miðvikudagur, 30. apríl 2008

Er Framsókn að klofna niður í rót?

Það er áhugavert að fylgjast með því írafári sem Morgunblaðsgrein Jóns Sigurðssonar fyrrverandi formanns Framsóknarflokksins hefur valdið. Ekki síst á meðal hans eigin flokksfélaga.

Augljóst er að Guðni Ágústsson formaður Framsóknarflokksins stormar nú áfram á allt annarri braut í Evrópumálum en að minnsta kosti sumir í flokknum. Þar með talið varaformaður og fyrrverandi formaður eða formenn (ef Halldór Ásgrímsson er talinn með).

Oft er ágætt barómeter á andrúmsloft innan flokka að lesa bloggfærslur eftir félaga innan þeirra raða. Ég hef það einhvern veginn á tilfinningunni að báðar fylkingar innan Framsóknar kenna klofinni afstöðu til Evrópumála að verulegu leyti um hremmingar flokksins. Framsókn varð fyrir miklu áfalli í síðustu Alþingiskosningum. Skoðanakannanir síðan hafa ekki sýnt bata.

Mikið óþol er komið í ESB-sinna innan Framsóknar. Pistill Pétur Gunnarssonar hér á Eyjunni í gærkvöld er gott og ferskt dæmi. Hallur Magnússon skrifaði merkilega tvíræðan pistil nú áðan.

Honum lýkur á orðunum: "Guðni verður væntanlega réttkjörinn formaður á flokksþingi Framsóknarflokksins næsta vor". Er verið að láta í það skína við Guðna að ef hann fari ekki að makka "rétt" í Evrópumálum þá verði steypt undan honum eins og hrafni á næsta landsþingi og hann felldur úr formannsstól?

Síðan kemur Guðmundur Jónas Kristjánsson með áhugaverða ábendingu. Hann setur tímasetningu á birtingu greinar Jóns Sigurðssonar í samband við þá staðreynd að það er miðstjórnarfundur hjá Framsóknarflokknum um helgina. Guðmundur Jónas er lítt hrifin af Evrópudaðri margra innan raða síns gamla flokks.

Verða hnífasettin dregin fram til uppgjörs um helgina?

Engin ummæli: