Hryðjuverkaárásin á sendiráð Dana í Pakistan er alvarlegasta utanríkisfrétt sem borist hefur í langan tíma.
Þetta er ekki einungis árás á Danmörku - þetta er árás á Norðurlönd.
Íslensk stjórnvöld eiga strax að fordæma þetta níðingsverk, senda Dönum samúðarkveðjur og gera heimsbyggðinni ljóst að við stöndum algerlega með vinum okkar í vörnum gegn myrkraöflunum.
Fréttir berast stöðugt af vettvangi. Bendi á umfjöllun Jótlandspótsins.
mánudagur, 2. júní 2008
Árás á Norðurlönd
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
Danir fengu það sem þeir báðu um. Það er svo mikill fórnarlambaþorsti á vesturlöndum að menn gera allt til að æsa þá upp sem vitlausastir eru, til óhæfuverka. Oft eru þetta fjölmiðlar að búa til fréttir og fórna þar með friðið og kannski nokkrum saklausum borgurum í leiðinni. Íslendingar geta líka að þakkað fyrir að ekki hafi verið sprengt hjá okkur eftir að Davíð og Halldór buðu höfuð þjóðarinnar á gapastokkinn með stuðningi við USA í Írak. Hvílíkir aumingjar, að skríða fyrir þjóð sem er fræg fyrir að búa til stríð með lygum og árásum á sjálfa sig, allt til að gleðja örfá auðmenn. Dýrmætasta vopni þeirra er þeirra eigið fólk, saklausir borgarar. Já, við skulum endilega biðja um meira. Please sprengið okkur. Við viljum vera eins og stóru þjóðirnar.....
Svo gæti líka verið að svona sé komið eingöngu út af því að þörf er á að auka hat á móti múslímum í heiminum og þess vegna gæti það verið svo að um vestræn öfl sé að ræða í þessu sambandi.
Það er gott að hafa vini en enn betra að þekkja óvini sína.
Ég tek undir þetta og í framhaldinu þá eigum við að vísa öllum útlendingum úr landi.
Múslimar og lýðræði eiga ekki samleið-sorry
Múslimar og lýðræði eiga ekki samleið-sorry
Skrifa ummæli