fimmtudagur, 24. júlí 2008

Höfðingjar hafsins í ríki náttúrunnar


Fréttaskeyti dagsins greina frá því að hópur háhyrninga hafi gætt sér á hrefnu að forviða ferðamönnum ásjáandi úti á Skjálfandaflóa norður.

Þetta er gangur lífsins í Íshafinu.

Að éta og verða étinn.

Nú á dögunum var að koma út bók sem fæst í öllum betri bókaverslunum landins og víðar, geri ég ráð fyrir. Þetta er vegleg ljósmyndabók um hvala- og náttúruskoðun úti á sjó umhverfis Ísland. Fjallað er um þetta út frá hvalaborginni Reykjavík, hvalaparadísinni Ólafsvík, hvalafirðinum Eyjafirði, hvalamiðstöðinni Húsavík og hvalaeyjunum Vestmannaeyjum. Þarna eru manneskjur, fiskar, fuglar, hvalir og selir. Mikill fjöldi ljósmynda af þessu öllu sem teknar eru á þessum stöðum og á hafi úti í nágrenni þeirra.

Mér hlotnaðist sá heiður að fá að skrifa texta þessarar bókar. Snillingurinn Friðþjófur Helgason tók ljósmyndir. Þegar bókin er skoðuð þá sést vel hve stórkostleg náttúra landsins er séð á hafi úti. Hvalaskoðun er svo sannarlega einstök upplifun fyrir það fólk sem nýtur hennar. Það veit ég sjálfur eftir að hafa margoft hitt þessi stórkostlegu dýr á hafi út.

Bókin er líka gefin út í enskri þýðingu og heitir þá "Grandees of the Ocean".

Í lokaorðum að inngangi hennar segir:

"Þessi bók leitast við að fanga þessa miklu sinfóníu náttúrunnar þar sem hvalirnir leika aðalhlutverk en aldrei einleik. Við erum öll hluti af einni stórri heild sem er náttúran og lífið sjálft."

Þegar ég fletti henni, þá er ég ekki frá því að það hafi tekst að fanga einmitt það sem við ætluðum.

Og það voru ekki hvalir.

Hér eru meiri upplýsingar um bókina.

Engin ummæli: