
"Burt með samgönguráðherra" skrifar Guðmundur Gunnarsson í pistli hér á Eyjunni fyrr í dag.
Ég tek undir þessa kröfu hans. Auðvitað á Kristján Möller að fara frá. En hann mun ekki gera það, heldur setja nýja upplýsingafulltrúann Guðmund Steingrímsson í að hanna sniðuga fjölmiðlafléttu til að "bæta ímynd Ráðherrans". Guðmundi til aðstoðar verður Róbert Marshall aðstoðarmaður ráðherra Möllers. Saman kokka strákarnir eitthvað sniðugt. Það hlýtur að vera einhver vegur eða eitthvað sem Ráðherrann getur opnað með pompi og prakt á næstu dögum og þá er allt gleymt.
Eða hvað?
En ég vil líka setja fram aðra kröfu. Hún er BURT MEÐ LEGSTEINASTEFNUNA í samgöngumálum. Með legsteinastefnu á ég við það þegar samgönguyfirvöld skella við skollaeyrum og trassa fram úr öllu hófi að gera umbætur til að loka slysagildrum, þrátt fyrir ótal viðvaranir.
Reykjanesbrautin hefur verið mjög í sviðsljósinu í dag og það af eðlilegum orsökum eftir hræðileg slys þar í morgun. En annað slys hefur fallið í skuggan af þessu. Það er slys sem verður líka að fá umfjöllun. Fjölmiðlar ættu að beina sjónum sínum að öryggismálum á Vesturlandsvegi.
Í morgun lenti strætisvagninn sem fer á milli Akraness og höfuðborgarsvæðisins, á kyrrstæðum flutningabíl sem stóð á þjóðveginum á Kjalarnesi. Vagninn skemmdist mikið, ökumaður slasaðist á fæti og einhverjir farþegar hlutu minniháttar meiðsl.
Þarna hefði getað farið miklu verr. Eins og sést á myndinni sem fylgir (sem ég tók í morgun skömmu eftir slysið), þá skemmdist vagninn verulega.
Snemma í morgun (9. 4.) var glerhálka á Kjalarnesveginum, sunnan við munna Hvalfjarðarganga. Þar voru einnig miklir sviptivindar eins og oft er á þessum kafla. Þetta er einn mesti rokrass á landinu og er þá mikið sagt. Í fyrra fauk stór strætisvagn hreinlega útaf veginum næstum á sama stað og slysið varð í morgun. Þessi þjóðvegakafli er einnig einn þeirra sem hafa hvað mesta umferðaþunga á landinu öllu. Hann er hættulegur og ætti fyrir löngu að vera komið vel á veg með að tvöfalda hann frá Hvalfjarðargöngum í átt til Reykjavíkur.
En það er annað sem ég vil benda á, sem lýsir trassaskap samgönguyfirvalda þó marg oft sé búið að vara við. Það er að vegfarendur sem koma upp úr Hvalfjarðargöngum sunnan megin fá engar upplýsingar um þau akstursskilyrði sem bíða þeirra á Kjalarnesveginum undir snarbröttum Esjuhlíðum. Það er ekkert upplýsingaskilti eða neitt sem gefur til kynna hvað framundan er.
Mér er full kunnugt um að það er margbúið að nefna það að úr þessu verði að bæta. Þeir sem hafa hvað dyggilegast staðið í þeim málum eru einmitt bílstjórarnir sem aka strætisvögnunum á þessum varasama vegakafla og flytja þúsundir farþega á hverju ári. Þeim er annt um velferð farþega sinna og hafa mjög mikinn áhuga á öryggismálum. Það veit ég eftir að hafa rætt við þá, meðal annars sem einn af þeim sem ferðast með strætisvögnum á þessari leið. Það hefur verið rætt við þingmenn og sveitarstjórnarmenn, þar á meðal þingmenn SAMFYLKINGAR í Norðvesturkjördæmi sem eiga að vera beintengdir við sinn samgönguráðherra. Ég veit að Guðjón Arnar Kristjánssson formaður Frjálslynda flokksins hefur tekið þetta upp á fundum, meðal annars í samgöngunefnd Alþingis. Það hafa verið skrifuð bréf til samgönguyfirvalda.
En ekkert hefur gerst.
Jafnaðarmennirnir; þingmaður og ráðherra Möller og varaþingmaður og aðstoðarmaður Marshall, - mennirnir sem bera ábyrgð og eiga að framkvæma, - ferðast nefnilega ekki með Strætó.
En í morgun varð slys...
Herramenn, heyrið þið það?
miðvikudagur, 9. apríl 2008
Burt með legsteinastefnuna
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
http://www.vegagerdin.is/umferd-og-faerd/ferdaupplysingar/aningastadir/
Þegar þú sest undir stýri og keyrir af stað, ert þú ábyrgur. Það er þitt að meta aðstæður, stjórna hraða o.sv.frv. svo er líka hægt að stoppa tækið.
Gerum ekki aðra ábyrga fyrir okkar akstri.
Auðvitað ber ökumaður ábyrgðina og hann á að haga akstri miðað við aðstæður hverju sinni. En það er líka sjálfsagt að honum sé hjálpað við það að meta þessar aðstæður ef kostur er. Og á það er ég að benda með því að gagnrýna að betur mætti standa fyrir upplýsingagjöf til vegfarenda á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi sem oft er mjög erfiður kafli þjóðvegarins.
Skrifa ummæli