu, sama grunn, djúpt undir öllu yfirborði. Og það er einmitt sá grunnur, sem vér þreifum eftir að upphafi þinghalds, þegar vér göngum fyrir altari Dómkirkjunnar og nemum þar staðar litla stund. Vér göngum hér inn, nokkrir einstaklingar, hver með sín einkamál og ýmislegan lífsvanda, sem hver á fyrir sig. Vér komum hér saman með þær kvaðir og skyldur, sem vér höfum tekist á herðar sem fulltrúar þjóðarheildarinnar og hver og einn vill greiða af höndum eftir besta megni.
Vér leitum að undirstöðu, hinstu fótfestu, öruggum, ósviknum grunni. Það gerum vér, allir menn, þegar vér finnum til ábyrgðar og játumst ábyrgð, finnum til þeirrar vegsemdar og vanda, sem fylgir því að vera maður.
Altari heilagrar kirkju er tákn: Það merkir bjarg þess máttar, sem ber uppi alla tilveru. Það merkir veldisstól almættisins og hásæti kærleikans. Það táknar fótskör hinnar eilífu, heilögu hátignar, sem lýtur ofan alla leið til þín til þess að blessa þig. Fyrir altari Guðs ertu einn, frammi fyrir honum einum".
Upphafsorð ræðu Dr. Sigurbjarnar Einarrsonar biskups við setningu Alþingis í Dómkirkjunni í Reykjavík árið 1959.
þriðjudagur, 26. ágúst 2008
Sigmundur geimfari - 30 ára minning
Í dag eru liðin 30 ár síðan honum var skotið út í himinhvolfið. Sigmundur Jähn var austur þýski prentarinn sem varð fyrsti geimfari Þjóðverja.
Árið var 1978 og austur þýskum stjórnvöldum var í mun að sýna hvað í samfélagi þeirra bjó. Til viðbótar prentiðninni hafði Sigmundur fengið menntun og þjálfun sem orrustuflugmaður. Hann var 41 árs, - hraustur á sál og líkama. Sigmundur var valinn úr hópi 300 flugmanna til að verða sá sem var sendur í tveggja ára geimfaranám til Sovétríkjanna áður en hann steig íklæddur geimbúning um borð í geimflaugina Sojus 31 þann 26. ágúst árið 1978. Skipstjórinn um borð var Rússi.
Ferðinni var heitið í geimstöðina Saljút sjötta.
Austur þýsku ríkisfjölmiðlarnir létu þennan atburð ekki fara fram hjá íbúum alþýðulýðveldisins. Fyrsti þýski geimfarinn var orðinn að staðreynd og hann VAR EKKI FRÁ KAPÍTALISTUNUM Í VESTUR ÞÝSKALANDI.
Allt var undirlagt af endalausum fréttum af Sigmundi og geimferð hans. Á meðan pressan lét móðan mása sat hann Sigmundur í Saljút sjötta, nestaður með skjaldarmerki Austur Þýskalands úr gulli, með flokksmerki kommúnistaflokksins sem sýndu myndir af Marx, Engels og Lenín. Um borð var líka lesefni að líta í þegar stundir gáfust. Eintak af Kommúnistaávarpinu og Fást eftir Göthe. Á veggjum héngu myndir af Leóníd Brésneff aðalritara kommúnistaflokksins í Sovét, og Erich Honecher leiðtoga kommúnista í Austur Þýskalandi.
Í þessu umhverfi sveif Sigmundur um geiminn í heila sjö sólarhringa, tuttugu tíma og 49 mínútur.
Þegar Sigmundur lenti loks í Sovétríkjunum hélt hann heim með eymsli í baki eftir harða lendingu. Heim kominn var honum fagnað sem hetju. Hann fékk móttökur sem sæmt hefðu hvaða handboltalandsliði sem er. Það var ekið með hann á opnum vagni gegnum Austur Berlín, það voru hengdar á hann orður og hann fékk sumarbústað til eigin afnota í austur þýska þorpinu þar sem hann ólst upp. Skólar voru nefndir eftir honum.
Morgunblaðið skrifaði frétt um ferðina, en annars létu vestrænir fjölmiðlar sér fátt um finnast. Þjóðviljinn þagði um málið enda stærri hlutir að gerast á Íslandi. Kommarnir voru að mynda vinstri stjórn með krötum og Framsókn undir forsæti Ólafs Jóhannessonar.
Sigmundur geimfari naut virðingar í sínu heimalandi og hann hélt henni þrátt fyrir fall Berlínarmúrsins árið 1990. Þjóðverjar kunnu að meta geimfarann sinn. Hann gerðist ráðgjafi þýskra stjórvalda í geimferðum.
Sigmundur er 71 árs í dag og kominn á eftirlaun.
Hann segist enn vera marxisti.
Kannski ekki furða.
Kommúnisminn kom honum út í geim (og aftur heim).
laugardagur, 23. ágúst 2008
sunnudagur, 17. ágúst 2008
Ronnie Drew - The Irish Rover
Það er leitt að sjá fréttir um að Ronnie Drew stofnandi írsku þjóðlagasveitarinnar Dubliners hefur nú horfið á vit feðra sinna.
Þessi maður kenndi mér að meta írska tónlist, ásamt kollegum sínum í The Chieftains og fleiri sveitum. Ekki spillti svo fyrir að The Pouges tóku góða spretti á níunda áratugnum, þó það væri reyndar bresk sveit.
Írar eru merk þjóð og hugrökk. Ég verð þeim ævinlega þakklátur fyrir að hafa sturtað Lissabon sáttmála Evrópusambandsins niður í þjóðaratkvæðagreiðslu fyrr í sumar.
Hér fyrir neðan rífur Ronnie í vísuna The Irish Rover ásamt Shane McGowan. Hljómsveitir þeirra, The Dubliners og The Pouges sjá um undirleikinn.
Einhvern veginn átti ég alltaf von á því að Shane yrði sá fyrsti af þessum köppum til að leggja á djúpið, en svona er þetta....
laugardagur, 16. ágúst 2008
Afmæli drottningar
Ein flottasta tónlistarkona heims - ever - á afmæli í dag.
Til hamingju með daginn, Madonna!
- og takk fyrir mikið af skemmtilegri tónlist gegnum árin...
föstudagur, 15. ágúst 2008
Ekki byrjar það vel
Guðni Ágústsson formaður Framsóknarflokksins segir í viðtali við sjónvarpsfréttir RUV nú í kvöld, að Ólafi F. Magnússyni hafi verið stolið úr Tjarnarkvartettinum á sínum tíma.
Hann er þá að segja að Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavíkurborg séu þjófar og mannræningjar.
Öhömm......