fimmtudagur, 8. maí 2008

Vorkvöld í Reykjavík

Akrafjall og Skarðsheiðin eins og fjólubláir draumar.

Ekkert er fegurra en vorkvöld í Reykjavík.

Tra - la - la - la



Syngjum við með!???

----------------

Vorkvöld í Reykjavík
Evert Taube / Sigurður Þórarinsson

[G] Svífur yfir Esjunni sólroðið [D] ský,
sindra vestur [Am] gluggar sem [D7] brenni í [G] húsunum.
[G] Viðmjúk strýkur vangana vorgolan [D] hlý,
vaknar ástar- [Am] -þráin í [D7] brjóstum á [G] ný.
[G] Kysst á miðju stræti er [D7] kona ung og heit,
[Em] keyra rúntinn piltar sem [B7] eru' í stelpuleit.
[C] Akrafjall og [C#o] Skarðsheiði [G] eins og fjólubláir [E7] draumar
[Am] Ekkert er [D7] fegurra' en [G] vorkvöld í Reykjavík.

[G] Tjörnin liggur kyrrsæl í kvöldsólar- [D] -glóð
kríurnar þótt [Am] nöldri og [D7] bjástri í [G] hólmanum.
[G] Hrjúfa sig á bekkjunum halir og [D] fljóð
hlustar skáldið [Am] Jónas á [D7] þrastanna [G] ljóð.
[G] Dulin bjarkarlimi á [D7] dúnsins mjúku sæng
[Em] dottar andamóðir með [B7] höfuð undir væng.
[C] Akrafjall og [C#o] Skarðsheiði [G] eins og fjólubláir [E7] draumar
[Am] Ekkert er [D7] fegurra' en [G] vorkvöld í Reykjavík.

[G] Hljótt er kingum Ingólf og tæmt þar hvert [D] tár,
tryggir hvíla [Am] rónar hjá [D7] galtómum [G] bokkunum.
[G] Svefninn er þeim hóglega siginn á [D] brár.
Sunnanblær fer [Am] mildur um [D7] vanga og [G] hár.
[G] Ilmur er úr grasi og [D7] angan moldu frá,
[Em] aftansólin purpura [B7] roðar vestursjá.
[C] Akrafjall og [C#o] Skarðsheiði [G] eins og fjólubláir [E7] draumar
[Am] Ekkert er [D7] fegurra' en [G] vorkvöld í Reykjavík.

Engin ummæli: