Á sjálfan þjóðhátíðardaginn, 17. júní, opinberaðist með átakanlegum hætti hversu ráðlaus, dáðlaus og ósamstíga þessi ríkisstjórn er.
Á sama tíma og umhverfisráðherrann stundaði millilandaflug frá Ósló og einkaflug frá Reykjavík til að komast á ísbjarnarveiðar í Skagafirði, þá stóð forsætisráðherrann á Austurvelli og hélt ræðu þar sem hann hvatti þjóðina til aðhalds. Hann talaði um gróðurhúsaáhrif og þann ávinning sem myndi vinnast ef þessi örþjóð við ysta haf drægi nú úr bílanotkun sinni.
Mér fannst sláandi að hann sagði ekki neitt sem gat verið til þess fallið að telja kjarkinn í þjóðina. Það er ekki nóg hjá forsætisráðherra að fara í ræðustól á Austurvelli og lýsa því yfir að nú sé komin kreppa. Hann verður líka að segja eitthvað um það hvernig RÍKISSTJÓRNIN ætli að taka á málunum.
Það er eins og ráðherrar þessarar ríkisstjórnar séu ekki í neinum tengslum við almenning í þessu landi. Einhvern veginn var það svo lýsandi fyrir ástandið að á meðan Geir stóð í ræðustólnum og hélt ræðuna sína þá veifuðu íslenskir sjómenn mótmælaspjöldum í bakgrunni. Hefði Geir snúið sér við þá hefði hann sjálfsagt ekkert botnað í þeim dónaskap að fólk væri að mótmæla.
En Geir snéri sér ekki við, enda var hann með fyrirfram skrifaða og lesna ræðu. Hann þurfti að fylgja innihaldsrýru handriti.
The show must go on.
Á meðan forsætisráðherrann stóð og sagði fátt eða ekkert bitastætt, þá gátu áhorfendur sem fylgdust með í sjónvarpi lesið þetta yfir höfði hans (sjá mynd); "Ríkisstjórnin brýtur mannréttindi - Vér mótmælum allir".
Tilefnið var að sjálfsögðu innantómt svar ríkisstjórnarinnar við úrskurði mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna um kvótakerfið. Þarna voru á ferðinni sjómennirnir tveir sem sendu kæru til mannréttindanefndarinnar, þeir Örn Sveinsson og Erlingur Sveinn Haraldsson. Menn sem eiga sér enga aðra ósk en þá að fá að stunda sinn atvinnurekstur í sinni heimabyggð. Láta gott af sér leiða fyrir land og þjóð, og afla dýrmætra gjaldeyristekna með því að nýta náttúruauðlindina í hafinu.
En þeir fá ekki frið eða möguleika til þess - fyrir fólkinu og flokkunum sem nú skipa ríkisstjórn.
Og hinn efnahagslegi kjarnorkuvetur nálgast hratt.
fimmtudagur, 19. júní 2008
Dáðleysi og ráðleysi mannréttindabrjóta
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli