föstudagur, 11. apríl 2008

Strandkafteinn og samgönguráðherra



Í síðustu færslu minni hér á Eyjunni skrifaði ég í fyrrakvöld meðal annars eftirfarandi:

"Auðvitað á Kristján Möller að fara frá. En hann mun ekki gera það, heldur setja nýja upplýsingafulltrúann Guðmund Steingrímsson í að hanna sniðuga fjölmiðlafléttu til að "bæta ímynd Ráðherrans". Guðmundi til aðstoðar verður Róbert Marshall aðstoðarmaður ráðherra Möllers. Saman kokka strákarnir eitthvað sniðugt. Það hlýtur að vera einhver vegur eða eitthvað sem Ráðherrann getur opnað með pompi og prakt á næstu dögum og þá er allt gleymt. Eða hvað?".

Og nú berast fréttir af því að Kristján Möller sé á siglingu með nýrri ferju til heimahafnar hennar í Grímsey.

Þessi ferja er eitt mesta klúður í seinni tíma samgöngusögu Íslendinga. Á unglingamáli myndi maður væntanlega segja að það "sé ekki alveg að gera sig" fyrir ráðherra að leggja í svona sjóferð, einmitt á þessum bát, akkúrat á þessum tíma. Ætli skipaverkfræðingurinn sem Kristján reyndi að kenna um klúðrið sé með um borð?

Annars bendi ég á þessa undirskriftarsöfnun "Ströndum ekki" sem skynsamt fólk hefur hrundið af stað til að reyna að koma vitinu fyrir sumt fólk (les: pólitíkusa) í samgöngumálum Vestmannaeyja. Skrifa má undir áskorunina með því að smella hér.

Ég er búinn að því.

MYNDBAND ÚR BAKKAFJÖRU:

Engin ummæli: