föstudagur, 16. maí 2008

Sextíu og átta prósenta stuðningur



Bylgjan gerði netkönnun í gær og í dag.

Spurningin: Ertu sammála röksemdum Magnúsar Þórs Hafsteinsson varðandi flóttamannaaðstoð á Akranesi?

Þetta er niðurstaðan:

Sextíu og átta prósent segja JÁ.

Aðeins þrjátíu og tvo prósent svara neitandi.

Bæjarstjórnin á Akranesi er í MIKLUM vandræðum ef hún samþykkir komu 60 flóttamanna frá Írak á mánudag eins og stefnt er að.

Þeir verða nefnilega 60 þó þau segi 30 til að blekkja íbúa bæjarins.

Og enn verð ég að þakka fyrir mikinn og góðan stuðning. Össur hefði átt að labba með mér áðan gegnum gamla bæjarhlutann hér á Akranesi.....

Hann hefði orðið öfundsjúkur.

16 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þú áttar þig á því Maggi að þessi könnun segir þér lítið sem ekkert, eða hvað? Þetta er ekki vísindaleg könnun eins og t.d. kannanir hjá Gallup og þetta sjálfvalda úrtak endurspeglar ekki þjóðina. En ég held að þú vitir það alveg. Þú virðist bara kjósa að túlka þetta þannig að það komi þér best. Ekki satt?

-Helgi E.

Nafnlaus sagði...

Hvernig er það Magnús lærið þið enga aðferðafræði í fiskifræðinni. Þetta er algjörlega ómarktæk könnun, sjálfvalið úrtak.

Nafnlaus sagði...

Ertu að grínast Magnús??? :-)

Magnús Þór sagði...

Auðvitað veit ég að þetta er ekki vísindaleg könnun byggð á úrtaki en hún styður svo sannarlega þá strauma sem ég verð var við - ekki síst hér á Akranesi bara þegar ég fer út úr húsi og tala við fólk. En líka gegnum símtöl - síminn þagnar ekki. Svo eru það tölvupóstarnir.

Nafnlaus sagði...

http://eyjan.is/silfuregils/2008/05/16/af-gefnu-tilefni/.
Enough said!

Nafnlaus sagði...

Ég studdi magnús í þessari könnun, hverjir eru þið að segja að það sé ekki takandi mark á mér og öðrum sem erum Magnúsi sammála.

Meiri hrokinn og vitleysan.

Takk fyrir

Nafnlaus sagði...

Mér skilst að það hafi um 2000 manns tekið þátt í þessari könnun á visir.is

Visir.is er mest lesni veffréttamiðill á íslandi.


Fólkið í landinu stendur með þér Magnús.

Nafnlaus sagði...

Finnst þér ekkert óþægilegt að hafna fólki í neyð ?

Nafnlaus sagði...

Eru engin takmörk fyrir því hvað þið í Frjálslynda flokknum leggist lágt í atkvæðaleitinni? Að neita að hjálpa þeim sem minnst mega sín, heimilis- og landlausum konum og börnum, vegna trúarfordóma?

Svo vita allir að það er ekkert að marka netkannanir. Man ekki betur en að Ástþór hafi "unnið" eina slíka fyrir einhverjar forsetakosningarnar.

Nafnlaus sagði...

Allir sem ég hef talað um þetta við eru sammála þér Magnús,og það eru nokkuð margir kv.Sigrún

Nafnlaus sagði...

Mikið er ánægjulegt að sjá Egil og elítistana hans engjast yfir þessari könnun.
Þótt ekki sé hún aðferðafræðilega kórrétt þá hefði Agli dottið í hug að minnast á það hefði niðurstaðan verið honum í hag.
Það er annars einkennilegt að Egill minnist núna ekkert á sönsku bókina um Íslamistana, sem hann lét svo mikið með fyrir nokkrum vikum síðan.
Sú umræða hans hafði djúpstæð áhrif á mig.
Aggi

Nafnlaus sagði...

Mikið er ánægjulegt að sjá Egil og elítistana hans engjast yfir þessari könnun.
Þótt ekki sé hún aðferðafræðilega kórrétt þá hefði Agli ekki dottið í hug að minnast á það hefði niðurstaðan verið honum í hag.
Það er annars einkennilegt að Egill minnist núna ekkert á dönsku bókina um Íslamistana, sem hann lét svo mikið með fyrir nokkrum vikum síðan.
Sú umræða hans hafði djúpstæð áhrif á mig.
Aggi

Magnús Þór sagði...

Ég er ekki í atkvæðaleit. Komst bara að niðurstöðu í máli eftir vandlega umhugsun. Þessi niðurstaða er studd ítarlegri greinargerð þar sem ég fer yfir rök mín í málinu sem eingöngu byggjast á félagslegum velferðarsjónarmiðum með hagsmuni íbúa Akraness í huga.

Síðan framdi ég þann ófyrirgefnalega "glæp" að upplýsa bæjarbúa á Akranesi um það hvað væri í bígerð og í raun búið að ákveða af ákveðnum aðillum. Það er að bærinn tekur á móti 60 flóttamönnum frá Írak sem jafngildir því hlutfallslega að um 1.100 slíkir kæmu til Reykjavíkurborgar.

Greinargerð mín og upplýsingagjöf til bæjarbúa sem ERU EIGENDUR bæjarins hafði þær afleiðingar að Frjálslyndum og óháðum var sparkað út úr bæjarstjórn Akraness og öllum nefndum og ráðum á vegum bæjarins.

Það er nú öll uppskeran.

Nafnlaus sagði...

Við hendum þessum kjánum út úr bæjarstjórn í næstu kosningum Magnús.

Vittu til, við viljum ekki aðila sem taka hagsmuni flóttamanna fram fyrir hagsmuni okkar. Auðvitað á að hjálpa þeim sem minna mega sín, en ekki á kosnað þeirra sem þurfa hjálp núna og eiga að ganga fyrir.

Kjósendur hafa verið sviknir og þau svik gleymast ekki og verða ekki gleymd í næstu kosningum hér á Akranesi.
Takk fyrir mig

Nafnlaus sagði...

Magnús þú segir: Auðvitað veit ég að þetta er ekki vísindaleg könnun byggð á úrtaki

WHAT! Auðvitað byggir könnunin á úrtaki! Annars væri engin könnun. Það getur ekki verið að þú hafir lært aðferðafræði.

Nafnlaus sagði...

Spurning dagsins
60 palestínskir flóttamenn koma til Akraness...
Gott mál 60%60% af öllum atkvæðum
Vont mál 33%33% af öllum atkvæðum
Enga skoðun 6%6% af öllum atkvæðum