Síðastliðinn föstudag fór ég vestur í Ólafsvík til að taka þar dagstund þátt í málþingi um atvinnumál á vegum Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Það var haldið í ljósi þess að kvótaskerðing í þorski er firnamikið högg fyrir byggðir á Vesturlandi og þó einkum á norðanverðu Snæfellsnesi.
Þetta var gott málþing og gagnlegt. Þarna voru þingmenn allra flokka í Norðvesturkjördæmi - nema Samfylkingar. Báðir þingmenn Frjálslynda flokksins í kjördæminu voru þarna, það er Guðjón Arnar Kristjánsson og Kristinn H. Gunnarsson. Einnig varaþingmenn flokksins þær Þórunn G. Kolbeins og Ragnheiður Ólafsdóttir.
Sjálfum fannst mér áhugaverðast að heyra af vistfræðirannsóknum í Breiðafirði sem unnið er að frá Ólafsvík. Það eru rannsóknir sem ætti náttúrulega að vera búið að gera fyrir löngu. Við í Frjálslynda flokknum höfum lengi prédikað að leggja beri miklu ríkari áherslu á slíkar rannsóknir, í staðinn fyrir að eyða nær öllum peningum Hafró í að reyna að telja fiskana í sjónum til að þóknast heimskulegu kvótakerfi.
Ég gat reyndar ekki hughreyst fólk á fundinum. Sagði sem var að líklega verður ýsukvótinn skorinn niður í um 75.000 tonn í vor (mínus sirka 20%), og að hann haldi síðan áfram að falla árlega eftir það.
Síðan að við komum til með að hjakka í 100 til 130.000 tonna þorskkvóta árlega í fyrirsjáanlegri framtíð.
Þetta er það sem blasir við eftir togararallið í vor. Já, mikill er árangur "fiskveiðistjórnunarinnar" sem Sjálfstæðisflokkurinn ber alla ábyrgð á (og Samfylking líka því hún steinþegir um þessi mál).
Á leið okkar í Ólafsvík komum við frjálslynd við í Stykkishólmi. Þar hittum ég og Kristinn H. nokkra heiðursmenn sem sýndu okkur merkið á myndinni hér fyrir ofan. Þetta er límmiði sem frambjóðendur Samfylkingar í Norðvestur kjördæmi, með Skagamanninn Guðbjart Hannesson í fararbroddi, - dreifðu til kjósenda í fyrravor. Þessi límmiði er gott dæmi um það að Samfylkingin er ómarktæk.
"Burt með sturlaðar samgöngur" sögðu þau með tilvísun til þess að Sturla Böðvarsson var þá samgönguráðherra. Um leið og þau hlógu hátt að eigin fyndni á kostnað Sturlu og flokks hans lofuðu þau því að ef Samfylking kæmist til valda þá yrði gjaldið í Hvalfjarðargöng afnumið. Þau stóðu meira að segja við munna Ganganna og dreifðu þessum límmiða.
Ég er viss um að afnám gjaldsins í Göngin yrði góð mótvægisaðgerð fyrir Norðvesturland allt, og mikil lyftistöng fyrir byggðirnar á mjög erfiðum tímum.
Frjálslyndi flokkurinn hefur og flutt þingmál í þá veru á þessum vetri.
En nú er Samfylking bráðum búin að vera tæp ár í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum sem stóð fyrir "sturluðum samgöngum" hér á landi. Samgönguráðherrann sem Samfylkingin gaf í skyn að væri sturlaður er búinn að vera forseti Alþingis í jafn langan tíma og þar með handhafi forsetavalds. Þetta með samþykki Samfylkingar.
Og samgönguráðherrann Kristján Möller er Samfylkingarinnar, þannig að flokkurinn er með samgöngumálin á sinni könnu.
En ekkert bólar á efndum loforðsins um afnám gjaldsins í Hvalfjarðargöng.
Ég er búinn að fatta þetta. Samfylkingin var í raun að lofa sturluðum samgöngum kæmist hún til valda.
Og hún hefur staðið við það.
þriðjudagur, 22. apríl 2008
Við fengum sturlaðar samgöngur!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Það er eitt að komast til valda...
en annað þegar til kastanna kemur... Þau voru kannski að tala héðinsfjarðargöngin...:)
Nei, þarna stendur Hvalfjarðargöngin. Þessi kosningavíxill er stílaður á þau. Og hann á eftir að verða Samfylkingunni dýr - í það minnsta í Norðvesturkjördæmi og var þó ekki úr háum söðli að detta. Samfó galt afhroð hér í fyrravor. En þeim verður snýtt endalaust á þessu fyrir næstu kosningar ef þetta verður ekki efnt frekar fyrr en seinna.
Kærar þakkir Magnús Þór fyrir "málefnalegt innlegg" þitt um kosningavíxla og snýtingar.
Það má öllum vera ljóst að Samfylkingin í NV-kjördæmi berst fyrir því með oddi og egg að afnema veggjaldið í Hvalfjarðargöngunum og kynnti það vel í kosningabaráttunni. Ég man ekki eftir baráttu þinni gegn gjaldinu á meðan þú varst á þingi, en fagna að Frjálslyndir fluttu um það tillögu nú í haust og leggja þannig málinu lið. Því miður komst afnám gjaldsins ekki í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar, en það útilokar ekki að gjaldtöku verði breytt á kjörtímabilinu, sú barátta heldur áfram. Skilgreiningin á afhroði í kosningum er þín, gaman væri að heyra um skilgreininguna á þínu eigin gengi. Ég sit á þingi nú en ekki þú ákveðinn í að vinna málefnum kjördæmisins og Samfylkingarinnar framgang. Margt hefur áunnist nú þegar og áfram verður unnið að fjölmörgum góðum málum m.a. með þingmönnum Frjálslyndra og treysti á að þú gerir árangrinum góð skil á blogginu þínu.
Kv. þinn frændi
Gutti
Góðan dag, Guðbjartur Hannesson.
Samfylkingin lagði þetta loforð fram sem heill flokkur á landsvísu í kosningabaráttu til Alþingis. Ekki sem einangrað fyrirbæri í Norðvesturkjördæmi. Þetta kemur glöggt fram meðal annars á þessum límmiða þar sem stendur SAMFYLKINGIN - ekki Samfylkingin í Norðvesturkjördæmi. Það er ekkert annað en billegt undaskot af þinni hálfu Guðbjartur að koma nú og segja að þetta hafi bara verið baráttumál flokksins í einu kjördæmi.
Og jú, ég talaði oft fyrir afnámi gjaldsins í göngin á síðasta kjörtímabili bæði í ræðum á þingi, greinaskrifum, pistlum og öðru. Tók þátt í fyrirspurnum til ráðherra, var ítrekað flutningsmaður þingmáls um að fella niður virðisaukaskatt á gjaldinu. Það er hægt að finna þetta allt. Guðbjartur, þú hefur bara ekki fylgst nógu vel með. Byrjaðu á að skoða ræðusafn mitt á vef Alþingis.
Og varðandi afhroð í kosingum þá kalla ég það afhroð þegar stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn missir tvö prósent í kjördæminu frá 2003 og það með nýjan mann í brúnni. Svoleiðis er það bara.
Og vissulega var það afhroð að ég kæmist ekki á þing - þó vissulega sé orðið afhroð afstætt hugtak. Ég skal verða fyrstur til að viðurkenna það. En ég reyndi að brjóta nýtt land fyrir flokkinn minn með því að skipta úr Suðurkjördæmi yfir í Reykjavík norður því flokknum var nauðsyn að freista þess að ná þingmanni í höfuðborginni. Það tókst en ég datt út þrátt fyrir að auka fylgi flokksins um 0,8 prósent frá 2003 og ná atkvæðafjölda sem hefði allt eins átt að duga fyrir þingsæti. Það munaði mjög litlu.
Niðurröðun jöfunarsæta gerði hins vegar það að verkum að ég fór ekki inn þrátt fyrir að vera inni alla kosninganóttina. Svo er nú það en maður er ekki af baki dottinn fyrir það. Ég sný aftur og mun hiklaust og af miklum krafti sækjast eftir umboði kjósenda til að verða þingmaður á nýjan leik.
Og varðandi kosningavíxil og snýtingar þá er það bara þannig að fólk hér í kjördæminu er mjög mikið að tala um þetta loforð ykkar í Samfylkingunni og velta fyrir sér hvort það verði ekki efnt því þið eruð í draumastöðu til þess verandi í ríkisstjórn og með samgönguráðuneytið á ykkar höndum. Kjósendur munu rukka ykkur um þetta, það heyri ég bara á fólki hér í kjördæminu. Athugaðu að ég fékk þennan límmiða í hendur frá kjósanda að fyrra bragði - ekki á Akranesi - heldur vestur í Stykkishólmi...
Eða er það kannski svo að þið eruð jafn kúguð í þessu "hjónabandi" og Framsókn var með Íhaldinu á sínum tíma? Að þið ráðið í raun ekki neinu sem máli skiptir?
Mbk,
MÞH
Skrifa ummæli