sunnudagur, 27. apríl 2008

Gerum Hans Klaufa að borgarstjóra


Hans Klaufi kom ríðandi klofvega á gömlum geithafri og lagði fram dauða kráku, tréskó og fulla vasa af forarleðju.

Í staðinn fékk hann kóngsdóttur, konungsríki og varð kóngur.

Ólafur F. Magnússon leggur fram flottasta timburhús Reykjavíkur.

Í staðinn fær hann þrjá ónýta húskofa á Laugavegi.

Niðurstaða: Hans Klaufi var klárari en Ólafur F. Magnússon.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Enda var Hans klaufi ekki borgafulltrúi Frjálslynda flokksins eins og Ólafur.

Magnús Þór sagði...

Ólafur Friðrik er EKKI í Frjálsynda flokknum og hann var hættur í flokknum löngu áður en hann varð svokallaður borgarstjóri.

Sem betur fer.

Nafnlaus sagði...

Ólafur F. virðist bara vera í Frjálsynda flokknum, þegar menn þar innan dyra finnst þeir hagnast á því.

Samanber það, þegar Ólafur F. og Margrét stofnuðu nýjan meirihluta í Borginni, þá skyndilega voru þau bæði orðin Frjálslynd. Þrátt fyrir það, að þau bæði séu væntanlega ekki í flokknum.

En eitt er á hreinu, Ólafur F. var kosinn í borgarstjórn undir formerkjum Frjálslyndra.

Mér finnst nú bara, að þið ættuð að afneita honum alveg, en ekki hæla honum sem Frjálslyndum, þegar það hentar ykkur, og öfugt, þegar það hentar ykkur ekki.

Magnús Þór sagði...

Ég hef aldrei hrósað Ólafi F. Magnússyni eftir að hann yfirgaf Frjálslynda flokkinn.

Eiginlega aldrei minnst á manninn.

Ég hef það ekki fyrir vinnureglu að hampa svikurum.

Nafnlaus sagði...

Augljóst að eitthvað hefur slesst uppá vinskapinn milli þín og Ólafs F.

af síðu XF ->
http://old.xf.vefurinn.is/index.php?meira=1364

Skrifað af þér sjálfum, fyrir ekki svo löngu síðan

" Við hljótum að fagna því frumkvæði sem F-listinn hefur sýnt í borgarstjórn. Við hljótum einnig að nota tækifærið hér og nú til að hvetja borgarstjórn til að samþykkja tillögu Ólafs F. Magnússonar um að vernda Þjórsárver".

Og eins og ég sagði í upphafi þessa pistils þá hafði Ólafur F. Magnússon og Frjálslyndi flokkurinn fullan sigur í þessu máli. Þetta sýnir nokkuð sem ég hef vitað lengi, sem er að Ólafur F. Magnússon er mjög öflugur stjórnmálamaður. Hann er snjall, hreinskiptinn og heiðarlegur í öllum viðskiptum, trúr eigin sannfæringu og ötull baráttumaður fyrir þeim góða málstað sem Frjálslyndi flokkurinn stendur fyrir.

Ég er sannfærður um að Frjálslyndi flokkurinn mun ná góðum árangri í borgarstjórnarkosningunum í vor með Ólaf F. Magnússon og Margréti Sverrisdóttur í efstu sætum. "


Hvenær hætti Ólafur F. að vera snjall, hreinskiptinn, heiðarlegur og trúr ?

Magnús Þór sagði...

Takk fyrir að setja þessa athugasemd inn Golli. Gott að rifja þetta upp sem mun vera frá því veturinn 2005-2006.

Málið er nefnilega að ég hafði mjög mikið álit á Ólafi sem stjórmálamanni. Sýndi honum aldrei annað en fulla virðingu og vinsemd. Hið sama gildir um aðra í Frjálslynda flokknum að ég best veit.

En álit þetta fauk út í veður og vind þegar hann yfirgaf flokkinn án skýringa rétt hálfu ári eftir síðustu borgarstjórnarkosningar þar sem Frjálslyndi flokkurinn hafði lagt allt undir til að koma honum í borgarstjórn í annað sinn.

Öll aðkoma Ólafs að Frjáslynda flokknum og svik hans við félaga þess flokks er áhugaverð saga sem verður sögð í fyllingu tímans.