sunnudagur, 1. júní 2008

Mótmæli á sjómannadegi

Sjómannadagurinn er vart lengur svipur hjá sjón víða um land.

Þetta er ekki lengur sú hátíð sem áður var. Það bar að harma. Drepandi krumla misheppnaðs fiskveiðistórnunarkerfis er að eyðileggja sjávarútveginn. Þar með þá miklu lífsgleði og það fjör sem fyrir aðeins örfáum árum var í kringum greinina.

Konur í Frjálslynda flokknum starfa af miklum krafti og áhuga.

Í dag efndu konurnar til mótmælagöngu gegn fiskveiðistjórnuninni og þá einkum þeim mannréttindabrotum sem eiga að viðgangast í greininni, í skjóli Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Farið var undir fánum og mótmælaborðum frá Stjórnarráðinu, niður á Hafnarbakka og síðan í Hafnarhúsið þar sem ræðuhöld dagsins stóðu yfir. Ég brá mér í hópinn.

Mitt undir lofræðu Einars Kristins sjávarútvegsráðherra um ágæti eigin fiskveiðistjórnunar sem engu hefur skilað nema skít og skömm fyrir sjávarbyggðir þessa lands rölti hersingin inn í port Hafnarhússins þar sem ræðuhöldin fóru fram. Mörg íklædd sjóhöttum og stökkum, með fána og mótmælaborða. Síðan var staðið með þögul mótmæli á meðan ræðumenn dagsins fluttu tölur sínar.

Kurteisleg mótmælastaðan stal senunni, enda áhrifarík þar sem lesa mátti mótmæli gegn mannréttindabrotum ríkisstjórnarinnar (sjá dæmi á ljósmynd). Erling Sveinn Haraldsson, annar sjómannanna sem kærði íslensk stjórnvöld fyrir mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna var með okkur í mótmælunum. Ég hafði ánægju af að hitta hann og spjalla við hann, í fyrsta sinn á þessum ágæta degi.

Ein ræða var flutt á sjómannadeginum í Reykjavík sem bar af öllum hinum. Það var fæða Guðmundar Ragnarssonar, formanns félags vélstjóra og málmtæknimanna. Hann var ekki í neinum feluleik heldur talaði af hreinskilni og viti um þau vandamál sem íslensk sjómannastétt og sjávarútvegur eiga við að etja. Enda má segja að hann hafi verið eini ræðumaður dagsins sem starfað hefur á sjó undanfarin misseri. Eini sjómaðurinn. Guðmundur talaði um vandamál vegna skorts á nýliðun ungs fólks í greinina, brottkastvandann, vitlausa nýtingarstefnu og margt fleira.

Og síðan fylltist maður virðingu þegar eldri sjómenn voru heiðraðir í tilefni dagsins, og farið yfir sjómennskuferla þeirra. Ég ber mjög mikla lotningu fyrir þeim sem fórnað hafa starfsævi sinni á sjónum.

En mótmæli kvenna í Frjálslynda flokknum og góð ræða Guðmundar Ragnarssonar björguðu deginum.

Sjómenn, - til hamingju með sjómannadaginn 2008!

Engin ummæli: