Þá hefur Nicolas Sarkozy forseti Frakka kveðið upp úr um að það komi ekki til greina að fleiri löndum verði bætt inn í Evrópusambandið fyrst Lissabon sáttmálinn er í uppnámi eftir að Írar felldu hann á dögunum. Angela Merkel kanslari þýskra er sammála.
Við eigum nú að hætta að eyða dýrmætum tíma og orku í að einblína á og rífast um inngöngu í Evrópusambandið. Í staðinn einbeita okkur að því að takast á við okkar eigin vandamál á okkar eigin forsendum.
Og það liggur á.
Ég hef miklar áhyggjur af því að stjórnmálamenn sem með mistökum sínum bera ábyrgð á núverandi ástandi, séu allsendis ófærir til að takast á við vandamálin með þeirri einbeitningu sem þarf til. Þeir eru þjakaðir af fortíðinni. Hér er fyrst og fremst um að ræða ráðherra Sjálfstæðisflokksins. Þau þora ekkert að gera, því þau eru svo hrædd við að þurfa með því að viðurkenna að þau hafi gert mistök - að þau hafi haft rangt fyrir sér.
Og hvernig er hægt að treysta Samfylkingunni sem er með Evrópusambandsaðild á heilanum og sér ekkert annað til lausnar í núverandi stöðu en að Ísland skríði þar inn? En nú er morgunljóst að það verður ekki næstu misserin þar sem allt er að fara í háaloft innan sambandsins.
Og svo er það augljóst að traust Sjálfstæðismanna á Samfylkingunni er ekki mikið. Og fyrirlitning Samfylkingarfólks á Sjálfstæðisfólki er alþekkt og þarf ekki að fletta í mörgum greina- og bloggsöfnum til að fá það skjalfest. Þetta hugarþel hefur reyndar verið endurgoldið hjartanlega af Sjálfstæðisfólki gegnum árin.
Ég hef aldrei getað botnað í því að þessi tveir flokkar færu saman í ríkisstórn.
Við stöndum frammi fyrir þeirri nöturlegu staðreynd að þrátt fyrir að ríkisstjórnarmeirihlutinn á Alþingi hafi sjaldan eða aldrei verið jafn yfirgnæfandi, þá verður að gera langa leit að ríkisstjórn sem hefur verið jafn farlama til aðgerða og sú sem nú situr. Plaggið varðandi íbúðamálin sem kom fram í gær er alltof seint lagt fram, og það er alltof óskýrt. Og það hefði þurft að gera miklu meira. Eins og að afnema stimpilgjöld, og koma með útfærslur varðandi gjaldtöku til lækkunar á eldsneytisverði, sem forsætisráðherra minntist varfærnislega á í snautlegri 17. júní ræðu sinni.
Við verðum sem allra fyrst að leita allra mögulegra leiða til að auka gjaldeyristekjur þjóðarbúsins. Þau hefðu átt að fara að tillögum okkar í Frjálslynda flokknum og taka upp 220 þúsund tonna jafnstöðuafla í þorski næstu þrjú árin.
Einhvern veginn finnst mér að fálmið í gær sýni í raun að nú er alvöru stjórnarkreppa á Íslandi. Ríkisstjórninni er hvergi að takast að sýna með aðgerðum þá forystu sem þarf til að telja kjarkinn í fólkið í landinu, sem er full þörf á að gera því það er löngu ljóst að nú fara í hönd erfiðir tímar.
Stjórnarkreppan bætist við efnahagskreppuna sem nú er óðum að skella eins og Tsunami flóðbylgja á þjóðinni.
Dökkgráu er bætt ofan í svart.
föstudagur, 20. júní 2008
Grátt ofaní svart
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli