fimmtudagur, 3. apríl 2008

Danska Samfylkingin komin í hakkavélina



Berlíngur í Danmörku birti áhugaverða skoðanakönnun nú á sunnudag. Hún var mæling á fylgi dönsku flokkanna - "hvað myndir þú kjósa ef það yrðu þjóðþingskosningar á morgun?".

Niðurstaðan er merkileg. Síðast var kosið 13. nóvember síðastliðinn eftir að minn maður í danskri pólitík, Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra og formaður frjálslynda flokksins Venstre, hafði ákveðið að efna til kosninga.

Forsætisráðherrann tók mikla áhættu en það kom ekki á óvart. Anders Fogh býr nefnilega yfir nokkru sem er nauðsynlegt hverjum góðum leiðtoga og það er að hafa hugrekki. Og honum tókst það sem hann ætlaði sér, sem var að fá endurnýjað umboð frá dönsku þjóðinni til að borgarleg ríkisstjórn stýrði Danmörku allt að næstu fjögur árin.

Borgaralegu flokkarnir héldu velli.

Þetta þýddi að sósíaldemókratarnir sem er danska útgáfan af Samfylkingunni hér á landi, urðu ásamt hinum vinstri flokkunum að sitja áfram í stjórnarandstöðu. Og nú sjáum við að þessi stærsti flokkur á vinstri vængnum er að tapa. Og tapa. Og tapa. Og tapa......

....og það er fínt!

Danska Samfylkingin sem fékk 25,5% í kosningum í nóvember mælist nú með aðeins 20,9% í skoðanakönnun sunnudagsins. Hefur sjaldan eða aldrei mælst með jafn lítið fylgi. Anders Fogh og hans frjálslyndi flokkur halda hins vegar örugglega sæti sínu sem stærsti flokkur Danmerkur. Mælast nú með 27% og hafa samkvæmt því bætt við sig þremur þingsætum frá í nóvember.

Það er augljóst að dönsku kratarnir eru í verulegum vandræðum. Þau eru nú við það að missa forystuhlutverk sitt á vinstri kantinum í hendurnar á Sosialistisk folkeparti, sem er væntanlega systurflokkur Vinstri grænna hér á landi. Sá flokkur mælist nú með jafn mikið fylgi og kratarnir.

Sjá frétt Berlingske Tidende um könnunina með því að smella hér.

Við skoðun á þessari skoðanakönnun hlýtur hugurinn að reika hingað heim til Íslands. Hér beið Samfylkingin afhroð í alþingiskosningunum í fyrravor. Forysta Sjálfstæðisflokksins valdi þann kostinn eftir kosningarnar, að hafna möguleikanum á borgaralegri ríkisstjórn með góðum þingmeirihluta Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Frjálslynda flokksins.

Í staðinn var farið í að kippa Samfylkingunni og strandkafteinum hennar með í ríkisstjórn. Hefði það ekki gerst þá hefðu sömu örlög beðið íslensku Samfylkingunnar og sú danska hefur nú hlotið. Það er fylgistap og upplausn, með tilheyrandi glundroða á vinstri vængnum.

En nú dafnar Samfylkingin eins og púkinn á fjósbitanum. Mælist ítrekað með aðeins minna fylgi en Íhaldið og langt yfir því sem hún fékk í alþingiskosingum í vor (26,8%).

Ég er ekki viss um að Geir H. Haarde og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fái margar blaðsíður um sig þegar saga Sjálfstæðisflokksins í upphafi 21. aldar verður færð í letur.

Allavega ekki eins og horfir í dag...

Engin ummæli: