miðvikudagur, 28. maí 2008

Stríðið á Vesturlandi

Síðasta verk mitt sem formaður menningarmála- og safnanefndar á Akranesi var að taka virkan þátt í að setja upp ljósmyndasýningu um sögu hernáms seinni heimsstyrjaldar á Vesturlandi.

Ég slúttaði þessu með stæl!

Hernámssagan og hlutverk Íslands í seinni heimsstyrjöld hefur lengi verið eitt af mínum áhugamálum, enda tengist þetta beint inn í milliríkjastjórnmál samtímans.

Ég tók að mér það hlutverk að vinna rannsóknir og skrifa texta við þær rúmlega 100 ljósmyndir sem settar hafa verið upp í listasetrinu Kirkjuhvoll sem stendur við hlið Sjúkrahússins á Akranesi. Auk þess tók ég virkan þátt í uppsetningu og skipulagningu sýningarinnar. Þetta var mikil vinna sem stóð oft langt fram á nætur, en þrælskemmtileg þrátt fyrir það.

Með því að smella hér má lesa meira um þessa sýningu sem er stórmerkileg. Ekki síst fyrir þær sakir að á henni eru fjölmargar ljósmyndir frá Akranesi, Hvalfirði, Borgarnesi og Borgarfirði, sem við fundum í aðdraganda sýningar og hafa aldrei birst almenningi fyrr.

Hertrukk var plantað á lóðina fyrir framan Kirkjuhvol og flaggað með íslenska fánanum og þeim breska, rússneska og bandaríska. Nú þegar 68 ár eru síðan Ísland var hernumið blakta þrír síðastnefndu fánarnir til heiðurs þessum Bandamannaþjóðum sem höfðu betur í hildarleiknum mikla.

Sjón er sögu ríkari. Sýningin er opin til 15. júní, alla daga vikunnar nema mánudaga frá klukkan 15 - 18.

Aðgangur er ókeypis.

Engin ummæli: