sunnudagur, 13. apríl 2008

BBC World Service á Íslandi

Sigurjón Þórðarson félagi minn bendir á að útvarp BCC hafi í síðustu viku fjallað ítarlega um efnahagslífið hér á Íslandi.

Smellið hér til að lesa og finna umfjöllun BBC.

Það er augljóst að kynningarstarf formanna Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingar á styrkleika íslensks efnhahagslífs snérist upp í PR katastrófu par excellence sem hljómar nú um heimsbyggðina, þegar litli maðurinn á Íslandi sem eru vörubílstjórar, lokuðu ráðherrabílana af í mótmælaskyni við dáðleysi ríkisstjórnarinnar.

BBC World Service greinir skilmerkilega frá þessu.

Annars er augljóst að Geir H. Haarde er sá ráðherra í ríkisstórn í dag sem ber þyngsta ábyrgð á efnahagsástandinu. Hann var fjármálaráðherra á árunum 1998 til 2005. Forstætisráðherra síðan.

Varaformaður Sjálfstæðisflokksins 1999 - 2005. Formaður síðan.

Það æpir á mig þegar ég hlusta á forsætisráðherrann tjá sig í viðtali við BBC að ekki er að finna vott af hugsunum um að hann og flokkur hans, kunni að bera einhverja ábyrgð á ástandinu.

Annars er áhugavert að heyra BBC World Service greina frá svokölluðum "piparsveinaferðum" til Íslands. Af einhverjum ástæðum hefur fréttamanni BBC dottið í hug að splæsa ljósblárri umfjöllun um þær við pistil sinn.

Þegar ég hlusta á þetta allt þá dettur mér í hug Titanic bíómyndin. Ég læt lesendum það eftir að raða í hlutverkin.


Engin ummæli: