sunnudagur, 4. maí 2008

Vive la France!


Koma fjögurra franskra orrustuþotna til Íslands vekur athygli útí heimi.

Engin furða. Fransmenn hafa hingað til ekki sýnt því mikinn áhuga að deila hertólum sínum með NATO þjóðum eins og okkur.

Ég sé nú í kvöld að Aftenposten í Noregi er með langa frétt um þetta. Norðmenn fylgjast grannt með. Þeir hafa áhyggjur af því að Rússar hafa náð vopnum sínum á nýjan leik og eru farnir að sýna vöðva sína sem stórveldi í Norðurhöfum.

Alveg eins og á tímum kalda stríðsins.

Á næstu áratugum verður tefld mikil refskák um yfirráð og ítök á Norðurslóðum. Koma Fransmanna hingað til lands nú er túlkuð með þeim hætti að þeir ætli ekki að láta þessi átök fara fram hjá sér, heldur taka fullan þátt. Spyrja má hvort það leiði ekki til þess að Rússum þyki enn meir að sér þrengt? Þeim þykir nú nóg um með stöðugri stækkun NATO austur á bóginn, með uppsetningum á eldflaugaskotpöllum þar eystra m. a. með "leynilegri" blessun íslensku valdstjórnarinnar og fleira.

Í frétt Aftenposten kemur fram að Valur Ingimundarson var í Ósló í vikunni til að halda erindi um Ísland og "geopólitík" á Norðurslóðum. Hann ber Norðmönnum þann boðskap segir Aftenposten, að flug á vegum NATO á Íslandi sé ekki lengur umdeilt mál hér á landi. Aftaðan til hermála hafi breyst "dramatískt" eftir að Kaninn fór.

Spyrja má hvort Vinstri grænir geti skrifað upp á þetta?

En það er óneitanlega kómískt að í dag eru það sósíalistar sem áður þrömmuðu gegn hernum, sem standa nú fyrir því að gefa Frakklandi möguleika á því að kasta sér með virkum hætti út í vopnaskak hér á landi sem getur þróað upptaktinn að nýju köldu stríði - kannski fyrr en flesta grunar.

Samfylkingin bregst ekki kjósendum sínum - frekar en fyrri daginn.

"Peace in our times"

Engin ummæli: