föstudagur, 8. ágúst 2008

Heimsendir um helgina?

Þegar stór er spurt....

Norska stórblaðið Aftenposten greinir frá því á vef sínum að í dag hefjist fyrstu prófanir á svokölluðum öreindahraðli við Evrópsku öreindarannsóknastofnunina CERN. Hún er á landamærum Sviss og Frakklands. Þarna er búið að grafa 27 kílómetra löng neðanjarðargöng (sjá mynd fyrir ofan). Þar á að búa til aðstæður sem líkja eftir því sem voru þegar Stóri hvellur varð og heimurinn varð til.

Þetta ku vera stærsta eðlisfræðitilraun sem gerð hefur verið.

Göngin hafa verið kæld nánast niður í alkul sem er mínus 273,15 gráður á Celsíus. Þá er allt frosið sem frysta má. Nú á að skjóta tveimur öreindageislum um þessi göng og láta þá mætast. Þá á eitthvað að gerast sem vísindamenn telji að veiti þeim mun meiri skiling á því hvernig heimurinn varð til.

Guð einn má vita hvað það er og ég sé ekki hvað okkur mannskepnurnar varðar um það.

Meira kann ég ekki frá þessu að segja, nema því að sá böggull fylgir þessu skammrifi, að svartsýnismenn telja að þetta fitl geti leitt til þess að heimurinn farist. Það er þá eitthvað á þá leið að þegar öreindageislarnir mætist á ofsahraða inni í göngunum leysist úr læðingi gríðarlega orka. Það verði skapað svarthol sem gleypir jörðina.

Game over.

Það væri svo sem eftir öðru á þessum síðustu og verstu tímum að mannkynið dræpi sig nú loks á einhverju bölvuðu fikti.

Hér er myndband sem bölsýnir gagnrýnendur tilraunarinnar hafa búið til sem á að sýna hvað gerst getur eftir að öreindahraðallinn verður settur í gang um helgina:


Góða helgi!

15 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það er skömm að því að þú hafir einusinni kallast vísindamaður, hvað varð um forvitnina?

Nafnlaus sagði...

Alltaf jafn uppörvandi fréttirnar frá þér Magnús.

Skrítið að þú skulir ekki vera komin í ráðherrastól svona bjartsýn og hress sem þú ert alltaf.

kv.

Páll.

Nafnlaus sagði...

Það er búið að fresta heimsendi til 10. september. Það ætti að gefa manni tíma til að ganga frá sínum málum gagnvart bankanum og svona...

http://press.web.cern.ch/press/PressReleases/Releases2008/PR06.08E.html

Nafnlaus sagði...

Fyrir trinity tilraunasprenginguna var Enrico Fermi að taka við veðmálum um að hún myndi kveikja í andrúmsloftinu og eyða öllu jarðnesku lífi.

You roll the dice....

Nafnlaus sagði...

Ég ætla að vona að þú sért að grínast.

Nafnlaus sagði...

Það er aldeilis svartsýnin!

Samkvæmt vef CERN höfum við nú alveg fram til 10. september til að njóta lífsins.

Nafnlaus sagði...

Not to worry!

http://news.bbc.co.uk/2/hi/science/nature/7468966.stm

Magnús Þór sagði...

Ekki hef ég verið að dreifa svartsýni eða taka undir þessa spádóma. Ég var bara að miðla frétt sem ég fann á fréttasíðu Aftenposten í Noregi. Persónulega hef ég meiri áhyggjur af því sem er að gerast í Ossetíu. Það eru alvarlegir atburðir.

Nafnlaus sagði...

Þú velur hverju þú miðlar, Maggi minn, og þarft ekki að vera hissa á að lesendur þínir telji þig svartsýnan.
Annars væri þægilegt að hætta öllu fikti "Guð einn má vita hvað það er og ég sé ekki hvað okkur mannskepnurnar varðar um það." - no more research or experiments!

Magnús Þór sagði...

Jamm, þessi heimur er víst einn samfelldur táradalur...

Veldur hver á heldur.

Nafnlaus sagði...

Holy shit dúd þetta er fokking sikk... ég get ekki beðið eftir að vita hvort ég muni degja á miðvikudaginn eða ekki akkuru gat busunin ekki verið á föstudegi í næstu viku :P... Hlakka GG TIL

Kristján Hrannar sagði...

Það er sorglegt hvernig maður í þinni stöðu tjáir sig um vísindi af jafn mikilli þekkingu og nornaveiðari. Þú hefðir sjálfsagt úthúðað Louis Pasteur og þessu bölvuðu "sýklafikti" hans sem myndu ábyggilega smita okkur öll af hundaæði. Það eitt og sér að þú sitjir í upplýstu, upphituðu húsi og skrifir þessi orð á tölvu er nógu mikil hræsni ein og sér.

Unknown sagði...

Ég er því gjörsamlega ósammála að einhver ímynduð vera sem einhverjir eyðimerkurtöffarar ályktuðu að hefði skapað allt heila klabbið fyrir einhverjum þúsunum ára sé eina veran sem skuli eitthvað eiga að vita í sambandi við tilurð heimsins.

Þetta getur leitt af sér þekkingu sem getur meðal annars stuðlað að öruggari og minna mengandi orkulindum fyrir heiminn. Sem hlýtur að vera jákvætt, bæði fyrir Ossetíu, Írak, Afghanistan og...

...alla þá sem nota orku.

Hjörtur Haraldsson sagði...

"Ég var bara að miðla frétt sem ég fann á fréttasíðu Aftenposten í Noregi."

Þvílíkt kjaftæði, Magnús Þór Hafsteinsson!

Allt í þessari færslu þinni er þín eigin fordæming og yfirlýsing þín um að guð einn skuli vita hvað liggi á bak við alheiminn er eitthvað sem spænski rannsóknarrétturinn yrði stoltur af.

Til hamingju. Þú ert fyrst nú búinn að festa þig í sessi sem þingmaður sem stendur fyrir tortyggni, afturhald og bábiljur.

Magnús Þór sagði...

Óttalega eru menn eitthvað skömmóttir. Hafið þið engan húmor, þér gleðisnauðu nördar?