mánudagur, 26. maí 2008

Heimaskagi á Skipaskaga


Umræðan um hugsanlega móttöku flóttafólks til Akraness heldur áfram.

Nú um helgina var blaðinu "Heimaskagi" sem er málgagn Frjálslynda flokksins á Akranesi dreift í öll hús á Akranesi.

Í því er meðal annars að finna greinargerð þá sem ég skilaði inn sem formaður Félagsmálaráðs Akraness þar sem ég komst að þessari niðurstöðu:

"Miðað við skamman aðdraganda, lítið svigrúm til undirbúnings, mikla óvissu í málinu og þær horfur sem nú eru í bæjarfélaginu þá tel ég alls ekki tímabært að Akranesbær fallist á að taka á móti flóttafólki að svo stöddu. Sem formaður félagsmálaráðs treysti ég mér ekki til að mæla með þessu".

Þarna er líka ýmislegt fleira. Sjón er sögu ríkari.

Það má skoða blaðið með því að smella á myndina hér fyrir ofan.

Engin ummæli: