laugardagur, 14. júní 2008

Þess vegna sögu Írar nei

Áróðursmantran um að "'Írar eigi allt Evrópusambandinu að þakka" sem fylgismenn Evrópusambandsins þylja í sífellu hér á landi stenst ekki.

Það er svo langt í frá að Írar séu sammála.

Þessi náungi, David McWilliam er mjög snjall, reynar alveg frábær í greiningu sinni á ástandinu í Írlandi.

Horfið á þetta. Ótrúlega margt er líkt með okkur og Írum.

Ég á eftir að fjalla meira um þetta:


10 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þarna er að finna gott dæmi um hið vagsandi fyrirbæri angst t.v.sem mér finnst frekar ósmekklegt án þess að ég ætli að leggja mat á boðskapinn í þessu tilviki

Nafnlaus sagði...

Mig langar að spyrja þig Magnús : Af hverju ganga Írar ekki úr Evrópusambandinu? Mér skilst á þér að þetta sé ömurleg samkunda!

Nafnlaus sagði...

Mig langar að spyrja þig Magnús: Af hverju í ósköpunum ganga Írar ekki úr Evrópusambandinu?
Eru þeir ekki betur komnir utan þess, samkvæmt þinni skilgreiningu?

Nafnlaus sagði...

Segðu mér Magnús: Af hverju í ósköpunum ganga Írar ekki úr Evrópusambandinu, fyrst það reynist þeim svona illa?

Nafnlaus sagði...

vaxandi átti þetta að sjálfsögðu að vera

Nafnlaus sagði...

Hvers vegna finnst þér, Magnús, að eitt útiloki annað? Hvers vegna getur aðild að ESB ekki hafa verið góð fyrir Írland (þeir gengu fjandakornið í bandalagið fyrir næstum 40 árum!) en að nú sé svo komið, að þeir telji samrunaferlið hafa gengið of langt?

Ertu að halda því fram að Írar hafi sagt nei af því að þeir telji að ESB-aðild hafi verið þeim til mikilla miska? Ég get ekki séð, að þessi maður sem þú hefur nú vitnað til alloft, sé að segja þetta. Hann varar einfaldlega við því að "partíinu sé lokið" og að nú þurfi að hugsa hlutina upp á nýtt.

Aðild að ESB veitti Írum frelsi á sínum tíma, frelsi undan því oki sem nándin við Bretland var orðin þeim í efnislegum og óefnislegum skilningi. Bretland hafði verið þeirra helsta verslunarland, aðild að ESB opnaði fyrir þeim nýja markaði svo um munaði og gaf þeim sjálfstraust, þeir áttuðu sig á því að hagsmunir þeirra ekkert alltaf að mótast af því hvað hentaði Bretlandi. Hitt er líka staðreynd, að Írland var eitt fátækasta ríki Evrópu er þeir gengu í ESB. Fyrir þær sakir nutu þeir rækilega góðs af styrkjum úr landbúnaðarkerfi sambandsins, svo rækilega að það er engin goðgá að halda því fram að fáar aðrar þjóðir hafi notið eins mikils góðs af ESB-aðild og Írar. Þessu gera þeir sér alveg grein fyrir - þó að þú virðist halda annað - hvað sem líður ákvörðun kjósenda að hafna nú Lissabon-samkomulaginu.

Ég bíð spenntur eftir því að heyra hvaða uppnefni þú gefur mér eftir þetta innlegg - það virðist vera þitt aðalsmerki, að uppnefna fólk sem reynir að standa í debati við þig!

Davíð Logi

Magnús Þór sagði...

Ég mæli með því að fólk fari inn á heimasíðu David McWilliams og skoði sjónvarpsþætti hans þar.

Ekki síst In Search of Pope's Children.

Ég þarf í sjálfu sér ekki að halda neitt og ekki ætla ég að fara að ráðleggja Írum. Yrði þó ekki hissa ef þeir leituðu nú ráða til að koma sér út úr ESB, að að minnsta kosti miðað við þá mynd sem David dregur upp.

Enn og aftur - horfið á þessa þætti. Þeir er hreint út sagt frábærir.

Magnús Þór sagði...

Heimasíðan þar sem þættirnir eru er hér:

http://www.davidmcwilliams.ie/category/media/video

Magnús Þór sagði...

Hér er ágæt grein sem veitir innsýn í hvað Írar virðast vera að hugsa, og mér sýnist sumt eiga við hér á landi:

http://www.davidmcwilliams.ie/2008/06/15/lisbon-defeat-highlights-need-for-fresh-thinking

--------------
Úrdráttur:

"Last week, the economic data was unambiguously weak as the labour market turns and retail sales fall for the third successive month, at a time when inflation is rising.

The entire edifice – which was built on buying and selling property to each other financed by other people’s money -h as come crashing down. More significantly, as the property boom enveloped most small towns and villages, the downturn is being felt everywhere.

We have to ask ourselves whether the people who orchestrated the shambolic Lisbon campaign are the people we should trust to get this economy going again. Have these characters the vision to draw the strands together, focus on the solution and execute what is required?

What do you think is more likely in the next 18 months: a final smash-and-grab to loot the last of the family silver by the various grubby vested interests, or a clear, unselfish economic plan which puts the people first?

Ireland needs to look at another way of doing business. We are facing a huge challenge on a number of economic fronts including the property market, our brittle banking system and endemic public sector inefficiency, as well as the rising dilemma of mass immigration in a contracting economy".

Nafnlaus sagði...

Merkilegt nokk þá lokuðu Írar, í það minnsta tímabundið, á möguleika sína til að ganga úr ESB. Í Lisbon sáttmálanum er nefnilega í fyrsta skipti skilgreint hvernig slíkt ferli fer fram.