
Það hefur verið áhugavert að fylgjast með borgarstjórnarfundi í dag og í kvöld.
Svona í ljósi liðinnar umræðu undanfarinna vikna velti ég því fyrir mér hvort minnihlutinn hafi tekið sig saman um að nota þá taktík að reyna að grafa undan Ólafi F. Magnússyni með lævísum hætti þar sem með vandlegu orðavali og gjörðum er dylgjað um borgarstjórann? Að hann gangi ekki á öllum stimplum, - eins og við sögðum á sjónum í gamla daga.
Lítum á nokkur dæmi:
"Borgarstjóri rökræðir við sjálfan sig", segir Dagur (Samfylking).
"Lifir í sýndarveruleika - keisarinn ekki í neinum fötum", segir Svandís (Vinstri græn).
"Borgarstjóri ekki í tengslum við raunveruleikann" heyrði ég Sigrúnu Elsu Smáradóttir (Samfylking) segja í ræðustól áðan þegar ég hlustaði á beina útsendingu úr ráðhúsinu á netinu.
Fyrir þetta uppskar Sigrún Elsa áminningu, frá fundarstjóra Hönnu Birnu Kristjánsdóttir forseta borgarstjórnar.
Fyrr í dag lagði Óskar Bergsson (Framsókn) sjálfsagðar fyrirspurnir fyrir borgarstjóra. Ólafur Friðrik neitaði að svara borgarfulltrúanum. Borgarstjórinn sagði víst í staðinn eitthvað um að Óskar Bergsson sé smánarblettur á borgarstjórn Reykjavíkur. Að minnsta kosti fæ ég ekki séð annað á þessari frétt DV.
Er ekki fáheyrt að borgarstjóri afgreiði fyrirspurn frá kjörnum fulltrúa með svona skæting?
Hanna Birna sá víst enga ástæðu til að ávíta borgarstjóra fyrir svar hans til borgarfulltrúa Framsóknarflokksins. Hún stökk hins vegar á bjölluna um leið og fulltrúi minnihlutans nefndi hvort borgarstjóri væri í tengslum við raunveruleikann í sambandi við útfærslur í leikskólamálum.
(...meira ruglið).
1 ummæli:
Svona til fróðleiks þá er tal fjármálaráðherra Anders Borg í sænska útvarpinu frá 16. febrúar sérstaklega frábært. Sá talar um auðmýkt endalaust og svo eru veðurfréttir og þar á eftir er talað um þvingunaraðferðir fyrir þá sem eru atvinnulausir. Ægilegt að hann skemmdi daginn fyrir mér, þar sem að yngsti sonur minn á afmæli einmitt þann dag.
Hvað, gæti verið að Anders Borg hafi lesið greinargerðina sem ég gerði um auðmýkt. Nei það getur ekki verið, þetta var bara bull. Virðist sem móttökukonan í heilbrigðisráðuneytinu hafi gert það þegar að ég kom þar við. Hún hefur kannski gefið honum hugmyndina. Hver veit? Er það ekki þægilegt að samstarfið virki á milli þessara stofnana, heilbrigðisráðuneytisins og Socialstyrelsen i Svíþjóð, kannski með hjálp frá Pfizer og fjármálaráðherra Svíþjóðar?
Skrifa ummæli