þriðjudagur, 26. ágúst 2008

Sigmundur geimfari - 30 ára minning


Í dag eru liðin 30 ár síðan honum var skotið út í himinhvolfið. Sigmundur Jähn var austur þýski prentarinn sem varð fyrsti geimfari Þjóðverja.

Árið var 1978 og austur þýskum stjórnvöldum var í mun að sýna hvað í samfélagi þeirra bjó. Til viðbótar prentiðninni hafði Sigmundur fengið menntun og þjálfun sem orrustuflugmaður. Hann var 41 árs, - hraustur á sál og líkama. Sigmundur var valinn úr hópi 300 flugmanna til að verða sá sem var sendur í tveggja ára geimfaranám til Sovétríkjanna áður en hann steig íklæddur geimbúning um borð í geimflaugina Sojus 31 þann 26. ágúst árið 1978. Skipstjórinn um borð var Rússi.

Ferðinni var heitið í geimstöðina Saljút sjötta.

Austur þýsku ríkisfjölmiðlarnir létu þennan atburð ekki fara fram hjá íbúum alþýðulýðveldisins. Fyrsti þýski geimfarinn var orðinn að staðreynd og hann VAR EKKI FRÁ KAPÍTALISTUNUM Í VESTUR ÞÝSKALANDI.

Allt var undirlagt af endalausum fréttum af Sigmundi og geimferð hans. Á meðan pressan lét móðan mása sat hann Sigmundur í Saljút sjötta, nestaður með skjaldarmerki Austur Þýskalands úr gulli, með flokksmerki kommúnistaflokksins sem sýndu myndir af Marx, Engels og Lenín. Um borð var líka lesefni að líta í þegar stundir gáfust. Eintak af Kommúnistaávarpinu og Fást eftir Göthe. Á veggjum héngu myndir af Leóníd Brésneff aðalritara kommúnistaflokksins í Sovét, og Erich Honecher leiðtoga kommúnista í Austur Þýskalandi.

Í þessu umhverfi sveif Sigmundur um geiminn í heila sjö sólarhringa, tuttugu tíma og 49 mínútur.

Þegar Sigmundur lenti loks í Sovétríkjunum hélt hann heim með eymsli í baki eftir harða lendingu. Heim kominn var honum fagnað sem hetju. Hann fékk móttökur sem sæmt hefðu hvaða handboltalandsliði sem er. Það var ekið með hann á opnum vagni gegnum Austur Berlín, það voru hengdar á hann orður og hann fékk sumarbústað til eigin afnota í austur þýska þorpinu þar sem hann ólst upp. Skólar voru nefndir eftir honum.

Morgunblaðið skrifaði frétt um ferðina, en annars létu vestrænir fjölmiðlar sér fátt um finnast. Þjóðviljinn þagði um málið enda stærri hlutir að gerast á Íslandi. Kommarnir voru að mynda vinstri stjórn með krötum og Framsókn undir forsæti Ólafs Jóhannessonar.

Sigmundur geimfari naut virðingar í sínu heimalandi og hann hélt henni þrátt fyrir fall Berlínarmúrsins árið 1990. Þjóðverjar kunnu að meta geimfarann sinn. Hann gerðist ráðgjafi þýskra stjórvalda í geimferðum.

Sigmundur er 71 árs í dag og kominn á eftirlaun.

Hann segist enn vera marxisti.

Kannski ekki furða.

Kommúnisminn kom honum út í geim (og aftur heim).

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Áhugaverð lesning.

Spurning hvort íslenskir skólar verði kenndir við Handboltastrákana :-)