fimmtudagur, 12. júní 2008

Lissabon NEI, NEI, NEI

Í dag er ögurstund hjá frændum okkar Írum.

Þjóðaratkvæðagreiðsla um hinn svokallaða Lissabon sáttmála Evrópusambandsins. Kosið til 10 í kvöld, talið á morgun og annað kvöld vitum við hvernig fór.

Spennandi.

Auknar líkur eru taldar á að meirihluti kjósenda segi NEI.

Stundum þarf pólitískan kjark til að segja NEI í staðinn fyrir JÁ. Ég veit ýmislegt um það.

En Írar hafa aldrei verið neinar gungur, og þeir hljóta að segja NEI við þessum samning sem er ekkert annað en fullkomið fullveldisafsal og stjórnarskrá Evrópusambandsríkisins í dulargerfi.

Írland er eina ESB landið þar sem íbúalýðræðið er virkjað og haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um Lissabon sáttmálann. Þó að 90 prósent kjörinna fulltrúa í stjórnmálaflokkum séu fylgjandi sáttmálanum þá er alþýðan ekki á sama máli. Og nú virðast hinir kjörnu fulltúar vera í þann veginn að fá vel verðskuldað spark í afturendann frá fólkinu. Þar með er allt í uppnámi á Brussel völlum.

Hér er ágæt frétt á Aftenposten, sem er skrifuð af fréttaritara blaðsins í London. Ég leyfi mér að endursegja og þýða beint úr henni:

"Meirihlutinn mun segja nei. Engum hefur tekist að útskýra fyrir fólki það þessi sáttmáli þýðir og því munu flestir kjósa nei. Að hluta til öryggisins vegna, og að hluta til sem mótmæli við þeim breytingum sem Evrópusambandsaðildin hefur þýtt fyrir landið mitt", - segir írski pípulagningarmaðurinn Anthony Kelly við Aftenposten.

Hann flutti til London árið 1985 þegar atvinnuleysi var landlægt á Írlandi. Hann segist aldrei ætla að flytja heim aftur því heimaland hans sé nú orðið óþekkjanlegt. Anthony ólst upp á vesturströnd Írlands og er þeirrar skoðunar að Evrópusambandið sé búið að eyðileggja hina hefbundnu menningu á þeim slóðum, meðal annars með því að valda því að settar hafa verið nýjar reglur um krár og danshallir.

"Áður fyrr hittist fólk alltaf á kránni að lokinni vinnu. Reykingabannið og og bann við því að keyra eftir að hafa fengið sér nokkra bjóra gerir það að verkum að fólk sittur aleitt heima og fær sér í glas. Þarna er dreifbýli og fólkið er háð bílnum.

"Þensla eftir að landið gekk í ESB olli því að allir tóku fullt af peningum að láni og nú þegar dregur saman situr fólk á kafi í skuldum og enginn getur selt dýru húsin og sumarbústaðina sem þeir byggðu. Allt er orðið dýrara, atvinnuleysi eykst og ESB sér til þess að yfir okkur flæða Pólverjar sem undirbjóða okkar eigin verkamenn og hirða þau störf sem finnast, segir írski pípulagningamaðurinn við Aftenposten.

-------------

Hér fyrir ofan er ein af fjölmörgum kosningaauglýsingum þar sem kjósendur eru hvattir til að sýna þann manndóm að segja NEI, þegar sumir vilja að þeir segi já.

-------------

PS. munið svo að kjósa EKKI Samfylkinguna í næstu kosningum.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það er engin hætta á því að ég kjósi Samfylkinguna í næstu konsingum, og ég er alveg örugglega ekki sá eini.

Samfylkingin hefur svikið öll sín loforð og fólk man það í næstu kosningum. Svona tækifærissinnar sem gera ekkert fyrir sína þjóð hafa ekkert að gera í ríkisstjórn.

Burt með þessa Samfylkingu.

Hvað er utanríkisráðherra að gera núna? Leggur sig gífurlega fram við að hjálpa einhverjum í Afghanistan.
Hvernig væri að eyða sama púðri í að hjálpa fólkinu á Íslandi??

Burt með þessa vitleysinga!!!

MBK,
Kjósandi.

Nafnlaus sagði...

Hættu þessu rugli. Það er eina vitið að Ísland gerist aðili að ESB sem fyrst þannig að valdið færist frá íslenskum ruglukollaráðamönnum sem eru á góðri leið með að gera almenning gjaldþrota.