fimmtudagur, 22. maí 2008

Álag eykst í barnavernd

Á forsíðu Morgunblaðsins í dag stendur í fyrirsögn: Aukið álag á barnaverndarnefndir er áhyggjuefni.

Þessu er fylgt eftir með mikilli umfjöllun í miðopnu.

Barnaverndarmál geta verið mjög erfið og reynt á alla sem aðild eiga að þeim. Ég hef reynslu af því eftir að hafa starfað í Félagsmálaráði Akraness, sem er barnaverndarnefnd bæjarins.

Barnaverndarmálum hjá félagsmálaráði Akraness hefur fjölgað stórlega á örfáum undanförnum misserum. Þetta er staðreynd sem liggur fyrir í tölum. Ástæðurnar eru margar og geta verið sorglegar. Við sjáum eflaust svipaða fjölgun víða um land.

Bæjaryfirvöld á Akranesi hafa ekki verið í stakk búin til að fylgja barnaverndarmálum eftir nema að litlum hluta, vegna mann- og peningaeklu á félagslega sviðinu.

Ég hef verið gagnrýndur að hafa ekki notað tímann á meðan ég var formaður Félagmálaráðs í tvö ár til að koma hlutunum í lag. Við reyndum að vinna í þessum hlutum eftir bestu getu. Það var mikill einhugur í nefndinni um það - og þakka ég þeim sem unnu með mér í nefndinni fyrir gott samstarf. En við höfðum mjög takmarkað fjármagn. Það var reynt að ræða við fulltrúa meirihlutans í bæjarráði varðandi ýmis mál eins og fleiri félagsleg íbúðaúrræði og annað. En þau lágu á bremsunum í þessu og sögðu að enginn peningur væri til.

Sem er útaf fyrir sig rétt ef við ætlum að reka bæjarsjóð í ballans og ekki fara út í lántökur til að fjármagna rekstur. Það er hættuleg blekking að tala um að Akranes sé eitt ríkasta sveitarfélag landsins eins og sumir hafa gert, því að inni í því dæmi er eignarhlutur bæjarins í Orkuveitu Reykjavíkur.

Ætli menn að tala um þann eignarhlut með þeim hætti að þar séu menn með peninga sem hægt sé að eyða, þá eru menn jafnframt að tala um að Orkuveituhluturinn verði seldur.

Sjálfstæðismönnum er svo sem í lófa lagið að gera það nú og þeim er trúandi til þess, eftir að Frjálslyndi flokkurinn er farinn úr bæjarstjórninni.

Þeim hefði aldrei tekist það með okkar samþykki, því við viljum tryggja forræði almennings yfir orkuauðlindunum.

Engin ummæli: