fimmtudagur, 1. maí 2008

1. maí - dagur mótmæla

Í dag ætla ég að fara í 1. maí göngu.

Ég ætla að mótmæla getulausri valdstjórn þessa lands.


- Valdstjórn er sem er skipuð fólki sem lifir í allt öðrum heimi en venjulegt fólk hér á landi.

- Valdstjórn sem geymir heimska og hrokafulla ráðamenn sem svíkja loforð sín til alþýðunnar um leið og þeir komast til valda og loka síðan eyrunum fyrir köllum frá þegnum þessa lands.

- Valdstjórn sem lifir í slíkum fílabeinsturni að hún á engin úrræði önnur þegar þegnar úr hópi verkalýðsins grípa til örvæntingarfullra aðgerða til að fá hana til hlusta, en að siga á þá lögreglusveitum til að niðurlægja þá og refsa.

- Valdstjórn sem er skipuð forystu sem hugsar ekki um hag fólksins, en er á veruleikaflótta á lúxusfarrýmum nú þegar kreppir að þjóðinni.

- Valdstjórn sem lætur það óátalið að þjóðin sé arðrænd upp á hvern einasta dag í skjóli mannréttindabrota.

- Valdstjórn sem horfir þegjandi á það þegar auðvaldsöflin eru að sölsa undir sig geysiverðmætar endurnýjanlegar auðlindir landsmanna.

- Valdstjórn auðmannadekursins sem lætur sér vel líka (og hjálpar í raun til við), að grafið sé undan samfélaginu með því að breikka sífelt bilið á milli hinna ofsaríku og hinna þrautpíndu launaþræla sem í raun halda þjóðfélaginu gangandi með vinnu sinni.

Alþýðu Íslands óska ég til hamingju með daginn.

Vér mótmælum allir!


4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sérhvert orð að muna
alla daga ársins

Nafnlaus sagði...

Sammála

KV Agnes

Nafnlaus sagði...

(síðbúið en betra seint en aldrei) Til hamingju með daginn! Sá þig í viðtalsþætti á netinu um daginn. Sannfærðist þá enn frekar um að FF fengi mitt atkvæði. Þessi flokkur samanstendur að því mér sýnist af gríðarsterkum hópi kjarkmikils fólks sem segir meðan hérinn þegir. Sjáðu bara Höllu Rut og fleiri snillinga. -Er ég á kjörskrá?
Mbk.

Magnús Þór sagði...

Veit ekki með kjörskrána. Ef þú lest þetta þá getur þú sent mér tölvupóst á magnushafsteins@simnet.is

Annars er hægt að ganga í Frjálslynda flokkinn til dæmis á heimasíðu hans www.xf.is

Öll velkomin!