Ég má til með að birta þessa ályktun þingflokks Frjálslynda flokksins frá 7. apríl síðastliðinn:
"Efnahagsvandi okkar og fjármálakreppa bankakerfisins á Íslandi verður ekki leyst með þeirri vegferð að sótt verði um aðild að Evrópusambandinu.Það er ábyrgðarlaust tal stjórnmálamanna að tengja E.S.B. aðild við lausn núverandi vandamála í íslensku þjóðfélagi, enda er aðild að E.S.B. ekki á dagskrá ríkisstjórnarinnar á þessu kjörtímabili.
Upptaka annars gjaldmiðils en íslensku krónunnar í núverandi stöðu leysir heldur ekki þann vanda sem hækkað verðlag vöru, há verðbólga og verðtrygging lánsfjár leiðir af sér í auknum álögum og kostnaði fyrir fólkið í landinu. Nú þegar þarf ríkisstjórnin að beita sér fyrir aðgerðum til þess að ná niður verðbólgu og bæta kjaraskerðingu sem af henni leiðir.
Í þessu ljósi er umræðan um aðild að E.S.B. og evru, sem lausn á núverandi vanda, ábyrgðarlaus. Ríkisstjórnin á að beina sameinuðum kröftum sínum að innanlandsvanda, hækkandi verðlagi og verðbólgu fremur en að einstakir ráðherrar reyni að afvegaleiða umræðuna á þann veg, að aðild að E.S.B. og upptaka evrunnar leysi efnahagsvandann.
Þingflokkur Frjálslynda flokksins áréttar afstöðu flokksins til aðildar að Evrópusambandinu. Flokkurinn hefur allan vara á um hugsanlega aðild. Aðild að sambandinu kemur ekki til greina við núverandi reglur þess í sjávarútvegsmálum. Það er ófrávíkjanleg afstaða Frjálslynda flokksins að Íslendingar sjálfir fari með allt forræði fiskistofnanna og fiskveiðilögsögunnar og annarra sameiginlegra auðlinda.
Reglur Evrópusambandsins gera ráð fyrir því að stofnanir þess ráði ákvörðun um nýtingu einstakra fiskistofna og fari með samninga við erlend ríki um veiðar úr þeim. Engin tök verða á því að takmarka fjárfestingar erlendra aðila í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum sem þannig myndu geta komist yfir forræði veiðiheimildanna.
Áður en til þess kæmi að hugað yrði að aðild okkar að E.S.B. þyrfti að gera róttækar breytingar á löggjöfinni um stjórn fiskveiða og stjórnarskránni til að tryggja eign þjóðarinnar á sameiginlegum auðlindum og nýtingu þeirra.
Þingflokkurinn telur, að við núverandi aðstæður sé ekki tímabært að huga að aðildarumsókn að Evrópusambandinu".
Ég gleymi því aldrei þegar ég heimsótti sjávarútvegsbæi í Norðaustur Skotlandi árið 2003 og ræddi við fólk þar. Þeirri örvæntingu sem þar var vegna þess að Evrópusambandið var gersamlega búið að klúðra fiskveiðistjórnun í Norðursjó. Fólkið stóð frammi fyrir atvinnuleysi. Fiskibátarnir voru sendir í kippum í brotajárn. Jafnvel nýleg skip. Heill heimur lagður í rúst.
Allt þetta var ákveðið í Brussel. Skotar höfðu ekkert um þetta að segja. Hjálparvana uppgötvaði skoska þjóðin að hún var komin úr öskunni í eldinn hvað frelsi og fullveldi varðaði. Ekki bara var hún búin að missa þessi ómetanlegu réttindi og gildi í hendur stjórnmálamanna í London, heldur voru þeir búnir að áframselja allt saman í hendur ótilgreinds valds með aðsetur í belgískri borg.
Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Norðmenn misstu frelsi sitt í seinni heimsstyrjöld í hendur ómanneskjulegasta stórveldis sem heimsbyggðin hefur staðið frammi fyrir. Síðan vita þeir hvað orðin frelsi og fullveldi þýða. Það vakti upp vondar minningar í dag þegar þýski nasistafáninn blakti við hún á byggingu norska Stórþingsins, þó það væri einungis gert vegna kvikmyndatöku.
Nei, - það er engin tilviljun að Norðmenn hafa hafnað ESB aðild tvisvar sinnum í þjóðaratkvæðagreiðslum.
Að lokum - ein af mínum uppáhaldskvikmyndasenum - hún á vel við þessa dagana hér á Fróni. William Wallace frelsishetja Skota kemur til orrustunnar við Stirling og telur kjarkinn í sína menn, en huglausir höfðingjar horfa þegjandi á.
Alba gu bra! (Scotland forever!):
þriðjudagur, 15. apríl 2008
Góð ESB ályktun frá þingflokki
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Þetta er góð ályktun.
Skrifa ummæli