Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins hljóta að hafa kallað á krísufundi hjá forystu Samfylkingarinnar í morgun, það er að segja ef ráðherrasveit flokksins er þá yfir höfuð á landinu.
Á nokkrum vikum er flokkurinn búinn að glutra niður þeirri miklu meðsveiflu sem hann naut fyrstu mánuðina eftir alþingiskosningar þar sem fylgið rauk upp. Nú er staðan þannig að Fréttablaðið mælir fylgi Samfylkingar 26,8%. Í síðustu könnun blaðsins sem gerð var í lok febrúar mældist þetta fylgi 35,2%.
Þetta er fall upp á 8,4% - rúmt prósent á viku!
Ekki skrýtið. Samfylkingin er ekki að standa við neitt af því sem hún þóttist standa fyrir í kosningum í fyrravor.
Síðan sjáum við líka að samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna fellur úr 75,3% þann 23. febrúar síðastliðinn, í 65,4% núna. Niður um tíu prósentustig!
Jibbí!!!
Gott mál.
mánudagur, 21. apríl 2008
Samfylking hlaupin fyrir björg
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
Já, einmitt. Fallfylgið svarar til heildarfylgi F-listans.
Hafðu engar áhyggjur Gísli. Við tökum þetta á seiglunni en þið eruð komið yfir toppinn og nú hallar hratt undan fæti. Hveitibrauðsdagarnir eru búnir og þið nýttuð þá ekki nógu vel.
Ég er farinn að hallast að því að þetta ríkisstjórnarsamstarf eigi eftir að springa...
Samfylkingarmenn tala út og suður og sama gildir um sjallana...
Þessi stjórn gat aldrei gengið upp. Samfylkingarforystan fór inn í hana af örvæntingu einni saman og slíkt kann ekki góðri lukku að stýra.
ÆÆÆ kallinn, komst þú ekki á þing. Ætli það fari ekki eins fyrir restinni af þingmönnum ykkar í næstu kosningum, allir út.
Vonarstjarnan ykkar hann Viðar er á góðri leið með að stúta fylgi ykkar á meðal unga fólksins.
Skrifa ummæli