fimmtudagur, 17. apríl 2008

Plastaðar þjóðvegagirðingar

Eitt er það sem fer ósegjanlega í taugarnar á mér nú þegar vorar.

Það er þetta heyrúlluplast sem hefur fokið af stað og hangir nú fast á girðingum um land allt. Þetta er sérstaklega pirrandi þar sem maður fer meðfram þjóðvegunum - ekki síst þjóðvegi eitt.

Af hverju sjá bændur, sveitafélög og aðrir sem bera ábyrgð á þessum sóðaskap ekki sóma sinn í að láta tína þetta af girðingunum? Þetta er hræðilega ljótt og vart sæmandi þjóð sem er að reyna að selja ferðamönnum ímynd hins hreina lands.

Ísland er nefnilega fagurt þó Samfylkingin geti ekki staðið við það frekar en annað.

Það er líka ótrúlega mikið rusl meðfram þjóðvegunum, sérstaklega á fjölförnum köflum eins og á Kjalarnesi.

Hvar er borgarstjóri "Íslandshreyfingarinnar", hinn meinti umhverfissinni Ólafur F. Magnússon - búrgmeister í sóðalegasta höfuðborgarlandi Evrópu? Upptekinn við á láta taka myndir af sér í blöðin þar sem hann heilsar fólki með handabandi? Hann gæti byrjað vorverkin á að láta hreinsa Kjalarnesið sem er í höfuðborgarlandinu.

Takið eftir þessu með girðingaplastið næst þegar þið farið um þjóðvegina.

Hryllingur.

Engin ummæli: