
Áhugaverðasta frétt helgarinnar er af fyrirspurn norska þingmannsins Gjermund Hagesæter til fjármálaráðherra sósíalista í Noregi.
Björgvinjar Tíðindi (Bergens Tidende) skrifaði um þetta í frétt sem skoða má með því að smella hér. Þar kemur meðal annars fram að Þórólfur Matthíasson prófessor við Háskóla Íslands hafi skrifað grein í Dagens Næringsliv (útbreiddasta viðskiptadagblað Noregs) þar sem hann viðrar hugmyndir um að Ísland og Noregur taki höndum saman í myntsamstarfi. Íslenska krónan yrði stöðugri og vaxtamunur milli landanna hyrfi. Hann er nú næstum tíu prósent!
Við eigum að skoða þetta ofan í kjölin. Mér sýnist Hagesæter lítist vel á þetta. Hann tilheyrir hinum ágæta Framfaraflokki sem er næst stærsti stjórnmálaflokkur Noregs.
Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að við eigum að sækjast eftir miklu þéttari samvinnu við Norðmenn en verið hefur. Þjóðirnar eiga ótal margt sameiginlegt. Sjálfur bjó ég í Noregi í 13 ár, bæði á vesturströndinni og í Norður Noregi. Ég get fullyrt og staðið við það, að Norðmenn eru miklir vinir okkar. Þeim er mjög hlýtt til Íslendinga.
Saman ráða Noregur og Ísland yfir gríðarlegum náttúruauðlindum. Bæði í fiski, hreinu vatni, orku (rafmagni, olíu, gasi). Sömuleiðis hafa bæðar þjóðir yfirburða þekkingu á þessum sviðum náttúrunýtingar. Þjóðirnar eru náskyldar. Þær búa yfir geysiöflugum mannauð þar sem menntunastig er hátt. Tungumál eru skyld, sömuleiðis siðir og venjur. Lönd beggja eru mjög vel í sveit sett landfræðilega séð og ráða saman yfir nánast öllu hafsvæðinu í norðaustanverðu Atlantshafi. Skoðið bara landakortið og leggið saman lögsögu Íslands, Jan Mayen, lögsögu Noregs og hugsanlega 200 mílna svæði umhverfis Svalbarða. Báðar þjóðir standa Guði sé lof, fyrir utan Evrópusambandið og Norðmenn eru ekkert á leið þangað inn.
Í náinni samvinnu gætu Noregur og Ísland myndað hörku liðsheild og spilað frítt milli USA, ESB og Rússlands.
Þetta er raunhæfur möguleiki.
PS. Kortið sýnir ESB löndin með bláu. Frjálsu löndin eru hvít. Við og norska þjóðin erum þar.
sunnudagur, 6. apríl 2008
Áfram Ísland - Heia Norge!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Ég fatta þig ekki nafni. Afsakaðu, en skil ekki hvert þú ert að fara. ESB er föðurlandssvik, en Gamli Sáttmáli er föðurlandsást. Að binda okkar trúss við norðmenn kostaði okkur á endanum sjálfstæðið. Að óska okkur að stjórnmálalegrar tengsla við norðmenn, er að mínu mati það sama og að lýsa því yfir að stofnun sjálfstæðs ríkis voru mistök. Að við hefðum átt að halda okkur í ríkjasambandi við Danmörk. Nei takk, stöndum jafnfætis öðrum evrópu þjóðum innan ESB, ásamt vinaþjóðum eins og Eystrasaltsþjóðunum, Lúxemborg og Möltu (mætti bæta við Króatíu því við vorum eina fyrstir þjóða að viðurkenna sjálfstæði þeirra).
Virðingarfyllst
Magnús Bjarnason
Ég er ekki að mæla með ríkjasambandi við Noreg, né heldur að endurvekja Gamla sáttmála. Bendi bara á augljósa kosti þess að við innleiðum þéttari samskipti við Noreg. Ég er eindregið á móti aðild Íslands að ESB, skyldi það hafa farið fram hjá einhverjum.
Að sjálfsögðu er norðmönnum hlýtt til íslendinga, því þeir telja okkur hluta af þeim, svona svipað og serbar hugsa til Kosovo. Forfeður okkar skrifuðu sögu norðmanna, Hvert er síðan mekka norðmanna á Íslandi? Reykholt. Einnig, ef þú spyrð norðmann um hver fann Ameríku? Þá er svarað með stolti, norðmaður! (En Mark Twain sagði síðan að íslendingar hefðu verið vitrir að týna henni aftur). Nei nafni, að óska eftir þéttari samskiptum við norðmenn væri eins og fyrir fimmtugan mannn að flytja aftur til föðurhúsanna. Ég trúi því að við munum plumma okkur flott innan ESB, því við kunnum þá list að þurfa að standa í pólitískum hrossakaupum. Hreppapólitík og eiginhagsmunagæsla er listgrein sem íslendingar kunna. Aftur á móti í sambandi við norðmenn er um ramman reip að draga, því í eins og sagan sannar þá verðum við þar hýrudregin.
Virðingarfyllst
Magnús Bjarnason
Ég tel mig nú þekkja Norðmenn allvel. Aldrei hefi ég orðið þess var að þeir ásældust Ísland. Þeir bera ákveðna virðingu fyrir okkur við eigum ekki að gera lítið úr þeim og sambandi okkar við þá og skyldleika bæði líffræðilegan, sögulegan og menningarlegan.
Auðvitað höfum við deilt við Norðmenn eins og gengur. Í sumu höfum við farið halloka en þar er fyrst og fremst um að kenna lélegum íslenskum stjórnmálamönnum.
Innan ESB misstum við fljótt tökin á okkar auðlindum í hendur útlendinga. Þar með væri fullveldið farið út í veður og vind. Að missa auðlindirnar væri hneisa því Ísland er gríðarlega auðugt land. Verst að við höfum ekki áttað okkur á því enn, né virðumst við gera okkur grein fyrir möguleikunum ef við höldum rétt á spilum.
Skrifa ummæli