Enn bætist í safn náttúrufræðimyndbanda Samfylkingarinnar undir safnheitinu "Fagra Ísland".
Nú síðast er það bjarndýr sem samkvæmt eðlisávísun hopar undan til sjávar og er þá fellt.
Veit ekki hvað menn óttuðust í þetta sinn. Síðast var það að týna dýrinu í þoku. Hvað var það nú? Að dýrið myndi kafa og koma upp við bryggjusporðinn á Sauðárkróki?
En landkynningin er góð - eða hitt þó heldur.
Bjútífúl Æsland.
þriðjudagur, 17. júní 2008
Kill Teddy Vol. 2
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
11 ummæli:
Ætli daninn sem kom sé ekki meiri sérfræðingur en þú.
Ég þekki ekki þennan Dana, en minnir að ég hafi einhvers staðar séð að hann hefði enga reynslu af því að svæfa ísbirni. Datt engum í hug að leita til Norðmanna? Þeir hafa reynslu af svona, fá ógjarnan panik í nærveru hvítabjarna eins og sumir, - hafa og meðal annars svæft birni til að merkja þá með radíósendum til að rannsaka ferðir þeirra. Stórmerkilegar niðurstöður úr því.
Hvernig væri að þú tækir að þér að veiða næsta björn sem kæmi til landsins. Þú virðist vera algjör sérfræðingur í þessum málum.
K.v. Björn Ingi
Um sérfræðikunnáttuna veit ég ekki, en ísbirnir hafa verið mér hugleiknir í mörg ár. Þetta eru stórkostleg dýr - konungakyn norðursins.
Ég væri alveg til í að hjálpa þeim aftur til síns heima ef þeir eru svo óheppnir að villast hingað til lands sem kennt er við frosið vatn eins og þeir.
Og það er nóg að skutla þeim aftur á hafísinn norður og vestur af landinu. Bara rugl að það þurfi að fara með þá til Grænlands og endurspeglar þá miklu fávisku sem er ráðandi hér á landi um þessi merkilegu (sjávar)spendýr.
Endilega leiðréttu mig ef ég fer mað rangt mál (þótt þú efist um sérfræðikunnáttu þína), en eru hvítabirnir ekki skilgreindir sem rándýr?? A.m.k. skv. þessar grein á Wikipedia : http://is.wikipedia.org/wiki/%C3%8Dsbj%C3%B6rn
Og svo veit ég ekki betur en að flest allir fjölmiðlar úti í hinum stóra heimi séu rétt hefði verið að fella dýrið úr því sem komið var. Þú kannski gerir svona könnun á vefmiðlum eins og síðast ;)
Kveðja,
KK
Auðvitað eru ísbirnir skilgreindir sem rándýr. Þeir eru sérfræðingar í selveiðum.
Nú hef ég ekki haft tíma til að skoða fjölmiðlana enn þá, en sé þó að þetta er komið á youtube.com
http://www.youtube.com/watch?v=Pno3CQm1u9M
http://www.youtube.com/watch?v=Lz6l0ilvek0&feature=related
Auðvitað ertu ekki búin að hafa tíma til að skoða fjölmiðla til að leita að slíkum fréttum, enda hent slíka fréttir ekki þínum málflutningi.
Birtir frekar einhver myndbönd af YouTube sem ekki bara afskræma sannleikann heldur segja ekki frá nema broti af honum.
Kveðja,
KK
Ég hef ekki birt nein myndbönd heldur benti á þau til að sýna hvernig umfjöllunin væri meðal annars úti á óravíddum netsins sem er um allan heim. Og ekki bjó ég þessi myndbönd til.
Annars er hægt að skoða eitthvað af fréttum um birnuna sem felld var í gær með því að fara inn á www.google.com og slá inn leitarorðunum:
second polar bear iceland
Mér sýnist slatti detta inn og er þó ekki liðinn sólarhringur frá því vígið fór fram.
Svíar birta einungis jákvæðar fréttir af ísbirninum og drápinu. Merkilegt í ljósi þess að svíar eru almennt mjög á móti drápi á friðuðum dýrum.
Neikvæðustu umfjöllunina finn ég á þínu bloggi, en það segir eflaust meira um þig en drápið sjálft.
Jákvæðar fréttir af drápinu???!!!
(sic!)
Loksins vitræn fjölmiðlaumfjöllun um ísbirni:
http://www.visir.is/article/20080618/FRETTIR01/767563043
Skrifa ummæli