fimmtudagur, 5. júní 2008

Þarna bjó Bjössi

Það hefur verið beinlínis hjákátlegt að verða vitni að ýmsum útskýringum og afsökunum embættismanna á því að umhverfisráðherra Samfylkingarinnar gaf grænt ljós á ísbjarnardrápið í Skagafirði.

Margir þessara embættismanna heyra beint undir umhverfisráðuneytið.

Ein skýringin sem ég hef heyrt af er að flutningur bangsa til heimkynna sinna í hafísnum norður af Íslandi hefði orðið milliríkjamál. Til þess hefði þurft að ná samkomulagi við grænlensk stjórnvöld. Ég skil þetta ekki alveg. Eiga menn þá við að það hefði orðið að koma bangsa á fastalandið á Grænlandi? Honum hefði ekki verið gerður neinn greiði með því.

Ísbirnir þrífast best úti á hafísnum þar sem þeir stunda selveiðar. Þeir eru aðlagaðir að lífi þar. Í sumum fræðum er meira að segja fullyrt að þeir séu svo vel aðlagaðir lífi á hafi úti að rétt sé í raun að flokka þá til sjávarspendýra.

Ísbjörninn hefði átt að flytja á hafsísinn sem er í lögsögu Íslands norður af Íslandi. Grænlendinga hefði ekkert varðað um það.

Hér fyrir ofan getur að líta kort sem sýnir útbreiðslu hafsíssins fyrir fimm dögum, þann 1. júní síðastliðinn (smellið á til að sjá stærra kort). Þetta ljósbláa er hafísinn. Þarna er líka miðlínan á milli Íslands og Grænlands. Eins og við sjáum þá er nægur hafís í lögsögu Íslands. Hann er meira að segja glettilega skammt undan Vestfjörðum.

Þarna átti Bjössi heima og við áttum að skila honum þangað eftir að hann slysaðist til Íslands.

Lifandi.

Afleiðingar bjarnardrápsins eru nú að koma fram í mjög neikvæðum fréttaflutningi víða um lönd.

Ég bíð enn eftir afsögn umhverfisráðherra.

-------------

PS. Hafískortið er af vef Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands og var þar daginn sem björninn fannst og var felldur http://www.hi.is/~ij/hafis/iskort010608.jpg

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það er merkilegt að þú skulir fara fram á afsögn ráðherra sem gerði ekkert annað en að fara að lögum.

Og þetta með að flytja hefði þurft björninn í landhelgi Grænlands eða ekki er ekkert annað en fyrirsláttur hjá þér. Það er fjöldi annara atriða sem þú hefur ekki svarað.

Hvað með deifilyf? Það hefur komið fram að þau voru ekki til í því magni sem hefði þurft.

Hvað með skotvopnið? Það var ekki til staðar, nema þá að þú kjósir að sjálfsögðu að trúa þessum dýralækni sem sagðist eftirá hafa verið með vopnið í skottinu hjá sér.

Og hvað með hina ýmsu sérfræðinga (m.a. yfirdýralækni) sem hafa sagt að ákvörðunin um að fella dýrið hafi verið hárrétt??

Kveðja,
KK

Magnús Þór sagði...

Hvaða lagabókstafur var það?

Ég er búinn að benda á ýmis atriði í pistli sem ég skrifaði hér í fyrradag og hlekkjað er á í texta hér fyrir ofan.

Deyfilyf voru til í landinu, byssa sömuleiðis. Ef ég man rétt þá var ekki nóg til handa fullvöxnum birni sem er um hálft tonn. Þetta var húnn og vóg 250 kíló.

Og embættismennirnir verja ráðherrann. Ekkert nýtt í því.

Annars er áhugavert að skoða þessa frétt og myndbandið með á vef norska Dagblaðsins. Líflegar umræður verð ég að segja. Þessar myndir fara nú um heiminn. PR katastrófa fyrir ímynd Íslands - ekki minnst í umhverfismálum. Vatn á myllu þeirra sem vilja koma höggi á okkur í þessum málum til að mynda vegna stóriðju og hvalveiða.

Við hefðum getað fengið aðrar myndir og miklu betri fyrir okkur sem hefðu þá sýnt hvernig dýrinu hefði verið bjargað aftur til sinna náttúrulegu heimkynna á heimskautaísnum við Ísland.

http://www.dagbladet.no/nyheter/2008/06/04/537217.html#comments_container

Nafnlaus sagði...

Virðing stjórnarandstöðunnar fyrir lögum landsins er ekki nokkur. Það hafa VG og Frjálslyndir sýnt. Þetta er ein heimskulegasta afsagnarbeiðni sem ég hef séð.
IG

Magnús Þór sagði...

Nei, hún er það ekki.

- umhverfisráðherra sem farið hefur um básúnandi einhverja stefnu sem kennd er við "Fagra Ísland" og látið kjósa sig og flokk sinn Samfylkingu út að standa fyrir mjög umhverfisvænni stefnu í stjórnmálum.

- umhverfisráðherra sem á að vera handhafi framkvæmdavaldsins í náttúruvernd hér á landi.

- umhverfisráðherra sem þykist sérstaklega bera hag náttúru Norðurslóða fyrir brjósti.

- umhverfisráðherra sem kann engin önnur ráð en að láta skjóta friðaðan ísbjörn sem kemur að landi í óbyggðum þó nægir möguleikar og hafi verið fyrir hendi og forsendur uppfylltar að bjarga skepnunni ef vilji hefði verið fyrir hendi.

- umhverfisráðherra sem mætir síðan í fjölmiðla og fer með rakalausan þvætting til að verja gjörðir sínar.

- umhverfisráðherra sem leiðir skömm og hneisu yfir þjóð sína á alþjóðavettvangi þegar náttúru- og dýravernd er annars vegar.

-------------

- slíkur umhverfisráðherra getur ekki notið traust og virðingar sem handhafi framkvæmdavalds í umhverfismálum þjóðarinnar.

- slíkur umhverfisráðherra er vanhæfur.

- slíkur umhverfisráðherra á að sjá sóma sinn í að fara frá.

--------------

Þetta er mín skoðun.

Magnús Þór sagði...

Henti þessari athugsemd inn hjá Agli Helgasyni áðan að gefnu tilefni. Best að setja hér líka:

------------------

Það er rangt að ísbirnir séu umsvifalaust drepnir ef þeir koma í mannabyggðir á Svalbarða. Það er reynt að fæla þá á brott með ýmsum hætti. Til dæmis með hávaða. Yfirleitt dugar það. Birnirnir eru ekkert sérstaklega hrifnir af okkur mannfólkinu og því sem okkur fylgir og vilja helst vera í friði fyrir okkur.

Enda var ekki annað að sjá á myndum en að björninn sem felldur var í Skagafirði hafi einmitt verið að draga sig frá mannsöfnuðinum þegar byssukúlunum var hleypt af.

Ísbirnir eru aldrei skotnir á Svalbarða nema í algerri nauðvörn þá sjaldan sem þeir ráðast á fólk.

Hins vegar er það þannig að fólk fer ekki um óvopnað til vonar og vara.

Hér er bæklingur á ensku um það hvernig eigi að umgangast ísbirni á Svalbarða:

http://kho.unis.no/doc/Polar_bears_Svalbard.pdf

Hér er ágæt ritgerð frá sýslumannsembættinu á Svalbarða um það hvernig höndla eigi þessar skepnur og hvenær réttlætanlegt sé að fella þá, sem er mjög sjaldan:

http://www.okokrim.no/aktuelt_arkiv/miljokrim/magasinet/2004-1/page13.html

Nafnlaus sagði...

hmmm Að skilja Bangs eftir á ísröndinni mitt á milli Ísland og Grænlands! Er það gáfulegt? það er þar sem ísinn rekur til suðurs.
Einnig held ég að menn já og konur sem hafa ekki vit á þessum málum ættu ekki að vera að tjá sig neitt um þessi mál, ef að bangsi hefði ráðist á einhver þá hefði þeta sama fólk byrjað að væla yfir því að ekkert hefði verið gert þegar að þessi bangsi kom. Magnús ég er oft sammála þér en ekki í þessu tilfelli....

Magnús Þór sagði...

Ég er svo sem ekkert að gera kröfur um að fólk sé sammála mér en þær skoðanir sem ég hef sett fram eru mínar.

Hef verið áhugamaður um ísbirni í fjölda mörg ár eftir að hafa kynnst þeim í hafísnum við Svalbarða. Þetta eru stórfengleg dýr og afar merkileg.

Birnirnir dvelja langdvölum á hafísnum jafnvel órafjarlægð frá landi, en þeir stunda selveiðar og eru mjög snjallir við þær. Skagafjarðarbangsi hefði plummað sig fínt eftir að vakna upp úr draumalandi á ísbreiðunum þangað sem við hefðum geta flutt hann.

Björninn sem felldur var í Skagafirði var nefnilega svona sjóbangsi og kom eflaust frá ísröndinni norður af Vestfjörðum sem sést á kortinu hér fyrir ofan.

Hér eru dæmi um ferðalög ísbjarna sem merktir voru með útvarpssendum í Barentshafi. Þetta eru birnur og dýrin fara mjög víða á hafísnum eins og sjá má:

http://www.nhm.uio.no/zoomus/isbjorn/sporing23076.html

http://www.nhm.uio.no/zoomus/isbjorn/sporing23165.html

http://www.nhm.uio.no/zoomus/isbjorn/sporing23246.html

Magnús Þór sagði...

Hér eru ágætar umgengnisreglur við ísbirni:

http://www.nhm.uio.no/zoomus/isbjorn/bjornevett.html

Magnús Þór sagði...

Norðmenn halda áfram að skrifa um ísbjarnarskandalann. Nú um það að víst hafi verið til deyfilyf. Hér er frétt á dagbladet.no einum af stærstu fréttavefjum Noregs:

http://www.dagbladet.no/nyheter/2008/06/05/537340.html