sunnudagur, 27. apríl 2008

Það kvað vera fallegt í Kína

Silfur Egils í dag.

Ég var þar.

Síðar í þættinum var Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra og formaður Samfylkingar í drottningarviðtali. Hef ekki séð það enn, en þessi frétt greinir frá því að Kína styðji framboð Íslands til setu í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.

Eins og almenningur hefur fengið að vita þá er sætið í Öryggisráðinu brýnasta viðfangsefni íslenskra ráðamanna nú um stundir.

Íslensku þjóðinni á víst að vera létt við heyra að Kína segist nú ætla að styðja Geir og Ingibjörgu í bröltinu að stólnum góða hjá Sameinuðu þjóðunum.

Sækjast sér um líkir segi ég.

----------

Hér á landi eru engin teikn á lofti um að stjórnvöld hyggist fara að úrskurði mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna um réttinn til að stunda fiskveiðar.

Hér á landi sigar ríkisstjórnin vopnuðu lögregluliði á verkafólk sem er með múður. Menn sem hafa drýgt þá synd að hafa gert sjálfstæðar tilraunir til kjarabaráttu, þegar fullreynt er að valdstjórnin skellir árum saman skollaeyrum við óskum þeirra í viðræðum.

Annar flokkanna í þessari ríkisstjórn kennir sig við sósíalisma, mærir í hátíðarræðum alþýðu þessa lands og baráttu hennar fyrir bættum lífskjörum.

----------

Í Kína er þetta svipað. Þar blaktir líka rauður litur hins ömurlega sósíalisma við hún. Þar eru stunduð mannréttindabrot og fólk hrakið frá eignum sínum. Hér fyrir neðan er áhugaverð fréttaskýring frá SKY sjónvarpsstöðinni.

Og í Kína er lögreglu sigað á þá sem eru með múður við valdstjórnina. Þar berja þau líka alþýðuna ef hún dirfist að ybba gogg.

Meira þarf ekki að telja.

Við megum víst vera stolt af stuðningnum.

Sækjast sér um líkir.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það er alveg ótrúlegt að þú skulir voga þér að bera þetta tvennt saman. Og þetta segi ég ekki af því mér sé svo sárt um orðstír Ingibjargar eða Samfylkingarinnar - og enn síður vegna þess að mér þyki erindi okkar í öryggisráðið mikilvægt eða réttlætanlegt að gera hvað sem er til að fá þar sæti - nei, þetta segi ég vegna þess að mér þykir þú gera afskaplega lítið úr fórnarlömbum "sósíalistanna" sem fara með völdin í Kína með þessu pólitíska klámhöggi þínu.
Ég sagði í upphafi að það væri ótrúlegt að þú vogaðir þér að bera þetta saman; trukkarana í Árbænum og andófsmenn í Kína, aðferðir íslenskrar lögreglu og kínverskrar leyniþjónustu, Samfylkingar og Kínverska Kommúnistaflokksins - en svona eftir á að hyggja er það kannski ekkert svo ótrúlegt, þegar athugað er hvaðan það kemur - nefnilega frá þér.
Svei attan.

Magnús Þór sagði...

Bíddu nú við. Ef það er svona hræðilegt að benda á að Kína og Ísland eiga það sameiginlegt að í báðum löndum eru ríkisstjórnir sem stunda mannréttindabrot og stunda það að siga vopnaðri lögreglu á alþýðuna þá er það ekki vegna þess að ég sé að fara með rangt mál.

Því þetta eru staðreyndir.

Samkvæmt "nafnlausum" þá er það vegna þess að ég dirfist að nefna kínversk stjórnvöld í sömu andrá og íslensk. Væntanlega vegna þess að Kínverjar eru svo hræðilegir.

Og þá spyr ég: Af hverju fjargviðrast "nafnlaus" þá ekki yfir því að við skulum leggja lag okkar við kínversk stjórnvöld í staðinn fyrir að skamma mig?

Sannast hér hið fornkveðna?

"Þegar fingurinn bendir á tunglið, þá starir fíflið á fingurinn".