Í morgun mátti lesa fréttir um að Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra er enn eina ferðina í útrás. Tilgangurinn er að leita leiða til að fara í samstarf um orkumál og sníkja stuðning við umsókn Íslands um sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.
Varla er ofmælt að Össur, Samfylkingin og ríkisstjórnin mættu vera vandvirkari við val á þeim löndum sem heimsótt eru. Að ekki sé nú minnst á REI í vali þess á viðskiptafélögum. Eða kannski sannast hér hið fornkveðna?;
Af vinum yðar skulum vér þekkja yður.
Nú er Össur í Yemen. Svo á að fara til Djibouti og síðan til Eþíópíu.
Ekki þarf nú að leggjast í miklar pælingar til að sjá að öll þessi lönd búa við frumstæða stjórnsýslu, og enn verri stöðu þegar litið er til mannréttinda.
Ég aflaði mér smá upplýsinga áðan með því að slá inn leitarorðum í Google. Það sem ég fann strax er ekki fagurt. Birti ég því hlekki á slóðir sem greina frá mannréttindamálum í þessum löndum. Smellið á til að skoða. Þetta er á ensku. Þarna kennir ýmissa grasa. Fangelsanir án dóms og laga, morð, pyntingar, nauðganir og fleira og fleira:
Staða mannréttinda í Yemen. (Wikipedia)
Staða mannréttinda í Djibouti. (Skýrsla bandarískra stjórnvalda)
Staða mannréttinda í Eþíópíu. (Wikipedia)
Nú er það svo að Össur hefur oft farið mikinn í opinberri umræðu sem málsvari mannréttinda. Sömuleiðis flokkur hans Samfylkingin. Við getum rifjað upp þennan ræðubút frá því í janúar 2006 þar sem rætt var um meint fangaflug um Ísland:
"Hvað kemur fram í þeirri skýrslu sem verið var að ræða í Evrópuráðinu í fyrradag? Þar kemur fram að menn hafa verið teknir á götu um hábjartan dag og þeim rænt í nágrannalöndum okkar og fluttir með ólögmætum hætti á milli landa í einhverjum leppfyrirtækjum CIA, til landa þar sem vitað er að pyndingum er beitt við yfirheyrslur. Svo koma menn og segja að þetta sé allt í fínu lagi, þetta sé bara svona óstaðfestur sögusveimur og ekki sé búið að sanna neitt. Þarf að koma með höfuðið á fati til þess að menn virkilega trúi? Er það svoleiðis?
Hvað hefur breyst frá því að hæstv. forsætisráðherra ræddi þetta við okkur fyrr í vetur? Hæstv. forsætisráðherra sagði að málið væri í umræðu hjá Evrópuráðinu og við skyldum bíða eftir rannsókn þess og sjá þá til hvernig málið væri. Nú kemur fram skýrsla í Evrópuráðinu þar sem því er slegið alveg föstu að ólöglegt fangaflug átti sér stað, þar sem sagt er að ekki sé hægt að færa sönnur á að það séu leynileg fangelsi til en það leiki grunur á því, þar sem rakin eru fjölmörg dæmi um að mönnum er rænt úti á götu í landi eins og Svíþjóð og fluttir um hálfan heiminn til að berja þá og hálfdrekkja. Þetta kemur fram í skýrslu Evrópuráðsins sem hefur verið í fylkingarbrjósti í baráttu fyrir mannréttindum.."
Nú hlýtur maður spyrja; hvað hefur breyst hjá Samfylkingunni þannig að hún er hætt að tala um fangaflug og mannréttindi, en í staðinn farin að senda ráðherra sína fljúgandi á vit nokkura verstu harðstjóra sem nú ráða ríkjum í heiminum til að eiga við þá viðskipti og betla af þeim stuðning við íslensku þjóðina?
Og þetta án þess að spyrja okkur þjóðina, eða ræða við fulltrúa okkar í utanríkismálanefnd Alþingis. Minnir óneitanlega á það sem gerðist fyrir innrásina í Írak.
Er hægt að fá svar við þessu?
(Fréttamyndband um mannréttindamál í Eþíópíu):
mánudagur, 7. apríl 2008
Víða flækjast frómir (Össur & Co)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Hvað er líklegra en hrein orka til að bæta ástand þessara landa mannréttindalega, stjórnmálalega, efnahagslega, menntunarlega og á öllum öðrum sviðum? Það er gömul saga og ný að menntun er lykilatriðið og þarna erum við að fara inn í þessi lönd og nýta þann mannauð sem við höfum byggt upp í gegnum jarðhitaskóla sameinuðu þjóðanna. Stór hluti þeirra sem leiða verkefnin í þessum löndum fyrir hönd heimamanna eru fyrrverandi nemendur úr Jarðhitaskóla sameinuðu þjóðanna á Íslandi.
Kaupi nú ekki alveg að "hrein orka" (hvenær er orka hrein?) verði til þess að bæta ástandið í þessum löndum. Ekki hefur olían og gasið gert mikið fyrir menningarstigið, mannréttindin og lýðræðið í Sádi Arabíu eða Kúveit eða Írak svo dæmi séu nefnd. Vandamálin eru flóknari en svo að jarðhiti, Össur Skarphéðinsson eða Orkuveita Reykjavíkur leysi þau - jafnvel í samstarfi við glæpahundana sem ráða ríkjum í þessum löndum sem Össur er að þvælast til.
Skrifa ummæli