Jæja, í dag er dagurinn þegar Sjálfstæðisflokkurinn, Gisli S. Einarsson og Karen Jónsdóttir ræna völdum á Akranesi.
Svartur dagur í sögu bæjarins.
Það er bæjarstjórnarfundur í stjórnsýsluhúsinu við Stillholt á Akranesi klukkan 16:00.
Íbúar á Akranesi sem hafa tök á að mæta, og eru ósáttir við það sem verið er að gera bæjarfélaginu ættu að fara á þennan fund og horfa á valdaránið eiga sér stað. Ég mæti. Þarna á að kasta fulltrúum Frjálslyndra úr öllum nefndum og gera breytingar á reglum til að hindra eins og hægt er, að við sem höfum 9,3 prósent á bak við okkur getum unnið að bæjarmálum sem kjörnir fulltrúar.
Síðan á að fara í að taka algera U - beygju í velferðarmálum bæjarfélagsins með móttöku á 60 flóttamönnum frá Írak á næstu tveim árum. Þetta án þess að kjósendur sem eru eigendur bæjarins og bæjarsjóðs fái nokkuð um það að segja.
Bæjarstjórnarfundurinn er opinn almenningi.
-----------------------
Eftirfarandi yfirlýsing var samþykkt á fundi hjá Bæjarmálafélagi Frjálsyndra og óháðra á Akranesi, sem haldinn var á kaffihúsinu Skrúðgarðurinn á Akranesi í gærkvöldi 15. maí.
Mikill einhugur var á fundinum.
Í lok hans var ég beðinn fyrir að koma þessari yfirlýsingu til fjölmiðla með ósk um birtingu.
Sjálfur er ég sammála þeim hluta yfirlýsingarinnar sem snýr að Karenu Jónsdóttur og Sjálfstæðisflokknum.
Niðurstaðan er þar með sú að 14 af þeim 18 sem voru á listanum eru efnislega algerlega samþykk því sem hér fer á eftir. Karen Jónsdóttir er gersamlega rúin trausti og tiltrú sinna gömlu félaga:
Yfirlýsing frá Bæjarmálafélagi Frjálsyndra og óháðra á Akranesi
VIÐ UNDIRRITUÐ vorum á lista Frjálslyndra og óháðra á Akranesi í sveitarstjórnarkosningum 2006, lýsum yfir fullum stuðningi við Magnús Þór Hafsteinsson varabæjarfulltrúa og formann félagsmálaráðs Akraness. Við erum sammála greinargerð hans vegna beiðni um móttöku flóttafólks á Akranesi sem lögð var fram á fundi meirihluta bæjarfulltrúa og meirihluta fulltrúa í félagsmálaráði Akraness 9. maí síðastliðinn.
VIÐ MÓTMÆLUM því valdaráni sem á sér stað á Akranesi þegar Karen Jónsdóttir bæjarfulltrúi Frjálslyndra og óháðra gengur nú til liðs við Sjálfstæðisflokkinn á miðju kjörtímabili. Við sem unnum ötullega að framboði listans teljum að hún hafi með þessu brugðist trausti bæði kjósenda, og okkar sem öfluðum henni brautargengis.
VIÐ HÖRMUM að Sjálfstæðisflokkurinn skuli með því að taka þátt í þessum gjörningi hafa valið að eyðileggja meirihlutasamstarfið á Akranesi. Margt gott hefur áunnist á undanförnum tveim árum og við sem stóðum að lista Frjálslyndra og óháðra erum sátt við að hafa tekist að standa við nær allt sem við hétum kjósendum vorið 2006.
VIÐ SKORUM á Karen Jónsdóttur að hún segi þegar af sér sem bæjarfulltrúi. Þau 9,3 prósent kjósenda á Akranesi sem greiddu lista Frjálslyndra og óháðra atkvæði sitt í síðustu bæjarstjórnarkosningum voru ekki að veita Sjálfstæðisflokknum umboð sitt.
Rannveig Bjarnadóttir 3. sæti
Sæmundur Tryggvi Halldórsson 4. sæti
Kristinn Jens Kristinsson 5. sæti
Guðbjörg Ásgeirdóttir 6. sæti
Sigurjón Runólfsson 7. sæti
Elías Ólafsson 8. sæti
Barbara Davis 10. sæti
Stefán Þór Þórisson 13. sæti
Gunnar Freyr Hafsteinsson 14. sæti
Pétur Gissurarson 15. sæti
Einar Jónsson 16. sæti
Steinar Hagalínsson 17. sæti
Ragnheiður Ólafsdóttir 18. sæti
--------------------
Ég þakka mínum góðu félögum fyrir traustið.
föstudagur, 16. maí 2008
Óskorað traust á svörtum degi
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
8 ummæli:
Það ætti að vera þannig að kosnir flokksmælundur í ábyrgðarfulla bæjarstarfi segji af sér ef þeir geta ekki fylgt flokksmálum síns flokks, í staðinn fyrir að hlaupa á milli flokka þegar að þeir eru komnir inn í valdastöðu. Aðilar sem gera slíkt, þegar að þeir eru á kaupi sem bæjarþegnar borga, brjóta traust kjósenda. Hvers eiga bæjarbúar sem borga fyrir þetta að gjalda?
Þ.e.a.s. þar sem að kosinn flokksfylgjandi
Hún á ekkert að segja af sér. Það á að sparka henni út.
ekki meira af utlendingum.karl a skaganum.
Ég mæti og ég mun mótmæla þessu á þessum fundi.
AFHVERJU ER ATKVÆÐI MITT AÐ FARA TIL SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS!!!!! HVAÐ ER Í GANGI!!!
Sjálfstæðisflokkurinn laðar spillingarfólk að sér, eins og hér eru dæmi um.
Spillingarfólkið sækir í flokkinn, eins og úldið kjöt laðar að sér flugur.
Bíð bara eftir að þetta atferli fari að gera sér vart annars staðar á landshlutunum. Endurspeglun siguls spillingar sjálfstæðisflokksins er að virkjast og drullan speglast vel í góða veðrinu.
Ég er alveg sammála þér í þessari afstöðu þinni, Magnús, og ég hvet þig til að standa fasta á þínu. Það er langur vegur frá því að slík afstaða sé merki um rasista, en það segir allt sem segja þarf um þá sem halda slíku fram.
Karen ætti náttúrulega að skammast sín fyrir að vera að vasast í pólitík yfirleitt, og fyrir að gefa sig út fyrir að vera í forsvari fyrir einn flokk en vera svo í raun í allt öðrum, og svo þegar á móti blæs þá er hún komin í þann þriðja. Reyndar er hún ekkert annað en pólitískur tækifærissinni sem ætlar bara að hlaupa á milli flokka í von um að komast áfram á sem stystum tíma. Svona siðlaus manneskja á hvergi traust.
það er líka ömurlegt að sjá aðra pólitíkusa ætla að notfæra sér bágindi þessa aumingjans flóttamanna til að næla sér í atkvæði. Ég þykist vita að þessir sömu pólitíkusar verða á bak og burt þegar vandamálin byrja svo fyrir alvöru með þetta fólk.
Eru menn búnir að gleyma af hverju allt logar í endalausum styrjöldum í austurlöndum. Er það ekki af því að ólíkir menningarheimar geta ekki náð saman? Og svo á að fara að reyna að blanda saman Austurlenskri menningu við Íslenska. þetta er svona eins og að fá sér Viský saman við Appelsín, eða kokteilsósu út á skyr!!!
Magnús,
Þið verðið fyrir næstu kosningar að láta alla í top 10 sætum prófkjöra hjá Frjálslyndum kvitta upp á skuldbindingu um að þeir skili inn umboði sýnu ef þeir segja sig úr flokknum. Þetta er ólíðandi framkoma eins og þessu er háttað í dag þar sem kjósendur vita ekki í raun hvar atkvæðið endar!!!
Skrifa ummæli