Á sama tíma og Hafrannsóknastofnun Íslands leggur fram enn eina vonleysisráðgjöfina varðandi fiskveiðar á næsta ári berjast fiskimenn innan Evrópusambandsins í blóðugum götubardögum við lögreglu í Brussel.
Það er upplausnarástand í evrópskum sjávarútvegi. Sjómenn í ESB hafa nú byrjað uppreisn gegn háu eldsneytisverði og geggjaðri fiskveiðistjórnun sambandsins. Hún er enn brjálaðri en sú íslenska og er þá mikið sagt. En þetta er öll "dýrðin" sem sumir vilja nú koma okkur í.
Hér eru ljósmyndir frá Brussel í dag. Augljóst er að þarna hafa menn tekist á. Þessi frétt í norska dagblaðinu Verdens gang segir að fiskimennirnir hafi tendrað neyðarblys, brotið rúður á skrifstofum höfuðstofnana ESB, hent inn flugeldum, velt bílum og barist við lögregluna. Eitt af því sem sjómennirnir eru óánægðir með, er það íslenskir sjómenn skuli geta keppt við þá á mörkuðum með fisk sem veiddur er hér við land.
Er á meðan varir.
Því ekki er hún glæsileg ráðgjöfin sem kom frá Hafró í dag. Það er bara niðurskurður á alla línuna. Í þorski, ýsu, ufsa, karfa og grálúðu. Veiðar úr þessum stofnum eru við söguleg lágmörk, nema ýsu en þar er allt í frjálsu falli. Vægast sagt daprar horfur á að það verði nein loðnuveiði næsta vetur.
Við erum lengst niðri í kjallara og það er ekkert ljós.
Á Íslandi er árangurinn verri en enginn af "besta fiskveiðistjórnunarkerfi í heimi". (Land)ráðandi öfl Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar neita að hlusta á aðvörunarorð og hollráð, en berja bara hausnum við steininn og brjóta mannréttindi á löghlýðnum borgurum.
Breiðast Brusselbardagar út til Íslands?
Smellið hér: Frétt BBC um fiskimannabardaga dagsins í Brussel.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli