Tónlistarhúsið rís upp úr Reykjavíkurhöfn þar sem menn lönduðu áður fiski og öfluðu þannig bókstaflega beinharðs gjaldeyris í þjóðarbúið.
Þegar ég sá þessa frétt af síðustu og verstu tímum hér á Eyjunni, - þá rifjuðust upp fyrir mér þessi ummæli Jónasar Árnasonar alþingismanns, rithöfundar og leikskálds:
"Ég hélt einu sinni að hægt væri að bjarga heiminum með með sellóspili og öðrum fínum listum. Af og frá að ég geri það enn."
"Ég veit ekki hvenær ellilaun hér á landi komast upp í það að hætta að vera viðurstyggileg móðgun við gamalt fólk. Ég veit ekki heldur hvenær láglaunafólki verður tryggður sá dagvinnutaxti að það geti lifað mannsæmandi lífi. En mér sýnist ýmislegt benda til þess að löngu áður en til slíks komi verði risið tónlistarhús á heimsmælikvarða í Reykjavík"*.
Ó já.
Jónas vissi hvað hann söng.
*Heimild: Jónas Árnason - Viðtalsbók. Rituð af Rúnari Ármanni Arthúrssyni, Svart á Hvítu, Reykjavík 1985. Bls. 172.
föstudagur, 4. apríl 2008
Strand í Reykjavíkurhöfn?
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Þetta eru magnaðar tilvitnanir og hitta nákvæmlega í mark!
Skrifa ummæli