Tilraunin mikla með Öreindahraðalinn er hafin.
Eðlisfræði hefur sennilega ekki verið jafn spennandi og síðan Thomas Alfa Edison kveikti á fyrstu ljósaperunni.
Á skrifaðri stundu er verið að fara að senda geisla númer tvö í gegnum hraðalinn. Hann fer í hring á móti sólu.
Með því að smella hér má fylgjast með tilrauninni í beinni útsendingu á netinu. Fann þetta á vef norska stórblaðsins Aftenposten.
Blaðið telur rétt að taka sérstaklega fram að fari svo að myndin rofni þá þurfi það ekki endilega að tákna að heimurinn sé að farast.
Norðmenn hafa alltaf haft skemmtilegan húmor.
miðvikudagur, 10. september 2008
Öreindahraðall í beinni
fimmtudagur, 28. ágúst 2008
Frammi fyrir honum einum
Þar sem ég sit hér við gluggann og horfi yfir Austurvöll og sé það sem þið sjáið á myndinni hér fyrir ofan; - nýkominn af fundi úti í bæ og við mér blasir andlátsfregn biskupsins okkar, þá verður mér eiginlega orða vant.
Mig langar til að vitna í þennan texta:
"Alþingishúsið og Dómkirkjan standa hlið við hlið í hjarta gömlu Reykjavíkur og renna nálega sjálfkrafa saman í eina mynd, þótt ólik séu um yfirbragð. Tvennt er þeim ætlað og skilin glögg þar í milli. En þau standa á einum grunni. Mér er sagt að vísu, að Dómkirkjan standi á klöpp, eða kór hennar, Alþingishúsið á möl. Í dýpri skilningi þurfa bæði sömu undirstöðu, sama grunn, djúpt undir öllu yfirborði. Og það er einmitt sá grunnur, sem vér þreifum eftir að upphafi þinghalds, þegar vér göngum fyrir altari Dómkirkjunnar og nemum þar staðar litla stund. Vér göngum hér inn, nokkrir einstaklingar, hver með sín einkamál og ýmislegan lífsvanda, sem hver á fyrir sig. Vér komum hér saman með þær kvaðir og skyldur, sem vér höfum tekist á herðar sem fulltrúar þjóðarheildarinnar og hver og einn vill greiða af höndum eftir besta megni.
Vér leitum að undirstöðu, hinstu fótfestu, öruggum, ósviknum grunni. Það gerum vér, allir menn, þegar vér finnum til ábyrgðar og játumst ábyrgð, finnum til þeirrar vegsemdar og vanda, sem fylgir því að vera maður.
Altari heilagrar kirkju er tákn: Það merkir bjarg þess máttar, sem ber uppi alla tilveru. Það merkir veldisstól almættisins og hásæti kærleikans. Það táknar fótskör hinnar eilífu, heilögu hátignar, sem lýtur ofan alla leið til þín til þess að blessa þig. Fyrir altari Guðs ertu einn, frammi fyrir honum einum".
Upphafsorð ræðu Dr. Sigurbjarnar Einarrsonar biskups við setningu Alþingis í Dómkirkjunni í Reykjavík árið 1959.
þriðjudagur, 26. ágúst 2008
Sigmundur geimfari - 30 ára minning
Í dag eru liðin 30 ár síðan honum var skotið út í himinhvolfið. Sigmundur Jähn var austur þýski prentarinn sem varð fyrsti geimfari Þjóðverja.
Árið var 1978 og austur þýskum stjórnvöldum var í mun að sýna hvað í samfélagi þeirra bjó. Til viðbótar prentiðninni hafði Sigmundur fengið menntun og þjálfun sem orrustuflugmaður. Hann var 41 árs, - hraustur á sál og líkama. Sigmundur var valinn úr hópi 300 flugmanna til að verða sá sem var sendur í tveggja ára geimfaranám til Sovétríkjanna áður en hann steig íklæddur geimbúning um borð í geimflaugina Sojus 31 þann 26. ágúst árið 1978. Skipstjórinn um borð var Rússi.
Ferðinni var heitið í geimstöðina Saljút sjötta.
Austur þýsku ríkisfjölmiðlarnir létu þennan atburð ekki fara fram hjá íbúum alþýðulýðveldisins. Fyrsti þýski geimfarinn var orðinn að staðreynd og hann VAR EKKI FRÁ KAPÍTALISTUNUM Í VESTUR ÞÝSKALANDI.
Allt var undirlagt af endalausum fréttum af Sigmundi og geimferð hans. Á meðan pressan lét móðan mása sat hann Sigmundur í Saljút sjötta, nestaður með skjaldarmerki Austur Þýskalands úr gulli, með flokksmerki kommúnistaflokksins sem sýndu myndir af Marx, Engels og Lenín. Um borð var líka lesefni að líta í þegar stundir gáfust. Eintak af Kommúnistaávarpinu og Fást eftir Göthe. Á veggjum héngu myndir af Leóníd Brésneff aðalritara kommúnistaflokksins í Sovét, og Erich Honecher leiðtoga kommúnista í Austur Þýskalandi.
Í þessu umhverfi sveif Sigmundur um geiminn í heila sjö sólarhringa, tuttugu tíma og 49 mínútur.
Þegar Sigmundur lenti loks í Sovétríkjunum hélt hann heim með eymsli í baki eftir harða lendingu. Heim kominn var honum fagnað sem hetju. Hann fékk móttökur sem sæmt hefðu hvaða handboltalandsliði sem er. Það var ekið með hann á opnum vagni gegnum Austur Berlín, það voru hengdar á hann orður og hann fékk sumarbústað til eigin afnota í austur þýska þorpinu þar sem hann ólst upp. Skólar voru nefndir eftir honum.
Morgunblaðið skrifaði frétt um ferðina, en annars létu vestrænir fjölmiðlar sér fátt um finnast. Þjóðviljinn þagði um málið enda stærri hlutir að gerast á Íslandi. Kommarnir voru að mynda vinstri stjórn með krötum og Framsókn undir forsæti Ólafs Jóhannessonar.
Sigmundur geimfari naut virðingar í sínu heimalandi og hann hélt henni þrátt fyrir fall Berlínarmúrsins árið 1990. Þjóðverjar kunnu að meta geimfarann sinn. Hann gerðist ráðgjafi þýskra stjórvalda í geimferðum.
Sigmundur er 71 árs í dag og kominn á eftirlaun.
Hann segist enn vera marxisti.
Kannski ekki furða.
Kommúnisminn kom honum út í geim (og aftur heim).
laugardagur, 23. ágúst 2008
sunnudagur, 17. ágúst 2008
Ronnie Drew - The Irish Rover
Það er leitt að sjá fréttir um að Ronnie Drew stofnandi írsku þjóðlagasveitarinnar Dubliners hefur nú horfið á vit feðra sinna.
Þessi maður kenndi mér að meta írska tónlist, ásamt kollegum sínum í The Chieftains og fleiri sveitum. Ekki spillti svo fyrir að The Pouges tóku góða spretti á níunda áratugnum, þó það væri reyndar bresk sveit.
Írar eru merk þjóð og hugrökk. Ég verð þeim ævinlega þakklátur fyrir að hafa sturtað Lissabon sáttmála Evrópusambandsins niður í þjóðaratkvæðagreiðslu fyrr í sumar.
Hér fyrir neðan rífur Ronnie í vísuna The Irish Rover ásamt Shane McGowan. Hljómsveitir þeirra, The Dubliners og The Pouges sjá um undirleikinn.
Einhvern veginn átti ég alltaf von á því að Shane yrði sá fyrsti af þessum köppum til að leggja á djúpið, en svona er þetta....
laugardagur, 16. ágúst 2008
Afmæli drottningar
Ein flottasta tónlistarkona heims - ever - á afmæli í dag.
Til hamingju með daginn, Madonna!
- og takk fyrir mikið af skemmtilegri tónlist gegnum árin...
föstudagur, 15. ágúst 2008
Ekki byrjar það vel
Guðni Ágústsson formaður Framsóknarflokksins segir í viðtali við sjónvarpsfréttir RUV nú í kvöld, að Ólafi F. Magnússyni hafi verið stolið úr Tjarnarkvartettinum á sínum tíma.
Hann er þá að segja að Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavíkurborg séu þjófar og mannræningjar.
Öhömm......
Borg hinna pólítísku zombía
Formaður Samfylkingar Ingibjörg Sólrún í hádegisfréttum útvarps RUV:
"Ég, þetta náttúrlega er orðin svoddan harmleikur eða farsi, ég veit ekki hvort heldur maður á að segja hérna í borginni, að það tekur því nú eiginlega ekki að vera að tjá sig mikið um það en þetta er uppvakningur og samkvæmt íslenskri þjóðtrú þá eru þeir verri heldur en, heldur en draugurinn sjálfur þannig að nú skulum við bara sjá hvað setur".
Og hér er farið vandlega yfir það hvernig reykvíska vísitölufjölskyldan getur varist árásum pólitískra uppvakninga Íhalds og Framsóknar:
sunnudagur, 10. ágúst 2008
Kákasusbardagi: spurningar og svör

Ég fann neðangreindar spurningar og svör á vef Aftenposten í Noregi. Miðillinn er að reyna að upplýsa lesendur sýna um stríðið sem nú geisar í Kákasus. Þetta er skrifað af fréttaritara Aftenposten í Moskvu.
Ég ákvað að snara þessu yfir á íslensku. Þetta eru hættulegustu hernaðarátök í langan tíma og geta haft ófyrirsjáanlegar pólitískar afleiðingar:
1. Hvers vegna vilja Ossetar komast undan yfirráðum Georgíu?
Fyrstu árin eftir að Sovétríkin leystust upp, stóðu stjórnvöld í Georgíu fyrir mjög þjóðernissinnaðri stefnu og ástunduðu menningarlega kúgun á Ossetum. Stríðið 1990-92 var mjög ofbeldisfullt og því hefur í raun aldrei lokið. Lítið traust er á milli aðila eftir fimmtán ára tilraunir til sátta. Stjórnvöld í Ossetíu kjósa frekar rússnesk yfirráð fram yfir georgísk, þrátt fyrir að almennir borgarar Ossetíu gjaldi varhug við því að Rússar blandist í málefni þeirra.
2.Af hverju réðist Georgía á Suður Ossetíu með hervaldi?
Sennilega hafa stjórnvöld í Georgíu annað hvort búist við að Rússland myndi ekki senda jafn öflugt herlið á vettvang, eða þau reiknuðu með hjálp frá Bandaríkjunum. Þar með talið hernaðaraðstoð. Condolezza Rice var í Tbilisi í júlí. Spyrja má hvaða skilaboðum hún hafi þá komið á framfæri og hvort þau hafi hugsanlega verið misskilin. George W. Bush Bandaríkjaforseti virðist ekki vilja láta í ljós neitt annað en munnlega andstöðu við árásir rússneska heraflans á landssvæði Georgíu. Hann hefur mælt með því að leitað verði aftur til þeirrar stöðu sem uppi var til 6. ágúst. Mikheil Saakasjvili forseti Georgíu gekk til kosninga með loforðum um að hann ætlaði að ná báðum lýðveldunum sem hafa rifið sig laus frá Georgíu, aftur undir stjórn landsins. Samningaviðræður milli stjórnvalda í Georgíu og stjórnvalda í Suður Ossetíu og Abkasíu hafa ekki skilað neinum árangri. Lýðveldin tvö hafa staðið fast á því að þau muni eingungis semja ef Georgía viðurkenni sjálfstæði þeirra, en Georgía krefst þess að allir georgískir flóttamenn fái fyrst að snúa aftur til heimahaga sinna í þessum lýðveldum. Endurkoma flóttafólksins myndi leiða til þess að Ossetar og Abkasar yrðu í minnihluta á þeim landsvæðum. Samskipti Suður Ossetíu og Georgíu hafa lengi verið mjög viðkvæm, en á síðustu vikum hafa hvað eftir annað brotist út vopnuð átök milli deiluaðila. Báðir kenna hinum um að hafa byrjað vopnaskakið.
3. Af hverju hefur Rússland afskipti með hervaldi?
Flestir hermannanna í hinum svokölluðu friðargæslusveitum eru frá Rússlandi. Utanríkisráðherra Rússa hefur lýst því yfir að það sé í verkahring Rússa að sjá til þess að friður komist á í Suður Ossetíu. Dmitrij Medvedev forseti Rússlands hefur einnig sagt að hernaðarleg afskipti hafi verið nauðsynleg til að verja eigin borgara, og flestir af Ossetunum í Suður Ossetíu eru rússneskir ríkisborgarar. Georgíu menn hafa litið á þann gjörning Rússa að láta Osseta í Suður Ossetíu hafa rússneskt ríkisfang sem viðleitni Rússa til að ná hægt og bítandi yfirráðum í Suður Ossetíu. Ossetar líta hins vegar svo á að þetta hafi verið eini möguleiki þeirra til að fá vegabréf sem eru viðurkennd á alþjóða vettvangi. Georgía telur að Rússland hjálpi Suður Ossetum í andspyrnubaráttunni, og að friðargæslulið Rússa sé alls ekki hlutlaust heldur taki virkan þátt til stuðnings Ossetum.
4. Hver eru markmið Rússa?
Yfirlýst markmið þeirra er að koma aftur á sömu stöðu mála og var áður en Georgía réðist á Suður Ossetíu. Sennilega vilja Rússar einnig eyðileggja hernaðarmannvirki Georgíu og lama árásarmátt þeirra þannig að Georgía hafi ekki lengur afl til að ráðast aftur á Suður Ossetíu. Það er einnig hugsanlegt að Rússland vilji fyrir sitt leyti sýna vald sitt á svæðinu. Rússnesk stjórnvöld reyna einnig að lítillækka Saakasjvili Georgíuforseta og stjórnmálastefnu hans. Stríðið getur bundið enda á frekari óskir Georgíu um að fá aðild að NATO. Vladimir Putin forsætisráðherra Rússa hefur sagt að árás Georgíu hafi sannað að uppreisnarlýðveldin tvö geti aldrei aftur orðið hluti af Georgíu. Of snemmt er að segja til um hvort Rússland muni nú viðurkenna fullveldi lýðveldanna tveggja eða innlima þau í Rússland. Til viðbótar þessu þá hefur Rússland horn í síðu Georgíu því að Rússar töpuðu nokkru af völdum sem þeir hafa haft sem gassöluríki, þegar tvær eldsneytisleiðslur voru opnaðar sem báðar liggja gegnum Georgíu frá Kasakhstan. Sögulega séð þá hefur það verið mjög mikilvægt fyrir Rússa að hafa tögl og haldir á Suður Kákasus.
5. Hvernir eru Ossetar, - eru þeir eiginlega Rússar að uppruna?
Nei. Ossetar eru þjóð sem eru afkomendur íranskrar þjóðar sem kallaðist Alan. Þetta voru hirðingjar em settust tiltölulega seint að í Kákasusfjöllum, eða fyrir 3-400 árum. Georgískir sagnfræðingar telja að þeir hafi sest þar að alltof seint til að geta gert kröfur um eigið land.
6. Hvað skilur á milli Osseta og Georgíufólks?
Tungumálin eru mjög ólík, en annars ber lítið á milli. Þjóðirnar lifa daglegu lífi í friði og spekt í Suður Ossetíu. Fjöldi fjölskyldna eru blandaðar Ossetum og Georgíufólki. Sovét tímabilið myndaði hins vegar sterk tengsl milli Osseta og Rússa. Viðskiptabann síðustu fimmtán árin hefur einnig styrkt þessi bönd.
7. Er eitthvað samband milli Osseta og Abkhasa sem einnig hafa klofið sig frá Georgíu?
Já, það eru menningarleg tengsl milli allra þjóða á þessu svæði. Ekki bara á milli þessa tveggja. Pólitískt séð þá bjuggu Abkhasar eins og Ossetar við ákveðna sjálfsstjórn á Sovéttímanum. Þetta veitti þeim stjórmálalega stöðu til að leggja fram kröfur um sjálfstæði þegar Sovétríkin leystust upp. Segja má að samband þjóðanna sé kannski mest vegna pólitískra þátta seinni tíma frekar en að þær eigi sögulega og menningarlega samleið.
8. Hvað gerist nú í Abkhasíu?
Árás Georgíu á Suður Ossetíu hefur einnig leitt til þess að stjórnvöld í hinu klofningslýðveldinu Abkasíu hafa nú hafið árásir á þann hluta sem Abkhasíu sem Georgía ræður yfir, í Kodori. Georgía yfirtók stjórn þessa svæðis í hernaðaraðgerð árið 2006. Óvíst er hvort Abkhasar noti tækifærið nú þar sem herafli Georgíu er á undanhaldi og Rússland hefur sýnt vilja til að grípa inn með hervaldi Russland, eða þeir líti svo á að árás sé besta vörnin (Abkhasísk stjórnvöld hafa fullyrt að Georgía hafi undirbúið árásir á Abkhasíu).
9. Hvað er þetta með valdhafa í Georgíu? Eitt er að Stalín var Georgíumaður. En Eduard Sjevardnadse var frjálslyndur á meðan hann var sovéskur utanríkisráðherra undir Mikhail Gorbatsjov. Um leið og hann snéri heim sem forseti til Tbilisi sem forseti, hóf hann að sýna einræðistilburði. Svipað virðist hafa gerst með Mikhail Saakasjvili núverandi forseta Georgíu.
Landið hefur aldrei upplifað stjórnarskrárleg umskipti á valdastólum. Hin stjórnmálalega mennig Georgíu er mörkuð af því að menn komast til valda með byltingu. Þetta veldur kannski því að sitjandi leiðtogum á hverjum tíma hættir til að bregðast við aðstæðum með offorsi, og með tímanum þróa með sér viðleitni til einræðis. Sögulega séð þá hefur Georgía alltaf verið undir stjórn framandi stórvelda ef undan eru skilin árin 1919-1921. Það hefur þróast fram djúpstæð tortryggni í garð hvers miðstýrðs ríkisvalds, og þetta leiðir til þess að Georgía er land sem erfitt er að stýra.
10. Varð hin forna kristna og georgíska menningararfleifð fyrir "tjóni" á tímabilinu þegar Sovétrikin réðu og innræting á "rússamenningu" var allsráðandi?
Að hluta til. Á vissan hátt var georgískur menningararfur varðveittur, en hin georgíska rétttrúnaðarkirkja sætti kúgun. Margir íbúar Georgíu eru tortryggnir í garð kirkjunnar frá þessum tíma þar sem margir töldu að kirkjan væri í samvinnu við leyniþjónustu lögreglunnar. Ilia II núverandi leiðtogi kirkjunnar er þekktur fyrir það að hafa staðið uppi í hárinu á KGB og varið sjálfstæði kirkjunnar.
11. Stendur georgíska þjóðin að baki forseta sínum í þessum átökum?
Já. Stjórnarandstaðan sem fram til þessa hefur ekki viljað viðurkenna Saakasjvili sem forseta vegna ásakana um kosningasvindl, hefur nú fylkt sér á bak við hann. Davit Gamkrelidze, leiðtogi Nýja Hægri flokksins, sagði á föstudag að það sé mikilvægt að öll þjóðin sýni nú samstöðu.
12. Hvers vegna er það svo mikilvægt fyrir Georgíu að ná stjórn á þeim svæðum sem hafa klofið sig frá landinu?
Flestir Georgíubúar líta svo á að svæðin séu eðlilegur hluti af landi þeirra. Þeir líta á kröfur um að svæðin losi sig frá Georgíu, sem eftirmála og afleiðingar tímans þegar Georgía var undir hæl Sovétríkjanna. Svæðið sem kallast Abkhasía, er vagga georgísku þjóðarinnar og þar sat fyrsti konungur landsins. Georgíufólk nútímans er mjög meðvitað um þetta í dag.
13. Hverjir standa fyrir þjóðernishreinsunum?
Það hafa einungis komið fullyrðingar um slíkt frá Rússlandi og Georgíu. Engar skýrslur hafa staðfest að herlið standi fyrir þjóðernishreinsunum. Þó er það þannig að hvorki Ossetum né Georgíufólki mun líða vel á sínum heimilum í framtíðinni ef hinn aðilinn mun vera við völd á því svæði sem þau búa á. Stríðið síðustu daga hefur leitt til þess að samband og samskipti þjóðahópanna eru enn erfiðari en nokkru sinnni fyrr.
14. Hversu margir hafa fallið í átökunum?
Stjórnvöld í Suður Ossetíu fullyrða að rúmlega 1600 manns hafi fallið í Suður Ossetíu, aðallega í höfuðborginni Tsinkhvali. Georgía mótmælir þessari tölu. Rússneskar heimildir herma að minnsta kosti 15 af friðargæsluhermönnum þeirra hafi fallið og yfir 70 særst. Rúmlega 100 manns eiga að hafa látið lífið í Georgíu vegna rússneskra loftárása þar sem herþotur Rússa hafa sennilega verið að reyna að ráðast á herstöðvar, -tæki og -mannvirki. Tvær íbúðablokkir urðu fyrir loftárásum. Það hafa einnig borist upplýsingar um að fleiri hafi fallið í meintum loftárásum í Georgíu. Engar af ofangreindum tölum hafa verið staðfestar af óháðum aðilum.
15. Geta Bandaríkin og Evrópusambandið haft milligöngu um frið?
Sem NATO þjóðir munum hvorki helstu ESB lönd eða Bandaríkin verða álitin hlutlausir aðilar, - hvorki af Suður Ossetíu eða Rússlandi. Rússar munu vart hafa áhuga á því að þessi lönd leiði friðarviðræður. Rússland lítur á sjálft sig sem friðarboðberann og hinn hlutlausa aðila í átökum milli Georgíu og klofningslýðveldanna tveggja. Georgía lítur hins vegar á Rússland sem aðila að átökunum. Sennilega liggur lausnin í því að Bandaríkin og Rússland ræði saman.
16. Hvað næst?
Það er ógjörningur að segja til um hvað vaki fyrir Rússum að gera í framhaldi af þessu. Þeir hafa sagt að markmiðið sé að koma georgísku herliði út út Suður Ossetíu. Georgía hefur lýst því yfir að landið hafi dregið sig í hlé. Enn er stopul skothríð á svæðinu, og fulltrúar rússneska friðargæsluliðsins segja að það komi ekki til greina að leggja niður vopn fyrr en herlið Georgíu sé alfarið horfið frá Suður Ossetíu.
----------------------------------
Hér fyrir neðan eru myndir frá stíðinu í gær og í dag úr rússnesku sjónvarpi. Ég vara við myndum sem sýna fallna hermenn Georgíu.
Það er áhugavert að leggja við hlusir þegar Vladimir Pútín forsætisráherra talar (01:50).
Einnig vek ég athygli á ummælum Sergei Lavrov utanríkisráherra (04:30). Hann talar um að þeir sem hafi ekki viljað hlusta á aðvaranir Rússa verði nú að bera ábyrgð á því sem nú er að gerast. Síðan talar hann enn og aftur um það sem hann nefndi í gær og ég benti á þá; - sem er að er að forseti Georgíu sé ítrekað í alþjóðlegum sjónvarpsviðtölum með fána Evrópusambandsins fyrir aftan sig.
Ég fæ trauðla skilið þetta öðruvísi en svo að Rússar séu að kenna Vesturlöndum um þetta stríð og ýja að því að Evrópusambandið standi á bak við Georgíu í árásum á Rússland.
Er von að maður spyrji; hvað sé eiginlega í gangi?
laugardagur, 9. ágúst 2008
Er ESB í stríði við Rússland?
Því miður gefa fréttir frá Kákasus í dag ekki tilefni til mikillar bjartsýni.
Haldi þessi þróun áfram þá er ljóst að við stöndum frammi fyrir mjög alvarlegu stríðsástandi sem getur haft hrikalegar afleiðingar.
Eitt er það sem truflar mig mjög. Það er sú staðreynd að forseti Georgíu hefur ítrekað leyft sér alveg síðan átök hófust í gær, að mæta í bein alþjóðleg sjónvarpsviðtöl. Fyrir aftan hann eru fánar Georgíu og Evrópusambandsins. Sjá ljósmynd hér fyrir ofan.
Af hverju Evrópusambandsins?
Georgía er ekki í ESB.
Undarlegt er að enginn fréttamaður skuli spyrja hann hvað fáni ESB sé að gera þarna? Að minnsta kosti hef ég ekki séð neina skýringu á því.
Mikhail Saakasjvili forseti Georgíu kallar eftir hjálp frá Vesturlöndum og hamrar á því að Rússar hafi nú komið af stað stríði í Evrópu. Hann er að hluta til menntaður í Bandaríkjunum, og hefur barist fyrir því að Georgía gengi í ESB og NATO. Georgía hefur staðið þétt með Bandaríkjunum í Íraksstríðinu. Talað er um að Bandaríkjamenn hafi láti Georgíu hafa vopn og að fleiri hundruð bandarískir "hernaðarráðgjafar" séu í landinu. Þetta allt og fleira, að sjálfsögðu og skiljanlega við litla hrifningu Rússa.
Mér finnst það undarlegt og tilefni til óróa, að engin mótmæli skuli berast frá ESB við því að forseti ríkis sem nú hefur komið af stað stórhættulegu stríði við Rússa, skuli nota fána sambandsins í þessu sambandi. Auðvitað táknar það ekki að ESB eigi hér nokkurn hlut að málum, en það er samt eitthvað við þetta allt sem vekur óhug.
Fyrstu viðbrögð sem ég hef séð koma frá forystumanni í ESB landi eru frá Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra Dana (frammámanns í ESB og hugsanlegs kandídats í "forsetaembætti" sambandsins). Þetta er í Berlingske Tidende. Þar skammar Rasmussen Rússa fyrir að hafa ráðist inn í Georgíu. En segir ekki orð um það að forseti Georgíu skuli misnota fána Evrópusambandsins í vægast sagt annarlegum og stórhættulegum tilgangi.
Síðan sé ég nú á CNN að ESB löndin Pólland, Eistland, Lettland og Litháen (fyrrum undir væng Sovétríkjanna) voru nú síðdegis að senda frá sér harðorða yfirlýsingu þar sem þess var m. a. krafist að ESB blandi sér í málin og bregðist við "heimsvaldastefnu Rússlands" í Austur Evrópu.
Rússar hafa tekið eftir þessu með fánann. Hér fyrir neðan er langt myndskeið frá rússneskri stjónvarpsstöð sem sýnir fyrsta sólarhring styrjaldarinnar. Á tímapunktinum 07:24 gefur Sergey Lavrov utanríkisráðherra Rússlands yfirlýsingu. Hann fer stuttlega yfir ástandið og lýsir neyð sem Rússar hafi orðið að bregðast við. Svo segir hann:
"Against this background we have been watching the Georgian president on TV, affirming that he would stay the course and he is doing this with not only Georgian flag behind him but also the flag of the EUROPEAN UNION. I believe this does not require any comments".
Hvað er Lavrov að gefa í skyn?
föstudagur, 8. ágúst 2008
Músin berst við Björninn
Átök Rússlands og Georgíu í Ossetíu eru tvímælalaust frétt dagsins.
Hafi einhverjum herstjóranum dottið í hug að dagsetningin 080808, væri góður dagur til að hefja hernað þar sem heimsbyggðin væri öll að horfa á Ólympíuleika í Kína, þá held ég að það hafi verið mjög misreiknað.
Ég hef að minnsta kosti haft CNN á sjónvarpsskjánum í allan dag til að reyna að átta mig á því hvað væri að gerast í Kákasus. Þessi öflugasta sjónvarpsfréttastöð hefur ekki valdið vonbrigðum. Hún hefur sáralítið fjallað um opnunarhátíð Ólympíuleikanna, heldur haldið uppi nær stöðugri umfjöllun um átökin í Kákasus.
En af hverju ætti þetta að skipta máli? Það er spurning sem vert er að staldra við. Moggabloggarinn Júlíus Sigurþórsson skrifaði tvær ágætar fréttaskýringar um þessi átök fyrr í dag. Þá fyrri má sjá með því að smella hér. Hina síðari með því að smella hér.
Þessi átök eru náttúrulega mjög alvarleg. Þau gætu þróast út í stórstríð eins og Jakub M. Godzimirski sérfræðingur við Norsk utenrikspolitisk institutt benti á í netviðræðum við lesendur Aftenposten í dag. Fréttir berast af verulegu mannfalli. Sjálfsagt er þetta mjög eldfimt. Í þetta dragast gömul sárindi eftir hrun Sovétríkjanna, togstreita milli Rússlands og vestrænna ríkja þar sem Georgía biðlar til að verða tekið í NATO og jafnvel ESB. Það er náttúrulega eitur í beinum Rússa sem þykja Vesturlönd og NATO þrengja mjög að sér.
Þessi átök eru á þröskuldi Miðausturlanda þar sem mál eru þegar æði flókin og ekki alveg Rússum að skapi. Vart munu þessi átök leiða til lækkunar á heimsmarkaðsverði olíu dragist þau á langinn. Svona má lengi telja.
Það eru ótal fletir á þessu.
Mun fleiri en sjá má við fyrstu skoðun.
Þetta er Músin í baráttu við Björninn. Rússar hafa styrkst mjög. Ekki síst vegna stöðugs stjórnarfars undir forystu Vladimir Pútín, og hagstæðrar verðþróunar á olíuvörum. Þeir ráða yfir 395.000 manna fastaher auk 410.000 manna aukaliðs. Georgíuher telur 32.000 manns.
Rússar eiga 23.000 skriðdreka. Georgía 128. Rússar hafa einnig gríðarlega yfirburði þegar kemur að brynvörðum farartækjum.
Rússar eiga 26.000 fallbyssur. Georgía 109.
Georgía á átta orrustuþotur - Rússar 1.809.
Herþyrlur í eigu Rússa eru 1.932. Georgíumenn státa af 37 slíkum.
Ef það slær virkilega í harðbakkan og grípa verður til herkvaðningar, þá gætu Rússar valið úr 36,2 milljónum karlmanna og 37 milljóna kvenna á aldrinum 16 til 49 ára. Í Georgíu eru þessar tölur 1,1 milljón karla og 1,2 milljónir kvenna.
Kannski ekki furða þó Mikhail Saakasjvili forseti Georgíu hafi verið duglegur að sitja fyrir svörum á CNN í dag þar sem hann reynir að fá samúð, sitjandi með fána Georgíu og ESB í bakgrunni. Þjóð hans þarf greinilega nauðsynlega á hjálp Vesturlanda að halda.
Spurning hvort hún stendur til boða?
Þetta er púðurtunna.
Heimsendir um helgina?
Þegar stór er spurt....
Norska stórblaðið Aftenposten greinir frá því á vef sínum að í dag hefjist fyrstu prófanir á svokölluðum öreindahraðli við Evrópsku öreindarannsóknastofnunina CERN. Hún er á landamærum Sviss og Frakklands. Þarna er búið að grafa 27 kílómetra löng neðanjarðargöng (sjá mynd fyrir ofan). Þar á að búa til aðstæður sem líkja eftir því sem voru þegar Stóri hvellur varð og heimurinn varð til.
Þetta ku vera stærsta eðlisfræðitilraun sem gerð hefur verið.
Göngin hafa verið kæld nánast niður í alkul sem er mínus 273,15 gráður á Celsíus. Þá er allt frosið sem frysta má. Nú á að skjóta tveimur öreindageislum um þessi göng og láta þá mætast. Þá á eitthvað að gerast sem vísindamenn telji að veiti þeim mun meiri skiling á því hvernig heimurinn varð til.
Guð einn má vita hvað það er og ég sé ekki hvað okkur mannskepnurnar varðar um það.
Meira kann ég ekki frá þessu að segja, nema því að sá böggull fylgir þessu skammrifi, að svartsýnismenn telja að þetta fitl geti leitt til þess að heimurinn farist. Það er þá eitthvað á þá leið að þegar öreindageislarnir mætist á ofsahraða inni í göngunum leysist úr læðingi gríðarlega orka. Það verði skapað svarthol sem gleypir jörðina.
Game over.
Það væri svo sem eftir öðru á þessum síðustu og verstu tímum að mannkynið dræpi sig nú loks á einhverju bölvuðu fikti.
Hér er myndband sem bölsýnir gagnrýnendur tilraunarinnar hafa búið til sem á að sýna hvað gerst getur eftir að öreindahraðallinn verður settur í gang um helgina:
Góða helgi!
þriðjudagur, 29. júlí 2008
Kvótadýrðin: Brottkast í Norðursjó

Norski sjávarútvegsmiðillinn http://www.fiskaren.no/, birti í dag myndband sem norska strandgæslan tók af togara frá Hjaltlandseyjum við veiðar í Norðursjó nú um síðustu helgi.
Myndband þetta sýnir stórfellt brottkast á ufsa og þorski undir ákveðinni stærð. Eins og sjá má á myndunum þá er ekki um neinn smáfisk að ræða (smellið á mynd hér fyrir ofan).
Alls voru veidd 6,6 tonn. Af því fóru 5,2 tonn í sjóinn aftur. Átta tímum eftir að trollið var híft um borð, þegar búið var að flokka aflann um borð og hirða stærsta fiskinn.
Brottkast er löglegt innan Evrópusambandsins þar sem gáfumennin þar skilgreina slíkan verknað sem að "sleppa fiski á nýjan leik".
Svona myndir sýna svart á hvítu hvers konar glæpakerfi kvótabundnar bolfiskveiðar eru í raun.
Verðmætum fiski er hent í sjóinn vegna þess að það eru ekki til kvótar fyrir honum, eða kvótar svo dýrir að það borgi sig ekki að hirða fiskinn.
Þetta er stundað jöfnum höndum við Ísland og í Norðursjó.
Sjá frétt Fiskaren með því að smella hér.
föstudagur, 25. júlí 2008
Mel á landinu bláa
Sé í fjölmiðlum að meistari Mel Gibson er á landinu ásamt sonum sínum.
Það er gott mál og veri þeir hjartanlega velkomnir. Vonandi fá þeir að njóta veru sinnar hér og að fjölmiðlar og aðrir láti þá feðga í friði. Það er ekkert eins hallærislegt og þegar frægt fólk kemur til landsins og "papparassar" af ýmsum gerðum fara að abbast upp á það. Blessunarlega höfum við að mestu verið laus við slíkt hér á landi.
Mel Gibson er einn af mínum uppáhalds leikurum og kvikmyndagerðarmönnum. Hann komið að mörgum myndum, þar sem undirtónninn er frelsið og fullveldið, - baráttan og fórnir sem stundum þarf að færa fyrir því. Hér undir eru nokkur eftirminnileg myndskeið.
- Flottasta ræða kvikmyndasögunnar, orrusturæðan fyrir Stirlingbardaga í myndinni Braveheart:
- Önnur ræða, í þetta sinn úr We were soldiers:
- Klippur úr myndinni The Patriot, þar sem Heath Ledger heitinn kom einna fyrst fram á sjónarsviðið:
- Og síðast úr Uppreisninni á Bounty þar sem hann í hlutverki Fletcher Christian stýrimanns, reynir að koma vitinu fyrir Bligh skipstjóra (Anthony Hopkins). Sá þessa mynd sem gerð var 1984, síðast í fyrrakvöld. Hún er mjög góð eins og flestar myndir sem Mel Gibson kemur nálægt:
fimmtudagur, 24. júlí 2008
Höfðingjar hafsins í ríki náttúrunnar

Fréttaskeyti dagsins greina frá því að hópur háhyrninga hafi gætt sér á hrefnu að forviða ferðamönnum ásjáandi úti á Skjálfandaflóa norður.
Þetta er gangur lífsins í Íshafinu.
Að éta og verða étinn.
Nú á dögunum var að koma út bók sem fæst í öllum betri bókaverslunum landins og víðar, geri ég ráð fyrir. Þetta er vegleg ljósmyndabók um hvala- og náttúruskoðun úti á sjó umhverfis Ísland. Fjallað er um þetta út frá hvalaborginni Reykjavík, hvalaparadísinni Ólafsvík, hvalafirðinum Eyjafirði, hvalamiðstöðinni Húsavík og hvalaeyjunum Vestmannaeyjum. Þarna eru manneskjur, fiskar, fuglar, hvalir og selir. Mikill fjöldi ljósmynda af þessu öllu sem teknar eru á þessum stöðum og á hafi úti í nágrenni þeirra.
Mér hlotnaðist sá heiður að fá að skrifa texta þessarar bókar. Snillingurinn Friðþjófur Helgason tók ljósmyndir. Þegar bókin er skoðuð þá sést vel hve stórkostleg náttúra landsins er séð á hafi úti. Hvalaskoðun er svo sannarlega einstök upplifun fyrir það fólk sem nýtur hennar. Það veit ég sjálfur eftir að hafa margoft hitt þessi stórkostlegu dýr á hafi út.
Bókin er líka gefin út í enskri þýðingu og heitir þá "Grandees of the Ocean".
Í lokaorðum að inngangi hennar segir:
"Þessi bók leitast við að fanga þessa miklu sinfóníu náttúrunnar þar sem hvalirnir leika aðalhlutverk en aldrei einleik. Við erum öll hluti af einni stórri heild sem er náttúran og lífið sjálft."
Þegar ég fletti henni, þá er ég ekki frá því að það hafi tekst að fanga einmitt það sem við ætluðum.
Og það voru ekki hvalir.
Hér eru meiri upplýsingar um bókina.
miðvikudagur, 23. júlí 2008
Sumir segja það hreint út
"....it's your pension fund!"
Þetta áhugaverða viðtal er ekki lakari fréttaskýring en hver önnur nú á þessum síðustu og verstu tímum:
mánudagur, 21. júlí 2008
Innlegg í umræðuna
Það má hafa lúmskt gaman af því að nú eru menn allt í einu komnir í hár saman út af tveimur íslenskum tónlistarmanneskjum hér á Eyjunni.
Síðan er Bruce Springsteen dreginn inn í þetta.
Og meira að segja Frjálslyndi flokkurinn líka!
Og allt fer á hvolf.
Ég ætla svo sem ekki að blanda mér í þennan debatt, þó ég vilji samt taka undir það sem Egill Helgason bendir á varðandi það að venjulegt alþýðufólk og hefðbundir vinstri flokkar á Íslandi eigi ekki samleið lengur. Það hef ég svo sem oft bent á.
En nú langar mig til að skella einu myndbandi á fóninn.
Það er með mínum manni; Bruce Springsteen.
Fyrir nokkrum dögum sýndi ég hér upptökur með ungu hæfileikafólki "The Wrong Trousers" frá Californíu USA.
Hér er annað talent að stíga sín fyrstu skref.
Og þvílík skref.
Brúsi, 23 ára gamall stráklingur frá New Jersey USA.
Haldið ykkur fast.
Árið er 1972:
laugardagur, 19. júlí 2008
Sagan endurtekur sig (alltaf?)
Dad believed what Maggie said
Get a mortgage buy a home
So dad took out a great big loan
For a while there we were chuffed
Now the market has collapsed
And we're absolutely stuffed
Our house, in the middle of a slump
Our house, no one wants to buy this dump
Dad is desperate to sell
But now our homes worth even less
Than a pension from Maxwell
Our living room's a mess
Full of magistrates and bailiffs
Trying to repossess
Our house, in the middle of the boom
Our house, it was worth a small fortune
Our house, left us in a dreadful state
Our house, why the hell'd we decorate
We really caught a cold
Nowhere we can go to now
All the council houses have been sold
Our dad's taken some stick
He's still voting Tory though
By God he must be thick
Our house, didn't work out like we planned
Our house, prices dropped by fifty grand
Our house, threw us out and changed the locks
Our house, it is now a cardboard box
föstudagur, 18. júlí 2008
miðvikudagur, 16. júlí 2008
Sumarskonrokk - Vitlausu buxurnar
Það er sumar og hálfgert bloggfrí.
- En - leyfist mér að kynna?
Tríóið The Wrong Trousers er eitt af þessum sjaldgæfu nýsköpunartilfellum í tónlistinni sem fá mann til að sperra eyrun, glenna upp augun og hugsa:
Vá! Þvílík talent!
Vonandi ná þau langt eins og þau eiga skilið:
Og ef ykkur líkaði þetta, þá skulið þið sjá þetta - þau eru æðisleg:
Ef þið farið inn á www.youtube.com og sláið inn The Wrong Trousers þá finnið þið meira efni með þeim.
Hér er MySpace síðan þeirra.
fimmtudagur, 3. júlí 2008
Írskir dagar á Akranesi
Írskir dagar eru haldnir á Akranesi um helgina.
Þeim er þjófstartað í kvöld og svo fer allt á fulla ferð á morgun.
Þetta er mikil og frábær fjölskylduhátíð sem enginn er svikinn af að heimsækja.
Með því að smella hér má sjá dagkrána.
Sjálfur get ég ekki stillt mig um að rifja upp taktana hjá þessum snillingum hér. Þeir eru eflaust miður sín við tilhugsunina um að Íhaldið hafi rænt völdum á Skipaskaga.
En það stendur nú allt til bóta og styttist óðum í næstu sveitarstjórnarkosningar.
Og er ég svo farinn á Írska daga:
laugardagur, 28. júní 2008
Þegar stórt er spurt
Rétt rúmu ári eftir kosningar spyr Guðmundur Steingrímsson forviða í Fréttablaðinu; - hvað sé að gerast?
Ég get svarað því.
Það er ekkert annað að gerast en það að Guðmundur og mörg, mörg fleiri eru nú að fatta að þau voru blekkt og höfð að fíflum í síðustu kosningum.
Guðmundur var til að mynda nytsamur sakleysingi:
1. Sonur pabba síns
+
2. Sonarsonur afa síns
=
Fínn til að nota sem listaskraut í framboði.
Klækjarefir í forystusveit Samfylkingarinnar stóðu fyrir þessu og þetta skilaði þeim í ríkisstjórn.
Sorrí.....
(Það er bæði töff og fyndið að spila þessi tvö myndbönd samtímis ofan í hvert annað:)
föstudagur, 27. júní 2008
Hverjir eru "helstu hagfræðingar"?
Í gær mátti lesa frétt þess efnis hér á vef Skessuhorns að fulltrúar á vegum bæjarins hefðu undirritað kaupsamning að nýju húsnæði fyrir bókasafn á Akranesi fyrir rétt tæpar 300 milljónir króna af sameiginlegum sjóðum bæjarbúa.
Þarna er haft eftir gáfumenninu Gísla S.Einarsyni bæjarstjóra Akraness að; “Þrátt fyrir efnahagsástandið vildu menn halda áfram og ljúka uppbyggingu bókasafns með stæl. Helstu hagfræðingar telja það óskynsamlegt að ríki og sveitarfélög dragi saman seglin eins og nú árar og Akranes ætlar ekki að gera það.”
Ég staldraði hugsi við þessa tilvitnun enda nýbúinn að lesa frétt af bókun sem gerð var í Borgarráði Reykjavíkur í gær þar sem ráðið "lýsi áhyggjum sínum yfir breyttum efnahagshorfum sem þegar hafi haft mikil áhrif á verðbólgu og atvinnuástand og muni auka útgjöld borgarinnar og lækka tekjur. Mikilvægt sé nú að fara vel yfir allar áætlanir borgarinnar í þessu ljósi til að geta mætt þessum breyttu aðstæðum".
Eins og sjá má í þessari frétt á visir.is þá telur hagfræðingur Reykjavíkurborgar augljóst að kreppa sé framundan í landinu. Auðsýnt sé að tekjur borgarinnar muni dragast verulega saman. Nú hlýtur að vera ljóst að hagfræðing Reykjavíkurborgar er ekki að finna í safni bæjarstjórans á Akranesi yfir "helstu hagfræðinga" þjóðarinnar, enda rímar stöðumat Reykjavíkurhagfræðingsins illa við veruleikaskyn Gísla S. Einarssonar og nýfenginna "félaga" hans í Sjálfstæðisflokknum á Akranesi.
Bæjarbúar á Skaga hljóta að eiga heimtingu á að fá að vita hvaða hagfræðingar hér á landi hafi lætt því að meirihluta bæjarstjórnar, að nú ári vel fyrir skuldsett sveitarfélag að gefa allt í botn í framkvæmdum fyrir marga hundruði milljóna? Og það á tímum þegar þjóðin í boði Íhaldsins stendur frammi fyrir því sem getur orðið versta efnahagskreppa í sögu lýðveldisins með tilheyrandi samdrætti, atvinnu- og tekumissi, ekki síst fyrir sveitarfélög eins og Akranes sem þó má alls ekki við slíku. Kreppu sem bara hríðversnar dag frá degi.
Nú ætla ég ekki að draga úr því að það er aðkallandi að lausnir finnist á húsnæðismálum fyrir bókasafnið á Akranesi, enda tók ég virkan þátt í stefnumótun varðandi það sem formaður menningarmála- og safnanefndar bæjarins. Það var áður en dimm ský dró að fullu fyrir sólu í efnahagsmálum þjóðarinnar. Kjörnir fulltrúar hljóta að haga framkvæmdaseglum eftir vindi í fjármálahorfum bæjarfélagsins. Bæjarsjóður er enginn spilakassi þó Karen Jónsdóttir formaður bæjarráðs í tali sínu um lottóvinninga til ótilgreindra verkefna óvikomandi skyldum Akraness sem sveitarfélags, sé greinilega þeirrar skoðunar.
Ég spyr: Hefur núverandi meirihluti bæjarstjórnar Akraness, látið fara fram einhverja endurskoðun á fjármálum bæjarins og horfum þar um, í ljósi þeirrar kreppu sem flokkur þeirra hefur með vanstjórn og vitlausum ákvörðunum kallað yfir þjóðina? Er þess að vænta að fram fari endurmat, svipað því og hagfræðingur Reykjavíkurborgar hefur gert og lagt var fyrir borgarráð í gær? Eða lýtur fjárhagur og rekstur Akranesbæjar einhverjum öðrum lögmálum en rekstur Reykjavíkurborgar?
Ég tel að nú beri að staldra við og endurmeta stöðuna varðandi rekstraráform og framkvæmdir Akranesbæjar. Var til að mynda skoðaður sá möguleiki að hætta við nýbyggingu fyrir bókasafn að Dalbraut 1? Í staðinn hefði kannski mátt reyna að fá bókaverslun Eymundsson til að færa sig um set í annað tómt húsnæði innan þessa verslunarkjarna og ná þannig fram rými fyrir bókasafn í tveimur hlutum sem nú standa tómir og þeim hluta sem nú hýsir bókaverslunina. Þannig hefði tekist að leysa húsnæðisvanda bókasafnsins með því að nýta rými sem nú stendur tómt. Ég skal ekki segja til um hvað þetta hefði kostað, en velti því fyrir mér hvort svona möguleiki hafi yfir höfu verið skoðaður áður en ákveðið var að dæla út 300 milljónum úr bæjarsjóð í þetta verkefni sem á að vera fullgreitt fyrir í febrúar næstkomandi.
En það eru svo sem mörg tilefnin til að doka við embættisfærslur á vegum Akraneskaupstaðar þessa dagana. Fráleitt er að þetta greinarkorn sé það síðasta sem ég sendi frá mér um það pólitíska fjölleikahús sem þrífst við Stillholt þar sem aðal trúðurinn gegnir nafninu Gísli.
--------------
PS:
Læt flakka með myndband sem sýnir Geir H. Haarde hagfræðing og forsætisráherra syngja "Lóa litla á Brú". Þetta á eitthvað svo vel við í dag þegar úrvalsvísitalan í Kauphöllinni náði nýjum og óþekktum botni. Sem fjármálaráðherra, forstætisráðherra og fleira í mörg, mörg ár þá er Geir H. Haarde maðurinn sem ber ábyrgð á ástandinu.
Geir er örugglega verri hagfræðingur en söngvari....
Syngjum við með?:
Og síðan saga þeirra varð sögu margra lík.
Þau áttu börn og buru og þau búa í Reykjavík.
Hann vinnur eins og hestur og hún hefur sjaldan frí,
því Lóa þarf að fá sér fötin ný.
Lóóóooógaaa litla á Brú, hún er lagleg enn.......
laugardagur, 21. júní 2008
Af útreið og útreiðartúrum
"Þegar litið er til þessa fyrsta árs Ingibjargar Sólrúnar í stóli utanríkis- og varnarmálaráðherra má ljóst vera að hún hefur engan áhuga á að framfylgja stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, dugleysi hennar stendur landinu fyrir þrifum og dugnaðurinn er því til óþurftar. Þegar kemur að samskiptum við umheiminn vill hún ekki segja þrjótunum til syndanna, en aðrar yfirlýsingar hafa reynst þjóðinni til skaða. Til hvers er hún þá?"
Þetta eru lokaorðin í ítarlegum pistli sem Andrés Magnússon birtir á Moggablogginu. Titillinn er "Utanríkisráðherra er ekki vandanum vaxinn". Þessi pistill er leiftrandi uppgjör Sjálfstæðismannsins við utanríkisráðherra og formann Samfylkingar, eftir að sú síðarnefnda hefur setið eitt ár í embætti.
Ég minnist þess ekki að nokkur ráðherra hafi fengið aðra eins útreið í langan tíma.
Sjón er sögu ríkari. Ég leyfi mér að benda á pistil Andrésar sem má lesa með því að smella hér.
Annars er ljósmyndin hér fyrir ofan tekin af "málverki" (eftir hvern?), sem birtist í lok áróðursmyndbands Samfylkingarinnar sem finna má á You Tube og lagt var út 5. maí 2007, í aðdraganda síðustu alþingiskosninga fyrir rúmu ári.
Þarna situr núverandi utanríkisráðherra Íslands í útreiðartúr á baki Bandaríkjaforseta og hýðir hann með svipu.
Maður er nú ýmsu vanur, en ég hrökk í kút þegar ég sá þetta í fyrsta sinn nú áðan. Skyldu bandarísk stjórnvöld hafa séð þetta?
Myndbandið er annars samhangandi áróður gegn hinu "illa afli" Sjálfstæðisflokknum, m. a. spilað undir laginu úr mafíubíómyndunum um Guðföðurinn.
Myndbandið er í raun grátbroslegt nú í ljósi þess hvað liggur eftir Samfylkinguna eftir eitt ár í ríkisstjórn með þessu "voðalega" stjórnmálafli.
Hefur nokkuð breyst; - nema þá til hins verra fyrir land og þjóð?:
föstudagur, 20. júní 2008
Grátt ofaní svart
Þá hefur Nicolas Sarkozy forseti Frakka kveðið upp úr um að það komi ekki til greina að fleiri löndum verði bætt inn í Evrópusambandið fyrst Lissabon sáttmálinn er í uppnámi eftir að Írar felldu hann á dögunum. Angela Merkel kanslari þýskra er sammála.
Við eigum nú að hætta að eyða dýrmætum tíma og orku í að einblína á og rífast um inngöngu í Evrópusambandið. Í staðinn einbeita okkur að því að takast á við okkar eigin vandamál á okkar eigin forsendum.
Og það liggur á.
Ég hef miklar áhyggjur af því að stjórnmálamenn sem með mistökum sínum bera ábyrgð á núverandi ástandi, séu allsendis ófærir til að takast á við vandamálin með þeirri einbeitningu sem þarf til. Þeir eru þjakaðir af fortíðinni. Hér er fyrst og fremst um að ræða ráðherra Sjálfstæðisflokksins. Þau þora ekkert að gera, því þau eru svo hrædd við að þurfa með því að viðurkenna að þau hafi gert mistök - að þau hafi haft rangt fyrir sér.
Og hvernig er hægt að treysta Samfylkingunni sem er með Evrópusambandsaðild á heilanum og sér ekkert annað til lausnar í núverandi stöðu en að Ísland skríði þar inn? En nú er morgunljóst að það verður ekki næstu misserin þar sem allt er að fara í háaloft innan sambandsins.
Og svo er það augljóst að traust Sjálfstæðismanna á Samfylkingunni er ekki mikið. Og fyrirlitning Samfylkingarfólks á Sjálfstæðisfólki er alþekkt og þarf ekki að fletta í mörgum greina- og bloggsöfnum til að fá það skjalfest. Þetta hugarþel hefur reyndar verið endurgoldið hjartanlega af Sjálfstæðisfólki gegnum árin.
Ég hef aldrei getað botnað í því að þessi tveir flokkar færu saman í ríkisstórn.
Við stöndum frammi fyrir þeirri nöturlegu staðreynd að þrátt fyrir að ríkisstjórnarmeirihlutinn á Alþingi hafi sjaldan eða aldrei verið jafn yfirgnæfandi, þá verður að gera langa leit að ríkisstjórn sem hefur verið jafn farlama til aðgerða og sú sem nú situr. Plaggið varðandi íbúðamálin sem kom fram í gær er alltof seint lagt fram, og það er alltof óskýrt. Og það hefði þurft að gera miklu meira. Eins og að afnema stimpilgjöld, og koma með útfærslur varðandi gjaldtöku til lækkunar á eldsneytisverði, sem forsætisráðherra minntist varfærnislega á í snautlegri 17. júní ræðu sinni.
Við verðum sem allra fyrst að leita allra mögulegra leiða til að auka gjaldeyristekjur þjóðarbúsins. Þau hefðu átt að fara að tillögum okkar í Frjálslynda flokknum og taka upp 220 þúsund tonna jafnstöðuafla í þorski næstu þrjú árin.
Einhvern veginn finnst mér að fálmið í gær sýni í raun að nú er alvöru stjórnarkreppa á Íslandi. Ríkisstjórninni er hvergi að takast að sýna með aðgerðum þá forystu sem þarf til að telja kjarkinn í fólkið í landinu, sem er full þörf á að gera því það er löngu ljóst að nú fara í hönd erfiðir tímar.
Stjórnarkreppan bætist við efnahagskreppuna sem nú er óðum að skella eins og Tsunami flóðbylgja á þjóðinni.
Dökkgráu er bætt ofan í svart.
fimmtudagur, 19. júní 2008
Dáðleysi og ráðleysi mannréttindabrjóta
Á sjálfan þjóðhátíðardaginn, 17. júní, opinberaðist með átakanlegum hætti hversu ráðlaus, dáðlaus og ósamstíga þessi ríkisstjórn er.
Á sama tíma og umhverfisráðherrann stundaði millilandaflug frá Ósló og einkaflug frá Reykjavík til að komast á ísbjarnarveiðar í Skagafirði, þá stóð forsætisráðherrann á Austurvelli og hélt ræðu þar sem hann hvatti þjóðina til aðhalds. Hann talaði um gróðurhúsaáhrif og þann ávinning sem myndi vinnast ef þessi örþjóð við ysta haf drægi nú úr bílanotkun sinni.
Mér fannst sláandi að hann sagði ekki neitt sem gat verið til þess fallið að telja kjarkinn í þjóðina. Það er ekki nóg hjá forsætisráðherra að fara í ræðustól á Austurvelli og lýsa því yfir að nú sé komin kreppa. Hann verður líka að segja eitthvað um það hvernig RÍKISSTJÓRNIN ætli að taka á málunum.
Það er eins og ráðherrar þessarar ríkisstjórnar séu ekki í neinum tengslum við almenning í þessu landi. Einhvern veginn var það svo lýsandi fyrir ástandið að á meðan Geir stóð í ræðustólnum og hélt ræðuna sína þá veifuðu íslenskir sjómenn mótmælaspjöldum í bakgrunni. Hefði Geir snúið sér við þá hefði hann sjálfsagt ekkert botnað í þeim dónaskap að fólk væri að mótmæla.
En Geir snéri sér ekki við, enda var hann með fyrirfram skrifaða og lesna ræðu. Hann þurfti að fylgja innihaldsrýru handriti.
The show must go on.
Á meðan forsætisráðherrann stóð og sagði fátt eða ekkert bitastætt, þá gátu áhorfendur sem fylgdust með í sjónvarpi lesið þetta yfir höfði hans (sjá mynd); "Ríkisstjórnin brýtur mannréttindi - Vér mótmælum allir".
Tilefnið var að sjálfsögðu innantómt svar ríkisstjórnarinnar við úrskurði mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna um kvótakerfið. Þarna voru á ferðinni sjómennirnir tveir sem sendu kæru til mannréttindanefndarinnar, þeir Örn Sveinsson og Erlingur Sveinn Haraldsson. Menn sem eiga sér enga aðra ósk en þá að fá að stunda sinn atvinnurekstur í sinni heimabyggð. Láta gott af sér leiða fyrir land og þjóð, og afla dýrmætra gjaldeyristekna með því að nýta náttúruauðlindina í hafinu.
En þeir fá ekki frið eða möguleika til þess - fyrir fólkinu og flokkunum sem nú skipa ríkisstjórn.
Og hinn efnahagslegi kjarnorkuvetur nálgast hratt.
miðvikudagur, 18. júní 2008
Bensínblús
Þessi gæji hér fyrir ofan virðist vita ýmislegt um bensínverð víðs vegar um heiminn.
Miðað við það sem hann segir þá er dýrastur dropinn í heimi reyndar í Noregi!
8,73 per gallon.
En við fylgjum fast á eftir.
8,28 per gallon.
Ódýrast er það hjá Húgó Chavez í Venezúela - 12 sent per gallon....
Hverjir eru að græða á okkur?
------
Forsætisráðherrann flutti sína 17. júní ræðu í gær. Hann sagði meðal annars:
"Við verðum nú sem þjóð að bregðast við hinum gríðarlegu hækkunum á innfluttu eldsneyti. Eina leiðin í því efni, sem skilar varanlegum árangri, er að draga úr notkuninni með minni akstri og betri nýtingu, notkun sparneytnari ökutækja, tilflutningi yfir í aðra orkugjafa o.s.frv. Við eigum ýmissa kosta völ í þeim efnum.
Nauðsynlegt er að efla fræðslu um svokallaðan vistakstur. Skynsamlegt gæti einnig verið að breyta fyrirkomulagi gjaldtöku af ökutækjum og eldsneyti í þessu skyni en einnig til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Farartæki sem knúin eru með óhefðbundnum orkugjöfum njóta þegar skattalegra ívilnana.
Ég hvet almenning til að skoða vandlega allar færar leiðir í þessum efnum. Þjóðin verður að breyta neyslumynstri sínu og framlag hvers og eins skiptir máli, bæði fyrir viðkomandi einstakling en einnig heildina".
Þýðir þetta ekki að ráðherrabílunum sem flestir eru þungir jeppar, verði nú lagt og minni farartæki tekin upp í staðinn?
Sýna gott fordæmi og svoleiðis?
------
Annars finnst mér að það ætti að gera alla strætisvagna alveg gjaldfrjálsa ekki seinna en strax. Sömuleiðis fjölga vögnum og ferðum milli staða. Fá fólk á höfuðborgarsvæðinu til að draga úr akstri einkabíla. Nota strætó í staðinn. Við myndum spara stórfé. Mengun á höfuðborgarsvæðinu yrði væntanlega minni - það er að segja ef þetta tækist vel og fólk legði bílunum.
Hafi einhvern tímann verið lag til að kenna fólki að nota strætó - þá er það nú.
Og auðvitað ætti fyrir löngu að vera búið að mæta kreppunni með því að breyta gjaldtöku og álagningarmálum tengdum ökutækjum og eldsneyti.
En mér finnst einhvern veginn eins og ríkisstjórnin þjáist af verkfælni á öllum sviðum.
Er ég einn með þá tilfinningu?
þriðjudagur, 17. júní 2008
Kill Teddy Vol. 2
Enn bætist í safn náttúrufræðimyndbanda Samfylkingarinnar undir safnheitinu "Fagra Ísland".
Nú síðast er það bjarndýr sem samkvæmt eðlisávísun hopar undan til sjávar og er þá fellt.
Veit ekki hvað menn óttuðust í þetta sinn. Síðast var það að týna dýrinu í þoku. Hvað var það nú? Að dýrið myndi kafa og koma upp við bryggjusporðinn á Sauðárkróki?
En landkynningin er góð - eða hitt þó heldur.
Bjútífúl Æsland.
mánudagur, 16. júní 2008
Allt-í-plati Björgvin mætir Birni

Það kemur svo sem ekki á óvart að nú skuli annar ísbjörn hafa fundist á Skaga. Þeir fara oft um fleiri en einn á svipuðum slóðum.
Þetta gæti verið bróðir, systir eða móðir hins sem felldur var á dögunum á ábyrgð umhverfisráðherra Samfylkingarinnar - eflaust til dýrðar umhverfisstefnunni Fagra Ísland.
Reyndar var leitað að öðrum hvítabirni eftir það víg, en ekkert sást.
En nú er hann fundinn við þá saklausu iðju að stela eggjum og leggjast síðan til svefns.
Í náttúru Íslands, sem er líka náttúra ísbjarna - hvort sem Samfylkingunni og Sjálfstæðisflokk líkar betur eða verr.
Vonandi lendum við ekki í að gera sömu mistökin og síðast. Þau voru hrikaleg PR katastrófa fyrir Ísland og ófyrirgefanlegur smánarblettur í umhverfismálum, enda hefur umhverfisráðherra Samfylkingarinnar ekki borið sitt barr síðan. Reyndar sýndist mér í einhverri frétt áðan að settur umhverfisráðherra í afleysingum nú sé Björgvin G. Sigurðsson.
Það er sami Björgvin og aldrei ætlaði að sjá Samfylkinguna verða hækju Íhaldsins, samanber þetta hér. En það var fyrir síðustu kosningar, þegar núverandi umhverfisráðherra í afleysingum skrifaði lærðar greinar um "flokk skræpótta fuglsins" og hampaði sér og sínum fyrir geysilega vistvæna umhverfisstefnu.
Er ég sá eini sem sér kaldhæðnina í því að þessi allt-í-plati ráðherra ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar sem um daginn tók svo fyrstu skóflustungu að nýju álveri í Helguvík, - skuli nú vera á vakt þegar nýr ísbjörn finnst norður í landi?
En nú er ekki um annað að ræða en að flytja dýrið lifandi aftur til síns heima. Embættisfólk umhverfisráðherra og ráðherrann sjálfur sem sóru svo sárt við og lögðu um daginn að engin ráð hefðu verið önnur en að drepa björninn, hljóta að hafa nýtt tímann síðan þá og hugsað út áætlun og unnið undirbúningsvinnu ef ske kynni að fleiri birnir fyndust.
Hér eru tillögur sem ég setti fram 3. júní síðastliðinn:
Svona hefði mátt gera þetta:
1. Það átti að loka fyrir alla umferð almennings og gæta þess að ekki kæmist styggð eða hræðsla að dýrinu sem var alveg rólegt í upphafi.
2. Það átti að vera hægt að leggja út æti og þannig gefa birninum að éta, dópa hann niður og flytja á brott.
3. Ein af þyrlum Gæslunnar hefði getað tekið hann í neti niður á þjóðveginn.
4. Þar hefði mátt bíða með kassa, gám eða öflugt trébúr sem röskir smiðir hefðu sett saman í dag niður á Sauðárkróki.
5. Dýrið flutt á bíl til hafnar á Skagaströnd eða Sauðárkróki.
6. Þar um borð í fiskibát og sigla svo með bjössa norður að hafísröndinni og sleppa honum lausum þar.
------------
Hér fyrir ofan er nýjasta ískortið sem finna má á vef Veðurstofunnar (smellið á til að sjá stærra). Það er þriggja daga gamalt. Eins og sjá má er ísröndin nokkuð skammt undan Vestfjörðum og að hluta innan miðlínu Íslands og Grænlands.
sunnudagur, 15. júní 2008
Hvert stefnir Írland?
Á föstudag gerði írska þjóðin eigin stjórnmálamönnum, eigin fjölmiðlavitrungum, og stjórnsýsluaðli Evrópusambandsins þann leiða grikk að fella Lissabonsáttmálann svokallaða í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Þessi niðurstaða hefur líka valdið íslenskum Evrópusambandssinnum sárum vonbrigðum sem einkum koma fram í vandræðalegri þögn.
Það sem ég hef verið að reyna er að öðlast einhvern skiling á, hvers vegna þjóðaratvæðagreiðslan fór svona á föstudag? Getur það verið að Írar séu hreinlega ekki jafn hamingjusamir innan ESB og íslenskir aðdáendur sambandsins hafa viljað vera láta í gengdarlausum áróðri sínum? Hvernig stendur á því að svona gjá er milli írsks almennings annars vegar og síðan hinna svokölluðu kjaftastétta hins vegar - gjá sem minnir á þá sem er hér á landi....?
Fljótlega fann ég sjónvarpsþætti sem írski fjölmiðlamaðurinn og samfélagsrýnirinn David McWilliams hefur gert (maðurinn á myndinni). Þeir hafa verið sýndir í írska ríkissjónvarpinu og unnið til verðlauna. Eflaust vakið mikla athygli. David McWilliams hefur líka skrifað bækur. Hann á að baki feril sem bankamaður áður en hann söðlaði um og gerðist skríbent. Í verkum sínum (a. m. k. þeim sem ég hef verið að skoða síðustu daga) hefur hann einkum beint sjónum sínum að írsku samfélagi, stöðu þess og möguleikum til framtíðar.
David er sannfærður um að land hans standi á sögulegum tímamótum. Þjóðin verði nú að hafa hugrekki til nýrra hugsana og taka réttar ákvarðanir. Þetta viðh0rf hans kemur skýrt fram í fyrstu greininni sem hann skrifaði nú um helgina eftir að niðurstaða lá fyrir úr þjóðaratkvæðagreiðslunni nú á fimmtudag.
Hann spyr líka þeirrar grundvallarspurningar hvort írska þjóðin geti treyst þeim stjórnmálamönnum sem hafa klúðrað efnahagslífi landsins og nú síðast atkvæðagreiðslunni um Lissabon sáttmálann, til að finna þessar lausnir og einbeita sér að því að leiða þjóðina til þeirra í náinni framtíð?
Góð spurning - mætti spyrja svipaðrar hér á landi. Getum við treyst mönnum eins og Geir Haarde, Árna Mathiesen og Einari K. Guðfinnssyni til að stjórna okkur upp úr því klúðri sem nú er orðið í íslenskum efnahags- og atvinnulífsmálum og þeir bera höfuðábyrgð á sem forsætis-, fjármála- og sjávarútvegráðherrar margra undanfarinna ára? (Mitt svar er: NEI).
Í þáttum sínum og skrifum bendir McWilliams á að írska efnahagsundrið sem svo er kallað hafi í raun að mestu verið byggt á sandi. Hagkerfið hafi verið knúið áfram á ódýru lánsfé utan frá, mikil fasteignabóla hafi verið búin til, neyslan farið úr böndunum, ódýrt vinnuafl hafi flætt inn í landið erlendis frá og svo framvegis.
Nú er veislunni lokið. Loftið lekur hratt úr blöðrunni. Vextir hækka, dýrtíð og atvinnuleysi eykst. Írar eru ein skuldugasta þjóð í heimi og hafa í raun lifað á risastórum yfirdrætti í mörg ár. Nú hafa Írar uppgötvað að þeir er í raun ofurseldir Evrópusambandinu og stóru þjóðunum innan þess og hafi því takmarkaða möguleika til að ráða sinni framtíð í stöðunni sem nú er komin upp.
Minnir að sumu leyti á Ísland, ekki satt?
David McWilliams telur þó ekki að allar bjargir séu Írum bannaðar. Hann skýtur ekki loku fyrir þann möguleika að Írar segi sig nú úr Evrópusambandinu. Þetta til að ná sterkari stöðu sem smáþjóð sem hafi í raun mikla möguleika til að spjara sig sjálf í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi óháð því hvað blokk eins og Evrópusambandið hyggist fyrir.
Boðskapur hans er einfaldur. Írar eigi fyrst og fremst að vinna úr sínum eigin málum á eigin forsendum og með eigin hugviti og mannauð. Stjórnmálamenn setji langtíma markmið þar sem hagsmunir Írlands séu ávallt í fyrirrúmi. Ekki sé tryggt á neinn hátt að Evrópusambandið kannski með 30 ríki innan sinna vébanda muni hugsa eitthvað sérstaklega um hagsmuni smáþjóðarinnar Írlands í framtíðinni, og örugglega ekki nú þegar kreppir að í fjármálum heimsins.
Ég minnist þess ekki í annan tíma að hafa séð áhrifameiri, skemmtilegri og betur unna þætti um samfélagsmál, en þessa sjónvarpsþætti David McWilliams. Ég hvet ykkur öll sem hafið áhuga á þessum málum að horfa á þá (og gildir þá einu hvaða skoðanir þið hafið annars í pólitík).
Til dæmis byrja á að skoða fyrsta myndskeiðið úr "In Search of the Pope´s Children" og svo það síðasta með lokaorðunum.
Þarna er mikið af efni sem hægt er að draga lærdóm af - og þessi þættir eru eiginlega slík snilldar uppspretta upplýsinga, viðhorfa og hugmynda að maður horfir hugsi á þá aftur og aftur.
Smellið hér til að sjá þættina.
laugardagur, 14. júní 2008
Þess vegna sögu Írar nei
Áróðursmantran um að "'Írar eigi allt Evrópusambandinu að þakka" sem fylgismenn Evrópusambandsins þylja í sífellu hér á landi stenst ekki.
Það er svo langt í frá að Írar séu sammála.
Þessi náungi, David McWilliam er mjög snjall, reynar alveg frábær í greiningu sinni á ástandinu í Írlandi.
Horfið á þetta. Ótrúlega margt er líkt með okkur og Írum.
Ég á eftir að fjalla meira um þetta:
föstudagur, 13. júní 2008
Til hamingju, Írland
Það er eflaust óhætt að gleðjast með írsku þjóðinni.
Nú er búið að telja rúmlega fjórðung atkvæða í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Lissabon sáttmála Evrópusambandsins. Staðan er 45,4 % JÁ, og 54,6% NEI!
Svona á svipuðu róli og þetta hefur þetta verið frá því fyrstu tölur bárust.
Hinn almenni írski borgari hefur veitt hrokafullum stjórnmálamönnum sem eru úr takti við sitt eigið fólk ærlega ráðningu. Um leið er þetta áfellisdómur yfir stjórnmálum innan Evrópusambandsins - Írland er eina landið innan ESB sem lagði í þjóðaratkvæðagreiðslu um sáttmálann.
Eftir nokkrar vikur halda Akurnesingar svokallaða írska daga. Bæjarstjórnin á Akranesi gæti lært sitt hvað um íbúalýðræði af Írum. Þannig borið deilumál sem koma upp á kjörtímabilum og hafa ekki verið rædd í aðdraganda kosninga upp í atkvæðagreiðslu, þar sem fólkið fær að segja sitt með lýðræðislegum hætti. En þetta eru sömu hérarnir í stjórnsýsluhúsinu við Stillholt og kúra í holum sínum í byggingum ESB í Brussel.
En ég óska Írum innilega til hamingju með að hafa afstýrt ógæfu frá sínum ströndum.
Írar vita hvað orðin sjálfstæði og fullveldi þýða.
Hér efst er kosningaveggspjald úr baráttunni nú.
Ég bæti við einni góðri ræðu úr bíómyndinni um sjálfstæðishetjuna Michael Collins ("That weapon is our refusal!").
Síðan hinum fallega þjóðsöngi Íra:
PS. Munið að kjósa ALLS EKKI Samfylkinguna í næstu kosningum. Sá flokkur vill leiða yfir okkur Íslendinga sömu ógæfu og írska þjóðin hafnaði í gær.
Hrikaleg spenna: Horfum til Íra
Það er ótrúlega spennandi að bíða og sjá hvernig atkvæðagreiðslan um Lissabon sáttmálann fer á Írlandi.
Vonandi sturta Írar þessu plaggi niður.
Fyrstu tölur eru farnar að berast. Hér er kosningasíða Irish Times sem lofar mjög góðu. Tölurnar eru uppörvandi. NEI hefur yfirhöndina.
Írar mega ekki hleypa þessu í gegn. Bara mega það ekki.....
Eitt lag á meðan við bíðum. The Foggy Dew - Eitt fallegasta kvæði og lag þessara merku frændþjóðar okkar sem á svo vel við á þessum degi. Hér í flutningi Sinead O'Connor og The Chieftains.
Right proudly high in Dublin town
Hung they out a flag of war.
'Twas better to die 'neath an Irish sky
Than at Suvla or Sud el Bar.
And from the plains of Royal Meath
Strong men came hurrying through;
While Brittania's Huns with their long-range guns
Sailed in through the foggy dew.
fimmtudagur, 12. júní 2008
Lissabon NEI, NEI, NEI
Í dag er ögurstund hjá frændum okkar Írum.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um hinn svokallaða Lissabon sáttmála Evrópusambandsins. Kosið til 10 í kvöld, talið á morgun og annað kvöld vitum við hvernig fór.
Spennandi.
Auknar líkur eru taldar á að meirihluti kjósenda segi NEI.
Stundum þarf pólitískan kjark til að segja NEI í staðinn fyrir JÁ. Ég veit ýmislegt um það.
En Írar hafa aldrei verið neinar gungur, og þeir hljóta að segja NEI við þessum samning sem er ekkert annað en fullkomið fullveldisafsal og stjórnarskrá Evrópusambandsríkisins í dulargerfi.
Írland er eina ESB landið þar sem íbúalýðræðið er virkjað og haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um Lissabon sáttmálann. Þó að 90 prósent kjörinna fulltrúa í stjórnmálaflokkum séu fylgjandi sáttmálanum þá er alþýðan ekki á sama máli. Og nú virðast hinir kjörnu fulltúar vera í þann veginn að fá vel verðskuldað spark í afturendann frá fólkinu. Þar með er allt í uppnámi á Brussel völlum.
Hér er ágæt frétt á Aftenposten, sem er skrifuð af fréttaritara blaðsins í London. Ég leyfi mér að endursegja og þýða beint úr henni:
"Meirihlutinn mun segja nei. Engum hefur tekist að útskýra fyrir fólki það þessi sáttmáli þýðir og því munu flestir kjósa nei. Að hluta til öryggisins vegna, og að hluta til sem mótmæli við þeim breytingum sem Evrópusambandsaðildin hefur þýtt fyrir landið mitt", - segir írski pípulagningarmaðurinn Anthony Kelly við Aftenposten.
Hann flutti til London árið 1985 þegar atvinnuleysi var landlægt á Írlandi. Hann segist aldrei ætla að flytja heim aftur því heimaland hans sé nú orðið óþekkjanlegt. Anthony ólst upp á vesturströnd Írlands og er þeirrar skoðunar að Evrópusambandið sé búið að eyðileggja hina hefbundnu menningu á þeim slóðum, meðal annars með því að valda því að settar hafa verið nýjar reglur um krár og danshallir.
"Áður fyrr hittist fólk alltaf á kránni að lokinni vinnu. Reykingabannið og og bann við því að keyra eftir að hafa fengið sér nokkra bjóra gerir það að verkum að fólk sittur aleitt heima og fær sér í glas. Þarna er dreifbýli og fólkið er háð bílnum.
"Þensla eftir að landið gekk í ESB olli því að allir tóku fullt af peningum að láni og nú þegar dregur saman situr fólk á kafi í skuldum og enginn getur selt dýru húsin og sumarbústaðina sem þeir byggðu. Allt er orðið dýrara, atvinnuleysi eykst og ESB sér til þess að yfir okkur flæða Pólverjar sem undirbjóða okkar eigin verkamenn og hirða þau störf sem finnast, segir írski pípulagningamaðurinn við Aftenposten.
-------------
Hér fyrir ofan er ein af fjölmörgum kosningaauglýsingum þar sem kjósendur eru hvattir til að sýna þann manndóm að segja NEI, þegar sumir vilja að þeir segi já.
-------------
PS. munið svo að kjósa EKKI Samfylkinguna í næstu kosningum.
þriðjudagur, 10. júní 2008
...fullvalda ho, ho, ho?
Nú ætla ég að gerast svo djarfur að vitna alfarið í pistil sem birtur var á Vef Þjóðviljanum í dag. Vonandi fyrirgefst mér það. Feitletranir eru mínar og ég stenst bara ekki mátið að birta þetta því ég er svo hjartanlega sammála. Málstaðurinn helgar meðalið og allt það....:
Á dögunum gripu franskir sjómenn til aðgerða. Ekki þessara hefðbundnu, að sigla um höfin blá, heldur að loka höfnum fyrir allri umferð. Þeir vildu vekja athygli á aðstæðum sínum og krefja stjórnvöld um aðstoð. Meginkröfurnar voru lægri eldsneytisgjöld og fjárhagsaðstoð frá hinu opinbera.
Aðgerðirnar vöktu svo mikla athygli að þekktur Frakki fór í viðtal við alla helstu fjölmiðla, sagðist vilja gera allt sem í sínu valdi stæði til að hjálpa sjómönnunum, en hann réði því miður engu um málið. Hann myndi hins vegar leita til Evrópusambandsins og biðja það um leyfi til að ganga að kröfum sjómannanna.
Þessi vesalings maður, sem hefur engin völd til að hjálpa frönskum sjómönnum, heitir Nicolas Sarkozy og starfar sem fyrirsæta og forseti Frakklands. Völdin til að verða við kröfum franskra sjómanna eru auðvitað ekki hjá þeim manni sem Frakkar hafa valið sem forseta, heldur hjá embættismönnum sem franskir kjósendur hafa ekkert um að segja. En utan Evrópusambandsins sitja fyndnir menn og spyrja þá landa sína sem ekki vilja gefa fullveldi lands síns upp á bátinn: Frakkland, Danmörk, Holland og slík ríki eru í Evrópusambandinu, eru þau kannski ekki fullvalda, ho ho ho?
Hvað sem segja má um kröfur frönsku sjómannanna, þá er ekki glæsilegt fyrir nokkurt land að það sé ekki á þess sjálfs valdi heldur annarra hvort við þeim er orðið. En það er einmitt staðan sem ýmsir vilja koma Íslandi í.
Aðild að Evrópusambandinu þýðir stórfellda skerðingu á fullveldi Íslands. Endanlegt vald um allskyns íslensk málefni yrði fært frá því fólki sem Íslendingar hafa kosið – og geta kosið af sér ef þeir vilja – og yfir til manna sem enginn Íslendingur hefur kosið og myndu seint fá sér af höndum rekið. Það kemur ekki til greina undir neinum kringumstæðum að stjórnarskrá landsins verði breytt, til þess að gera slíkt mögulegt.--------------
Myndbandið er fréttaskot sem sýnir götubardaga fyrir örfáum dögum, milli fiskimanna og lögreglu við höfuðstöðvar ESB í Brussel. Margt bendir til að þetta sé bara rétt byrjunin á því sem koma skal.
Snillingar á ferð
Þessir gömlu vinir mínir koma mér í huga á þessum degi þegar allt fór til fjandans í Kauphöllinni.
Veit ekki af hverju.
Kannski er það tónlistin og hvernig þeir slútta þessu spiliríi.
Minnir á upphaf, ris og fall íslenska verðbréfamarkaðarins.
Hundurinn Hrólfur og Fossi Björn:
mánudagur, 9. júní 2008
Hækja hins halta Íhalds
Ritgerðin sem Sjálfstæðisflokkur og Samfylking hafa nú sent til mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna er sennilegast versta bögubósasmíð sem nokkru sinni hefur verið undirrituð af íslenskum ráðherra.
Samfylkingin er gersamlega að bregðast þeim væntingum sem fólk í sjávarbyggðum þessa lands batt við flokkinn.
Hún er orðin hækja hins halta Íhalds.
En það var svo sem beitt blekkingum til að fá fólk til að kjósa "jafnaðarmannaflokkinn" með músarhjartað og rauða punktinn.
Tökum sem dæmi þennan vaðal hér fyrir neðan, sem skrifaður var af Björgvini G. Sigurðssyni núverandi viðskiptaráðherra rétt fyrir síðustu kosningar. Þetta er bara niðurlagið í makalausri ritgerð sem lesa má í heild sinni með því að smella hér, og fara inn á heimasíðu ráðherrans:
Ógnin sem Sjálfstæðisflokknum stendur af Samfylkingu jafnaðarmanna er mikil.
Bandalag jafnaðarmanna sem á möguleika á því að ná 30-40% fylgi er martröð íhaldsins og markar endi á valdaskeiði þeirra.Með áralangri póltískri vinnu fjölda fólks tóks að sameina Alþýðuflokkinn, Alþýðubandalagið, Þjóðvaka og Samtök um Kvennalista í einum breiðum flokki. Stórum sósíaldemókratískum flokki að norrænni fyrirmynd í þeim tilgangi að breyta íslenska samfélaginu.
Það er þess vegna fráleit hugmynd sem nýverið kom fram í grein eftir Margréti Björnsdóttur á síðum Morgunblaðsins að það væri fýsileg hugmynd að stjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar komi til greina nú.
Til hvers var þá sameinað? Var þá ekki alveg eins gott að starfa áfram í flokkunum fjórum og keppast um að komast í hlutverk hækju Sjálfstæðisflokksins eftir hverjar kosningar eins og var dapurlegt hlutskipti vinsriflokkanna á árum áður?
Sögulegt hlutverk Samfylkingarinnar
Í ljósi sögulegs hlutverks Samfylkingarinnar er samstarf við Sjálfstæðisflokk síðasti kostur flokksins. Neyðarkostur sem sérstakar aðstæður yrðu að kalla fram. Ekkert annað réttlætir slíkt samstarf þó að það sé auðvitað ekki útilokað komi slíkar aðstæður upp. Enginn sér hamfarir eða þjóðarvá fyrir.
Samstarf við Sjálfstæðisflokk myndi marka endi á drauminum um nýja breiðfylkingu sem leysti Sjálfstæðisflokkinn af hólmi. Samfylkingin væri þá ekki að uppfylla sitt sögulega hlutverk. Umræðan er vissulega ágæt og það er skylda flokkanna við kjósendur að tala skýrt um samstarfskostina að loknum kosningum. Ekki síst næstu kosningum sem vonandi marka endi á samfelldri sextán ára valdatíð hægrimanna á Íslandi. Um leið nýtt upphaf að stjórn undir forystu jafnaðarmanna.
--------------
Nokkrum dögum eftir að þessi grein birtist í fjölmiðlum var Björgvin G. Sigurðsson orðinn ráðherra.
Ráðherra í ríkisstjórninni sem svo notuð séu hans eigin orð; - markar nú endalok draumsins um að Samfylkingin eignist sögulegt hlutverk.
Nema náttúrulega hlutverkið sem Júdasarflokkurinn sem með einum kossi sveik fólkið í sjávarbyggðum Íslands.
laugardagur, 7. júní 2008
Landsráð undir rifi hverju

Er nú á þeim fagra staða Laugarvatni þar sem Frjálslyndi flokkurinn heldur landsráðsfund sinn. Slíkir fundir eru á tveggja ára fresti þar sem farið er yfir málefnastöðuna, stjórnmálin rædd og stikuð út stefna fyrir næstu misseri.
Á landsráðsfundi eru kjörið trúnaðarfólk flokksins, um 60 manns hvaðanæva að á landinu - úr öllum kjördæmum.
Guðjón Arnar Kristjánsson formaður flokksins flutti ræðu sína nú fyrir stundu. Mig langar að birta hér kaflann um sjávarútvegsmál. Guðjón kemur með alvöru tillögur um það hvernig stýra eigi fiskveiðum hér við land næstu árin.
Hér talar maður sem veit hvað hann syngur. Eini maðurinn með vitrænar tillögur í sjávarútvegsmálum eins og staðan er nú.
-----------------------
Í vikunni kom enn ein svartnættisspáin frá Hafró um að lítið væri af þorski á Íslandsmiðum. Þessi framsetning eftir mikla þorskgengd á alla veiðislóð á síðastliðinni vertíð er í engu samræmi við það sem þeir, sem fiskveiðarnar stunda, segja af sinni reynslu á þessu ári.
Margir skipsstjórar við botnfiskveiðar hafa lýst því frá mismunandi veiðislóð allt í kringum land, að mikið af þorski væri á miðum þeirra. Margir skipsstjórar hafa einnig verið á flótta undan þorski vegna lítils kvóta.
Leyfður þorskafli stjórnvalda er nú 130 þúsund tonn. Þetta er minni afli en verið hefur síðstliðin 98 ár, ef undan eru skilin fyrri heimsstyrjaldarárin. Þetta er nú sá „árangur“ sem kvótakerfi með frjálsu framsali og leigukvótaokri, hefur fært okkur Íslendingum eftir að við náðum þeim áfanga að sitja einir að veiðunum og reyna að stjórna sjálfir með kvótakerfi í aldarfjórðung.
Nú þarf að segja stopp. Setjum á jafnstöðuafla, 220 þúsund tonna þorskveiði árlega næstu þrjú árin. Metum síðan árangurinn. Ég spái því að hann verði betri en það sem
við höfum gert frá 1984 með kvótabraskkerfinu.
Eftirfarandi verði nú gert næstu þrjú fiskveiðiár:
- Öll leiga og sala kvóta milli útgerða verði stöðvuð frá og með næstu áramótum. Sett verði lög um það að aðeins ríki og sveitarfélög megi leigja kvóta til útgerðar. Útgerð megi færa óveiddan kvóta milli fiskveiðiára eftir nánari reglum.
- Næstu þrjú fiskveiðiár verði þorskaflinn föst stærð, eða 220 þúsund tonn hvert ár. Undirmáls þorskur verði að tveimur þriðju utan kvóta til þess að stöðva brottkast smáþorsks úr afla og fá á land rétta árgangastærð og samsetningu ungfisks.
- Á hverju þessara þriggja ára verði 150 þúsund tonn í aflahlutdeildarkerfinu hvert ár. 25 þúsund tonn verði í byggðapotti næstu tvö ár og síðan 10 þúsund tonn, þriðja árið.
- Línuívilnun verði fimm þúsund tonn öll þrjú árin. 40 þúsund tonn af þorski verði boðin upp af ríkissjóði og sveitarfélögum þannig:
· 5000 tonn á togara litla og stóra.
· 5000 tonn á snurvoða og netabáta.
· 5000 tonn á línubáta. Til helminga á véla- og landbeitta línu.
· 5000 tonn á handfærabáta undir 30 brúttó tonn að stærð.
· 20.000 tonn til byggðarlaga. Boðið fram sem leigukvóti með forgang til þeirra sem mest hafa leigt hlutfallslega annarsvegar og þeirra sem hæst verð greiddu. Þessar tekjur renni til viðkomandi sveitarsjóða. Eftir tvö ár stækkar þessi pottur um 15 þúsund tonn, í 35 þúsund tonn.
- Loðnuveiðar verði ekki leyfðar næstu tvö ár, nema því aðeins að veiðistofn loðnu mælist yfir 800 þúund tonn.
- Að tveimur árum liðnum fari fram endurskoðun á þessari framkvæmd og mótuð frekari stefna út úr núverandi kvótakerfi. Einkum verði unnið skipulega að því að fækka kvótabundnum botnfisktegundum, sem oftast eru meðalafli við flestar botnfiskveiðar.
Árangursleysi núverandi kvótakerfis í tæplegan fjórðung úr öld er algert. Markmiðin um trausta atvinnu og byggð í landinu samfara uppbyggingu fiskistofna hafa alls ekki náðst.
Nú er nóg komið af pólitískri fiskifræði og stjórnarstefnunni um samþjöppun veiðiheimilda á fáar hendur sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur fengið ráðið í 17 ár samfelt. Því verður að linna.
Þjóðin á auðlindina en hvorki Hafró né heillum horfinn Sjálfstæðisflokkur við völd í skjóli Samfylkingar.
Barentshafið gefur nú þorskveiði upp á 500 þúsund tonn árlega. Hafrófiskifræðin taldi þar vera verstu veiðistjórnun í Norður Atlantshafi. Eru það trúarbrögð okkar fiskifræðinga ennþá að svo sé? Getum við lært af þeirri merkilegu „ofveiðireynslu“? Eða fellur sú reynsla og þekking ekki að Hafrófiskifræðinni? Erum við, það er íslenskir fiskifræðingar, einir með réttu leiðina? Má aldrei tala við aðra sem eitthvað vita?Smellið hér til að lesa ræðu Guðjóns í heild sinni.
--------------
Ljósmynd af Landsráðsfundi nú áðan. Sigurjón Þórðarson í ræðustól. Formaðurinn í forgrunni.
föstudagur, 6. júní 2008
Var þetta ekki hann Björgvin frá Skarði?
"Hvurt í logandi", hugsaði ég þegar ég sá sjónvarpsfréttirnar áðan þar sem glaðbeitt fólk tók fyrstu skóflustungu að nýju álveri í Helguvík.
Ég sá ekki betur en að einn þeirra sem mokuðu sig þar ofaní jörðina væri Björgvin G. Sigurðsson frá Skarði í Gnúpverjahreppi. Viðskiptaráðherra Samfylkingarinnar.
Og ég varð hugsi.
Því ég man svo vel eftir greininni sem hann skrifaði rétt fyrir síðustu alþingiskosningar. Ég hef stundum tekið hana fram og lesið mér til hugarhægðar á svörtum stundum þegar ég hef leyft mér að efast um heilindi "jafnaðarmannaflokksins" í umhverfismálum.
Og í hvert sinn sem ég hef lesið upphafsorð þeirrar greinar þá hef ég varpað öndinni léttar. Umhverfismálum á Íslandi hlýtur að vera borgið á meðan "jafnaðarmannaflokkurinn" er í ríkisstjórn.
Hugsjóninn um "Fagra Ísland" lifir.
Víst gerir hún það. Sjáiði bara. Björgvin skrifaði þetta hér fyrir neðan. Og auðvitað trúum við honum og flokknum hans.
Jafnvel þó hann hafi stungið niður skóflu í dag.
Eða.....?
Hér er það sem Björgvin skrifaði:
Grænir og góðlegir storma þeir nú fram riddarar stóriðjunnar. Nú skal skríðast grænu, ekki bleiku einsog í fyrra, og blekkja sig í gegnum kosningabaráttu næstu ellefu vikna.Ellefu erfiðar vikur þar sem ríkisstjórnin verður tekin til bæna vegna heimsetsins í auknum ójöfnuði, mannréttindabrotunum á gamalmennumog öryrkjum og stóriðjustefnunnnar.
Þetta verður þungt en hvað getur Sjálfstæðisflokkurinn gert til að redda málum?Kannanir erfiðar og Geir týndur. Nú eru góð ráð dýr en fjöldi litbrigðanna er mikill. Lengi má yfir fálkann mála. Bara að hann verði ekki skræpóttur.
Jú einsog Mogginn gerðu á sinni nýgrænu grundu; mála fálkann grænan. Gamli góði Villi málaði fuglinn bleikan í fyrra og hann er núna borgarstjóri. Endurtaka
leikinn í takt við tímann.Herdeild græna fálkans stormar nú fram. Búið að krýna Guðlaug Þór og Illuga Gunnars til forystu. Nú er bara að fá fólkið til að trúa. Það gæti orðið þrautin þyngri þar sem pólitískur hreinsunardagur er framundan. Þar gæti íhaldið orðið illa úti.
Skræpótti fuglinn
Það er fagnaðarefni að náttúruverndin fær vægi í aðdraganda kosninga. Það er komin tími til enda umhverfishyggja útbreidd á Íslandi og sker þvert á alla flokka.
Samfylkingin hefur um árabil staðið fyrir vandaðri stefnumótun í umhverfismálum. Sú stefna leit dagsins ljós undir nafninu Fagra Ísland í haust og markaði tímamót í pólitískri orðræðu um umhverfismál og náttúrurvernd.
Við sem berjumst fyrir náttúruvernd og hófsamri nýtingu á orkulindum þjóðarinnar stöndum nú á tímamótum.
.....o. s. frv.
--------------
Á ljósmyndinni sem fylgir er það Björgvin á tímamótunum sem hann átti við í greininni, með skófluna þriðji frá vinstri, auðkenndur með rauðum hring. Hann er þarna í félagsskap ráðherra og bæjarfulltrúa flokks "skræpótta fuglsins". Myndin var tekin í Helguvík nú síðdegis.

