föstudagur, 11. apríl 2008

Samfylkingin meðsek í Íraksstríðinu

Þvílíkur skandall sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er í hlutverkinu sem utanríkisráðherra Íslands.

Í dag fór hún á fund Condoleezu Rice í Washington. Konunnar sem var í lykilhlutverki þegar ráðist var á Írak. Konunnar sem enn er í lykilhlutverki fimm árum síðar þar sem styrjöldin geisar sem aldrei fyrr.

Ekki eitt orð hjá Ingibjörgu í dag um Íraksstríðið eða þátttöku Íslendinga í innrásinni þar. Engin tilraun gerð til að segja bandarískum stjórnvöldum að stuðningur Íslands hefði verið mistök. Samfylkingin sem allt síðasta kjörtímabil þóttist vera á móti Íraksstríðinu, sýndi að flokksforystan meinti ekkert með því tali. Þetta var bara blekkingar og lygi af sama toga og beitt var til að ljúga upp forsendur fyrir því að ráðast á Írak með hroðalegum afleiðingum.

Samfylkingin er hér með jafn sek og Sjálfstæðisflokkurinn þegar um er að ræða aðkomu Íslendinga að Íraksstríðinu. Sa sem ekki þorir að andmæla voðaverkum þegar hann fær tækifæri til eins og Ingibjörg í dag, gerir sig sekan um þáttöku í þeim. Svo einfalt er það.

Rifjum upp hvað Ingibjörg Sólrún sagði í þingræðu 16. nóvember 2006:

"Það er svartur blettur á þessari ríkisstjórn að hún skyldi ljá máls á því að styðja innrásina í Írak og það er blettur sem þjóðin sem heild situr uppi með. Ríkisstjórnin hefur aldrei gert upp við stuðning sinn við innrásina í Írak. Og ég tók eftir því þegar frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins voru spurðir um afstöðu sína til innrásarinnar í Írak þá fóru þeir eins og kettir í kringum heitan graut. Flestir hverjir svöruðu að innrásin hefði verið röng í ljósi þeirra upplýsinga sem nú liggja fyrir. En innrásin í Írak var röng í ljósi þeirra upplýsinga sem lágu fyrir þegar innrásin var gerð, gleymum því ekki.

Hans Blix, sem var í forsvari fyrir þeirri leit sem fram fór í Írak að gereyðingarvopnum, kom m.a. hingað til lands og hélt um þetta erindi, fleiri en eitt og fleiri en tvö. Hans Blix fann engin gereyðingarvopn. Hann bað þjóðir heims að bíða, hann bað um lengri tíma, bara örlítinn tíma í viðbót til þess að staðfesta að þarna væru ekki gereyðingarvopn.

Hvað var gert? Hann var hæddur og smáður af Bandaríkjastjórn og af þeim sem fylgdu henni að málum. Auðvitað berum við sem þjóð fulla ábyrgð á að hafa tekið þátt í þessu. Við berum þar af leiðandi siðferðilega og pólitíska ábyrgð á þeirri ógnaröld sem nú er í Írak.

Ástæðan fyrir því að ríkisstjórnin lét glepjast til þess að styðja við innrásina í Írak, það er ekki hægt að líta öðruvísi á en að þessi siðlausa ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli skammsýnna eiginhagsmunasjónarmiða. Ríkisstjórnin hélt að hún gæti komið sér undan því að takast á við nýjan veruleika í öryggis- og varnarmálum ef hún veitti Bandaríkjastjórn pólitískan og siðferðilegan stuðning í innrásinni í Írak, hún gæti með öðrum orðum verslað í málinu. Ég hygg að aldrei hafi íslensk stjórnvöld lagst jafnlágt".


"Jafnlágt!" Sá var góður....

Ingibjörg Sólrún er búin að setja nýtt Íslandsmet í lágkúru og tvöfeldni innan stjórnmálanna.

-------------------

Sjá einnig:

Afsökunarbeiðni til þjóðarinnar.

Vígfús og Vígreif í Vosutúni.

Myndband: Skoski þingmaðurinn George Galloway vitnar fyrir Bandaríkjaþingi. Hann hefði ekki skort kjark til að tala í dag:


Engin ummæli: