laugardagur, 26. apríl 2008

Soraöfl í djúpum skít

Ég hef verið mjög hugsi yfir mótmælunum við Rauðvatn.

Á síðasta vetrardag árið 2008.

Þar var farið yfir ákveðnar ósýnilegar línur í mannlegum samskiptum þegar borgaraleg óhlýðni og mótmæli eru annars vegar hér á landi. Bæði af hálfu þeirra sem mótmæltu, en samt miklu meira af hálfu valdstjórnarinnar.

Sagan mun leiða í ljós hvort hér var um vatnaskil að ræða.

Mörgum er brugðið.

Frá mubbleruðum heimilum virðulegrar borgarastéttar Reykjavíkur sem aldrei hefur verið í alltof miklum tengslum við alþýðu þessa lands berast reiðiöskur. Grein Sigurðar Líndal lagaprófessors í Fréttablaðinu ber vitni um þá taugaveiklun sem nú ræður ríkjum meðal þessa þjóðfélagshóps. Valdir þingmenn eru farnir að styðja soraöfl þjóðfélagsins, skrifar prófessorinn.

Nú jæja?

Ég held að mótmæli vörubílsjóranna séu miklu meira en deilur um olíuskatt og hvíldartíma. Í þessum mótmælum kemur uppsöfnuð reiði almennra borgara í þessu landi upp á yfirborðið. Reiði sem meðal annars stafar af því að útvaldir aðilar hafa á undaförnum árum komist upp með það að grafa undan þjóðfélaginu okkar og eyðileggja það innanfrá í botnlausri siðblindu með taumlausri græðgi. Á meðan er fólkið sem heldur samfélaginu gangandi (fólk eins og vörubílstjórar) látið strita endalaust án þess að eiga nokkra möguleika á því að sjá nokkru sinni til lands.

Vörubílstjórarnir eru bara fyrstir til að brjóta ísinn. Aðrir munu fylgja eftir.

Flestir stjórnmálamenn hér á landi skilja ekki þessa strauma. Þeir skynja þá ekki heldur. Stéttaskiptingin hér á landi er orðin slík að það er búið að reisa nær ókleifa ósýnilega múra milli "vinnandi fólks" og þeirra sem tilheyra því sem kalla má kjaftafögin. Þau síðarnefndu halda í grunnhyggni sinni að þau stjórni umræðunni í landinu.

Margt menntafólk (svokallaðir "álitsgjafar"), fjölmiðlafólk og stjórnmálamenn sem tilheyra ríkisstjórnarflokkunum. Auk nýríku braskaranna þá er þetta sjálfskipað hefðarfólk nútímans. Veruleikafirrt lið upp til hópa eins og franska hirðin á 18. öld.

En það er mikill misskilningur að þessi nútíma hirð valdahafanna hafi þau áhrif sem hún ímyndar sér.

Hér á landi er rík hefð fyrir því að fólk hittist til að ræða saman um þjóðfélagsmál. Ekki á skipulögðum fundum, heldur á förnum vegi. Á götu úti, á kaffistofum, í sundlaugunum, á rakarastofunum. Þarna er hinn þögli meirihluti fólksins sem hefur mikið langlundargeð. Þetta fólk er engir kjánar. Það er duglegt, vant að bjarga sér og má sjaldan vera að því að líta upp úr striti hversdagsins. En á endanum sýður upp úr. Venjulegt fólk fær nóg og tekur til sinna ráða þegar það missir virðinguna fyrir valdinu. Þegar það hefur engu lengur að tapa.

Þá eru hin raunverulegu soraöfl þessa lands í djúpum skít.

Og þangað stefna þau nú.

Góða ferð.

10 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég held það þurfi að lesa grein Sigurðar Líndal í samhengi og alla greinina í heild. Hins vegar held ég að það sé ekki málflutning neins til góða að kalla andstæðinga eða þá sem þú ert ekki sammála nöfnum. Slík er ekki málflutningi neins til framdráttar. Hvort sem um er að ræða mómælendur eða lögreglu.

Hvað varðar að tengja þessi mótmæli borgaralegri óhlýðni þá uppfylla þau ekki þær "leikreglur" sem um hana gilda. Því þar, eins og um svo margt annað gilda reglur. Ekki ósvipað því að í stríði gilda stríðsreglur sem ber að fylgja.

Til að um borgaralega óhlýðni sé að ræða þá þurfa aðilar að sætta sig við að sæta refsingu vegna þeirra laga sem eru brotin, en í þessum mótmælum er ekki um slíkt að ræða. Þvert á móti reyna mótmælendur að firra sig ábyrgð, t.d. með því að halda því fram að ekki hafi verið um mótmæli að ræða.

Annars sýnist mér málflutningur þinn snúast um að agnúast út í ríkisstjórnina - eins og fólk í stjórnarandstöðu gerir, þ.e. að allt sé þetta lélegri ríkisstjórn að kenna. Þá má spyrja sig, gerir ríkisstjórnin það sem henni sýnist, hefur þá stjórnarandstaðan ekkert að segja um starfsemi yfirvalda - er þá stjórnarandstaðan grútmáttlaus og mætti þá alveg eins sleppa henni?

Nafnlaus sagði...

"mubbleruðum heimilum"? Er þitt heimili ekki búið húsgögnum?

Nafnlaus sagði...

Heyr heyr Magnús, sammála, tel að þarna sé um rétta greiningu að ræða eftir að hafa fylgst með þessum atburðum. Þetta snýst ekki lengur um bensínverð. Þetta snýst um að almenningur er búinn að fá nóg af aðgerðarleysi og vill breytingar. Þetta er bara toppurinn á ísjakanum á þeirri óánægju sem hvílir undir.

photo sagði...

Góð greining hjá þér á hinu raunverulega vandamáli.

Nafnlaus sagði...

Athyglisvert og greinilegt.

Nafnlaus sagði...

Þú ert heimskari en þú lítur út fyrir að vera. Guði sé lof að þú sért ekki lengur á Alþingi.

Magnús Þór sagði...

Sannleikanum verða sumir sárreiðastir.

Nafnlaus sagði...

Sæll Magnús.

Þegar að mótmælt var meirihlutaskiptum í borgarstjórn Reykjavíku í upphafi árs var það kallað nöfnum eins og "skrílslæti", þegar að Saving Iceland mótmæltu meðferð á náttúru Íslands voru mótmælin kölluð "skemmdarverk" og meplimir Saving Iceland "óeirðaseggir." Svo þegar að atvinnubílstjórar mótmæla álögum og aðbúnaði þá heita það "óeirðir."

Ég veit ekki hvort að þetta er eitthvað gegnum gangandi viðhorf en einhverra hluta vegna þá eru það einstaklingar sem að eru lengst til hægri á litrófi stjórnmálanna (frjálshyggju öflin) sem að viðhafa þessi ágætu lýsingarorð.

Ég held að það sé nokkuð ágæt greining hjá þér að þetta sama fólk sé úr takti við þjóðfélagið og restina af heiminum ef að því er að skipta. Það sem að heita óeirðir hérna í Evrópu t.d. (og hef ég nú ljósmyndað ansi margar) myndi sennilega vera kallað hryjðuverka árás af þessum sömu aðilum.

Ég vil samt meina að það séu til aðilar innan vébanda beggja ríkisstjórnarflokkana sem að gera sér fulla grein fyrir ástandinu og hvaða afleiðingar það geti haft ef að ekkert verður að gert. Ég hef hins vegar grun að þessir sömu einstaklingar séu þaggaðir niður af forystunni.

Kveðjur frá Skandinavíu.

Nafnlaus sagði...

Góð grein hjá þér Magnús. Þetta er einmitt eins og ég upplifi þetta. Fólki er ofboðið.

Nafnlaus sagði...

Sammála þér Magnús
jon A Jonsson