"Þegar litið er til þessa fyrsta árs Ingibjargar Sólrúnar í stóli utanríkis- og varnarmálaráðherra má ljóst vera að hún hefur engan áhuga á að framfylgja stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, dugleysi hennar stendur landinu fyrir þrifum og dugnaðurinn er því til óþurftar. Þegar kemur að samskiptum við umheiminn vill hún ekki segja þrjótunum til syndanna, en aðrar yfirlýsingar hafa reynst þjóðinni til skaða. Til hvers er hún þá?"
Þetta eru lokaorðin í ítarlegum pistli sem Andrés Magnússon birtir á Moggablogginu. Titillinn er "Utanríkisráðherra er ekki vandanum vaxinn". Þessi pistill er leiftrandi uppgjör Sjálfstæðismannsins við utanríkisráðherra og formann Samfylkingar, eftir að sú síðarnefnda hefur setið eitt ár í embætti.
Ég minnist þess ekki að nokkur ráðherra hafi fengið aðra eins útreið í langan tíma.
Sjón er sögu ríkari. Ég leyfi mér að benda á pistil Andrésar sem má lesa með því að smella hér.
Annars er ljósmyndin hér fyrir ofan tekin af "málverki" (eftir hvern?), sem birtist í lok áróðursmyndbands Samfylkingarinnar sem finna má á You Tube og lagt var út 5. maí 2007, í aðdraganda síðustu alþingiskosninga fyrir rúmu ári.
Þarna situr núverandi utanríkisráðherra Íslands í útreiðartúr á baki Bandaríkjaforseta og hýðir hann með svipu.
Maður er nú ýmsu vanur, en ég hrökk í kút þegar ég sá þetta í fyrsta sinn nú áðan. Skyldu bandarísk stjórnvöld hafa séð þetta?
Myndbandið er annars samhangandi áróður gegn hinu "illa afli" Sjálfstæðisflokknum, m. a. spilað undir laginu úr mafíubíómyndunum um Guðföðurinn.
Myndbandið er í raun grátbroslegt nú í ljósi þess hvað liggur eftir Samfylkinguna eftir eitt ár í ríkisstjórn með þessu "voðalega" stjórnmálafli.
Hefur nokkuð breyst; - nema þá til hins verra fyrir land og þjóð?:
Engin ummæli:
Skrifa ummæli