Fréttastofa Ríkisútvarpsins gat með andköfum komið þeim boðskap til þjóðarinnar nú í kvöld að Ísland gæti hæglega farið inn í ESB á tveimur árum.
Talað var við mann sem heitir Aðalsteinn Leifsson. Sjá þessa frétt á vef Ríkisútvarpsins:
"Aðalsteinn Leifsson, lektor við Háskólann í Reykjavík og sérfræðingur um málefni Evrópusambandsins, segir efnahagsástandið í landinu skýra óvenju mikinn stuðning við undirbúning viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu, samkvæmt könnun Fréttablaðsins, sem birt var í dag.
Þar sögðust 68 prósent svarenda vera hlynnt því, að ríkisstjórnin hefji undirbúning aðildarumsóknar. Háir vextir á Íslandi vegi þungt sem og hátt vöruverð hér, borið saman við evrópusambandslöndin. Aðalsteinn segir EES samninginn nú þegar hafa fært Íslendinga svo nærri Evrópusambandinu, að afar stuttan tíma tæki að semja um aðild.
Aðalsteinn segir ríkisstjórnina geta ákveðið upp á sitt eindæmi að hefja undirbúning viðræðna og síðan viðræður um aðild. Hins vegar yrði sjálf aðildin borin undir þjóðaratkvæði, ef sú yrði niðurstaðan. Yrði aðild samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu gæti Ísland orðið hluti af Evrópusambandinu innan tveggja ára".
Ég gúgglaði nafnið.
Ef þetta er sami maðurinn og hefur verið starfsmaður Evrópusambandins, skríbent á vefjum Samfylkingar, varafulltrúi sama flokks í nýju Evrópunefndinni og fyrirlesari um "Evrópuhugsjónina" á fundum "ungra jafnaðarmanna" - allt þetta á meðan hann er kynntur til leiks sem óháður fræðimaður - þá er ég hér með hættur að treysta fréttaflutningi útvarpsins.
sunnudagur, 20. apríl 2008
Er hægt að treysta RUV?
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Sé nú ekki stóru sprengjuna í þessu, enda myndi Aðalsteinn vart leggja fræðimannsheiður sinn að veði í þessu. Það verður aldrei undan því vikist að fræðimenn hafi skoðanir, en þar með er ekki sagt að ekki sé mark á þeim takandi.
Ef menn trúa því, að einstaklingar séu reiðubúnir að rugla saman fræðilegum pælingum sínum í starfi, og víkja frá réttri niðurstöðu til að ná fram einhverjum pólitískum markmiðum, kemur þá krítík af þessu tagi ekki úr hörðustu átt?
Fræðimenn eru líka einstaklingar. Skilin á milli eru ekki alltaf skýr. Því ætti RUV ávallt að geta um pólitísk tengsl þegar hún fær "fræðimenn" til að tjá sig um mál. Þessi vinnubrögð eiga alltaf við. En RUV man aldrei eftir þessum sjálfsögðuheitum nema þegar nafn Þorsteins nokkurs Oddssonar kemur upp en þá er hann kyrfilega feðraður.
Ég hef nú rætt Evrópumálin við téðan Aðalstein og hann verður seint sagður hlutlaus fræðimaður í þessum efnum. Hann hefur vægast sagt mjög sterkar skoðanir í þessum efnum. Nóg veit ég um Evrópumálin til að sjá að margt af því efni, sem komið hefur frá Aðalsteini um þau, er allt annað en hlutlaust og hefur það markmið eitt að færa rök fyrir þeim pólitísku skoðunum hans að Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið. Og hann er svo sannarlega ekki einn um slíkt.
Þetta er t.a.m. hliðstætt og með kollega Aðalsteins, Eirík Bergmann Einarsson, sem var t.a.m. stjórnarmaður í Evrópusamtökunum, pólitískum samtökum þeirra sem vilja að Ísland gangi í Evrópusambandið, á sama tíma og hann birtist reglulega í fjölmiðlum sem óháður fræðimaður, svokallaður "sérfræðíngur í Evrópumálum", í þessum efnum. Eiríkur er annars einmitt líkt og Aðalsteinn fyrrum starfsmaður Evrópusambandsins.
Athugasemdin hér að ofan varð fyrir slysni nafnlaus.
Skrifa ummæli