Tilvitnun dagsins er í DV. Blaðið er með flotta grein þar Baldur Guðmundsson blaðamaður fékk að sitja í með Sturlu Jónssyni bílstjóra á stóra mótmælarúntinum í gær. Sturla segir:
"Samgönguráðherra [Kristján Möller, Samfylkingu] hringdi í mig á föstudaginn og svo aftur á laugardag. Hann sagðist skilja óánægju okkar en sagði að við yrðum að hlýða þeim í Brussel. Við búum ekkert í Brussel. Við búum á Íslandi og erum ekki einu sinni í Evrópusambandinu."
Þessi ummæli sýna í hnotskurn þann fádæma ræfildóm og aumingjaskap sem sumir íslenskir stjórnmálamenn hafa til að bera þegar valdið í Brussel er annars vegar. Þessi þrælsótti er sérlega áberandi í sósíaldemókrataflokkunum tveimur sem nú eru við völd - Sjálfstæðisflokki og Samfylkingu.
Ríkisstjórnin ætti að gera sér grein fyrir því að mótmæli bílstjóranna er brennheit og baneitruð kartafla inn í ástand þjóðmála nú. Þessir menn eru töffarar, hertir í atvinnulífinu. Einyrkjar sem láta ekki bjóða sér hvað sem er. Þeir eru von almúgans í þessu landi.
Ég hef mjög mikla samúð með atvinnubílstjórunum. Þeirra barátta er réttmæt.
En í staðinn fyrir að koma til móts við bílstjórana - þó ekki væri nema til dæmis að byrja á að bjóða þeim til fundar og tala við þá - þá flýr parið sem stjórnar landinu með einkaþotu til Rúmeníu!
Fyrir þau sem ekki vita:
Rúmenía er land blóðsugunnar Drakúla.
Rúmenía er líka land herra og frú Sjáseskú.
Þau lögðu líka fljúgandi á flótta á sínum tíma...

Engin ummæli:
Skrifa ummæli