Eitt er það sem slær mig þegar ég heyri fréttir af niðurstöðum skoðanakönnunar Gallup.
Fylgi flokksins sem boðar ESB aðild HRYNUR á milli mánaða.
fimmtudagur, 1. maí 2008
Hrun, hrun, Hrunadans
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Brotabrot úr huganum
Eitt er það sem slær mig þegar ég heyri fréttir af niðurstöðum skoðanakönnunar Gallup.
Fylgi flokksins sem boðar ESB aðild HRYNUR á milli mánaða.
6 ummæli:
Þetta er rétt ályktun hjá þér Magnús.
Hins vegar má kannski segja, að Samfylkingin sé að fá á baukinn vegna svikinna kosningaloforða. Samfylkingin seldi baráttumál sín svo dýru verði, að hún er í raun rígbundinn á klafa stjórnarsáttmálans.
Ráðherrar hafa ýmisslegt sagt um þetta t.d. að Fagra Ísland hafi ekki komist ómenguð inn í stjórnarsáttmálan.
Þetta er vandamálið sem íslenskir stjórnmálaflokkar þurfa að lifa við. Íslensk ríkisstjórnarþátttaka byggist á málamiðlun þar sem mörg málefni fá þau örlög að fljúga út um gluggann eða hent í salt fram að næstu kosningum. Þetta gerði Samfylkingin ekki sér grein fyrir, í aðdraganda síðustu kosninga og hlýtur nú gula spjaldið í skoðanakönnun fyrir vikið.
Athyglisverðast er reyndar hvað Sjálfstæðisflokkurinn heldur alltaf sínu! Þetta er flokkurinn sem er búinn að ráða landinu í hartnær 17. ár!
Og fylgi Frjálslynda Flokksins er 6%. Ættir kannski að einbeita þér meira að því.
Ég einbeiti mér að því en gleðst jafnframt innilega yfir slöku gengi Samfylkingar.
Stjórnmálaflokkur sem í einu orði kennir sig við jafnaðarmennsku og alþýðu og í næsta sendir vopnaðar lögreglusveitir til höfuð almúganum á ekkert gott skilið.
"Ég einbeiti mér að því en gleðst jafnframt innilega yfir slöku gengi Samfylkingar."
Haha vá. Þannig ef gengi Samfylkingarinnar er slakt þá þyrfti eflaust að búa til ný lýsingarorð yfir stöðu Frjálslynda Flokksins.
"Stjórnmálaflokkur sem í einu orði kennir sig við jafnaðarmennsku og alþýðu og í næsta sendir vopnaðar lögreglusveitir til höfuð almúganum á ekkert gott skilið."
Þið í Frjálslynda Flokknum hafið mikið verið að hamra á þessu. Það má í raun skilja þetta þannig að lögreglunni er ekki stjórnað af yfirmönnum hennar heldur tekur beint við skipunum frá ríkisstjórninni. Það er áhugaverð skoðun og væri einnig mjög áhugavert ef þú gætir komið með einhverjar sannanir aðrar en skapandi hugmyndir sem hafa ekkert á bakvið sig.
Í leiðinni eru þið að segja að þær yfirlýsingar sem lögreglan hefur um þessar aðgerðir séu í raun uppspuni. Þeir eru væntanlega að segja það sem að ríkisstjórnin vill að hún segi. Þetta er annar áhugaverður punktur og vonandi geturðu frætt okkur meir um hann.
Frjálslyndi flokkurinn hefur nú verið að sækja á í könnunum undanfarið. Kúrfan hjá okkur er aðeins upp á við á meðan hún er 45 gráður niður á við hjá Samfylkingunni.
Og við erum alltaf með falið fylgi þannig að það mælist ekki allt í könnunum heldur fáum við meira upp úr kjörkössunum þegar kosið er. Mæling á 6 prósentum nú þýðir væntanlega nálega 10 prósenta raunfylgi.
Varðandi þetta með lögregluna þá þarf enginn að segja mér annað en fólkið sem ræður í valdstjórninni hafi vitað að það átti að láta til skarar skríða gegn vörubílstjórunum og að þau hafi gefið grænt ljós á það. Þessi aðgerð var það alvarleg og hún var hápólitísk að því leyti að lögreglulið á ábyrgð og vegum valdstjórnar sem að hálfu er skipuð af flokki sem hingað til hefur gefið sig út fyrir að vera skjólshús fyrir alþýðu þessa lands.
Það að Samfylkingin skuli eiga aðild að valdstjórn sem stendur fyrir því að siga lögreglu á alþýðufólk í kjarabaráttu er í svo gargandi ósamræmi fyrir allt sem þessi flokkur hefur þóst standa fyrir, að þetta mál og önnur sem á eftir gætu fylgt getur átt eftir að hafa mjög alvarlegar afleiðingar fyrir flokkinn, ímynd hans og orðspor meðal almennings.
Og ég fer ekki ofan af því að óháð rannsóknanefnd á að fara í þetta mál og kanna það alveg ofan í kjölinn. Sá kattarþvottur sem fram fór í allsherjarnefnd þingsins nú í vikunni er hvergi ásættanlegur.
"Og við erum alltaf með falið fylgi þannig að það mælist ekki allt í könnunum heldur fáum við meira upp úr kjörkössunum þegar kosið er. Mæling á 6 prósentum nú þýðir væntanlega nálega 10 prósenta raunfylgi."
Þessi staðhæfing er röng. Mæling á 6 prósentum ný þýðir einfaldlega að þið hafið mælst með 6% fylgi í þessari könnun og ekkert annað.
Ef þú ætlar að tala um falið- og raunfylgi þá gæti ég alveg eins sagt að Samfylkingin er með raunfylgi upp a 30% - það er bara falið eins og er. Þannig það er greinilegt að kjósendur Frjálslynda Flokksins og Samfylkingarinnar eru að fela sig þessa dagana.
"Varðandi þetta með lögregluna þá þarf enginn að segja mér annað en fólkið sem ræður í valdstjórninni hafi vitað að það átti að láta til skarar skríða gegn vörubílstjórunum og að þau hafi gefið grænt ljós á það. Þessi aðgerð var það alvarleg og hún var hápólitísk að því leyti að lögreglulið á ábyrgð og vegum valdstjórnar sem að hálfu er skipuð af flokki sem hingað til hefur gefið sig út fyrir að vera skjólshús fyrir alþýðu þessa lands."
Þannig að núna myndirðu segja að hugmyndin komi frá lögreglunni og sé samþykkt af valdstjórninni en ekki öfugt. Þú hlýtur þá að vera ósáttur við hugmyndir lögreglunnar?
"Það að Samfylkingin skuli eiga aðild að valdstjórn sem stendur fyrir því að siga lögreglu á alþýðufólk í kjarabaráttu er í svo gargandi ósamræmi fyrir allt sem þessi flokkur hefur þóst standa fyrir, að þetta mál og önnur sem á eftir gætu fylgt getur átt eftir að hafa mjög alvarlegar afleiðingar fyrir flokkinn, ímynd hans og orðspor meðal almennings. "
Kjarabaráttu? Jahérna. Þeir eru allavega ekki að taka við launum frá ríkinu þannig spurning um að beina spjótunum annað.
Og að lokum - þú styður væntanlega ítrekuð lögbrot vörubílstjóra. Best að lögreglan leyfi þeim bara að brjóta þau í friði.
Skrifa ummæli