Ég fór á bæjarstjórnarfundinn á Akranesi nú síðdegis þar sem bæjarfulltrúar samþykktu einróma að hefja það ferli sem þeir vonast til að endi með því að Akranes geti státað af 60 flóttamönnum frá Írak árið 2010.
Þessum fundi var ruslað af á met tíma. Eins og sjá má á fundargerð þá tók hann tíu mínútur.
Kviss, bæng og búið.
Þarna var valdaráninu huslað af með því að kjósa í nefndir og ráð. Eins og mig grunaði þá hirða fulltrúar úr Sjálfstæðisflokki allar nefndir og ráð. Nefndarsæti sem áður tilheyrðu þeim lista sem Karen Jónsdóttir var í fyrsta sæti fyrir en sveik svo eftirminnilega, falla í hlut Sjálfstæðisflokksins. Eina manneskjan sem fylgir Karen er Helga Jónsdóttir systir hennar. Það er allt og sumt.
Skil það vel. Ekkert heiðvirt fólk vill koma nálægt þessu.
Þegar tillagan um móttöku flóttafólksins var borin upp tók enginn bæjarfulltúi til máls. Ekki einn.
Þetta mál hefur þar með EKKERT verið rætt í bæjarstjórn. Bæjarfulltrúarnir hafa ekki kjark til að ræða málið fyrir opnum tjöldum. Það segir meira en mörg orð um það hve heitt og umdeilt málið er.
Þetta eru bæjarfulltrúarnir sem klufu Akranesbæ í fylkingar í dag:
Guðmundur Páll Jónsson (B)
Hrönn Ríkharðsdóttir (S)
Karen Jónsdóttir (D)
Gunnar Sigurðsson (D)
Rún Halldórsdóttir (Vg)
Sveinn Kristinsson (S)
Þórður Þ. Þórðarson (D)
Ólafur H. Haraldsson (D)
Guðrún Elsa Gunnarsdóttir (D)
mánudagur, 19. maí 2008
Stysti bæjarstjórnarfundur sögunnar
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
11 ummæli:
Hvað er Helga Jónsdóttir,sem mér skilst að nú sé komin til íhaldsins búin að vera í mörgum flokkum sl 2 ár???
Getur það verið að flokkarnir séu orðnir 4 ????.
Já, ég held það. Hún ætlaði að leiða lista Íslandshreyfingarinnar í Norðvesturkjördæmi og mætti meira að segja í beina útsendingu í sjónvarpi og tilkynnti um það, - en þau losuðu sig snarlega við hana þegar þau kynntust henni nánar. Það er gott að vita af henni í Sjálfstæðisflokknum á Akranesi. Fjórði flokkurinn á tveim árum. Bara Vinstri Grænir og Samfylking eftir.
Til nánari útlistunar þá er átt við lista Íslandshreyfingarinnar fyrir síðustu alþingiskosningar sem voru í fyrra.
Mér finnst mjög alvarlegt að bæjarstjórnin ræddi þetta mál ekkert.
Er þetta virkilega fólkið sem á að taka ákvarðanir fyrir okkur Skagamenn.
Ég veit ekki hvað hægt er að segja.........
Skagamaður
ég endurtek spurninguna, þar sem ég neita að trúa að þú leyfir bara comment sem eru fylgjandi þínum hugsunarhætti:
í silfrinu á sunnudaginn sagðirðu að bæjarfulltrúarnir væru alls ekki sammála um þetta, nú bendirðu á að þetta var samþykkt einróma.
what up?
AF HVERJU ER ÞÍN EKKI GETIÐ Í FUNDARGERÐINNI, AÐ ÞÚ HAFIR MÆTT?
sbs: Skýringin á því að atkvæðagreiðslan fer svona, sérstaklega hjá Sjálfstæðismönnum er að það er búið að beygja fulltrúa undir flokksagann þegar kemur að fundinum. Það átti við í gær í að minnsta kosti einu tilfelli. Af tillitsemi við bæjarfulltrúann þá nefni ég ekki nafn hans því ég hef nokkuð mikið álit á viðkomandi þrátt fyrir allt. Svo var þarna einn varamaður frá Sjálfstæðisflokk, þannig að einn lét ekki sjá sig. Hvort það var vegna andstöðu við málið veit ég ekki. Efast þó um það.
Nafnlaus: Var á fundarpöllum, ekki á fundinum sem bæjarfulltrúi.
Reyndu að vera svolítið hress.
Allveg er ég viss um að umræddur bæjarfulltrúi heitir Þórður Þórðarson.
Er ekki rétt að hafa staðreyndir á hreinu, þú fullyrðir í sífellu að þetta séu flóttamenn frá Írak, eru þeir ekki frá Palestínu?
Síðan talara ávallt um 60 flóttamenn en skv. fundargerðinni eru þeir 30.
Það gæti þó ekki verið að þú farir viljandi með þessar tvær staðreyndir til að auka hræðsluáróðurinn?
Skrifa ummæli