mánudagur, 28. apríl 2008

Spurning dagsins


Hér fyrir ofan er önnur hlið skiltisins sem Sturla Jónsson vörubílstjóri rölti með frá Húsi Verslunarinnar niður á Austurvöll síðdegis í gær.

Þangað kominn stakk hann því niður í blómabeð fyrir framan Alþingishúsið.

Ég ákvað að stunda samræðustjórnmál á þessum yndislega vordegi. Fór og hitti Sturlu og félaga við styttuna af Jóni Sigurðssyni á Austurvelli. Við röbbuðum saman.

Það var býsna áhugavert samtal. Í ljós kom að þeir eru öðrum þræði mjög vonsviknir með að Samfylkingin hefur ekki staðist væntingar eftir að hún fór í ríkisstjórn. Á síðasta kjörtímabili hömruðu þingmenn flokksins á því að lækka bæri álögur á eldsneyti og gera þyrfti verulegar umbætur í flutningageiranum. Fremstur í flokki fór Kristján Möller sem nú er samgönguráðherra. Bílstjórarnir sýndu mér nokkurra missera gamla fréttagrein máli sínu til stuðnings þar sem Möllerinn hafði farið mikinn í fyrirspurnum til þáverandi ráðherra í þinginu.

Mér varð allt í einu ljóst að það er í raun Samfylkingin sem hefur skapað jarðveginn fyrir mótmælin nú. Það hefur hún gert með því að vekja væntingar þegar hún var í stjórnarandstöðu á síðasta kjörtímabili. Síðan þegar ekki er staðið við neitt þegar komið er í ríkisstjórn, þá finnst fólki að það hafi verið svikið.

"Ég hef alltaf verið harður Samfylkingarmaður, en þann flokk kýs ég aldrei aftur", sagði einn vörubílstjóri af Suðurnesjum við mig. Vonsvikinn vegna þess að hann hefur ekki fengið nein svör frá gamla flokknum sínum - bara barsmíðar.

Þegar ég gekk af Austurvelli fór ég að velta þessu fyrir mér:

Styður Samfylkingarfólk að flokkur þeirra er nú farinn að gera út vopnað lögreglulið til að berja og handtaka alþýðufólk hér á landi, fyrir þær sakir einar að það er í kjarabaráttu?

17 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það væri svolítið gaman að heyra í þér hljóðið ef þú værir nú í ríkisstjórn.

Hvort að þú hefðir komið, sagt lögreglumönnunum að leyfa þessum þursum að kasta í þá steinum og kýla.

Væri líka gaman að sjá hve margir lögreglumenn væru ennþá í lögreglunni eftir kjörtímabilið þitt.

Nafnlaus sagði...

Er Samfylkingin farin að gera út vopnað lögreglulið?
Hélt að það væri ríkið sem gerði það með samþykkt Alþingis

Magnús Þór sagði...

Það myndi ekki fækka í lögreglunni ef ég væri í ríkisstjórn.

Ég tel að lögreglumenn sinni mjög mikilvægum störfum og það sem gerðist við Rauðavatn var ekki að undirlagi almennra lögreglumanna heldur komu skipanir frá æðstu stöðum.

Fengi ég að ráða þá yrðu starfsskilyrði lögreglumanna bætt og laun þeirra hækkuð. Þeir eiga miklu betra skilið en þeir fá í dag.

Magnús Þór sagði...

Samfylkingin er í ríkisstjórn og ber þannig ábyrgð á gerðum lögreglunnar sem er undir yfirstjórn eins af ráðherrum ríkisstjórnarinnar.

Það þarf enginn að segja mér að Ingibjörg Sólrún hafi ekki vitað af því fyrirfram að það átti að láta sverfa til stáls við Rauðavatn og að hún hafi gefið samþykki til þess.

Rauðavatnsbardaginn og aðdragandi hans ætti að vera tilefni til rannsóknar á vegum Alþingis.

Fyrst ástæða er til að setja tvo gamla hæstaréttardómara í að rannsaka nokkura ára gamlan hörmungaratburð í Afganistan, þá ætti að vera full ástæða til að skoða þetta mál ofan í kjölinn.

Nafnlaus sagði...

Styður Frjálslyndi flokkurinn lögbrot?

Magnús Þór sagði...

Að sjálfsögðu ekki. En það hefði verið hægt að koma í veg fyrir að vörubílstjórar hæfu aðgerðir ítrekað, hreinlega með því að sýna þeim þá virðingu að tala við þá og taka tillit til þeirra sjónarmiða.

Hef kynnt mér þau og fæ ekki séð að ekki hefði verið hægt að koma til móts við þá með samningum.

Nafnlaus sagði...

Þeir hefðu nú líka getað farið í löglegar mótmælaaðgerðir. Sé ekki betur en það sé að virka fínt hjá hjúkrunarfræðingum.

Annars væri athyglisvert að þú kæmir með færslu um þeirra sjónarmið og hvernig er hægt að koma til móts við þeirra kröfur.

Magnús Þór sagði...

Af hverju svarar enginn spurningunni sem ég lagði fram í lok pistilsins?

Of erfið?

Nafnlaus sagði...

"Styður Samfylkingarfólk að flokkur þeirra er nú farinn að gera út vopnað lögreglulið til að berja og handtaka alþýðufólk hér á landi, fyrir þær sakir einar að það er í kjarabaráttu?"

Ég er nú hvorki í samfylkingunni né öðrum stjórnmálaflokki og get því vart talist talsmaður eins né neins nema minn eiginn.

En í spurningu þinni felst fullyrðing og með því að svara henni væri verið að taka undir að sú fullyrðing sé rétt.

Því þarf að byrja á því að greina fyrirspurn þína niður.

1. Er Samfylkingin að gera út vopnaða lögreglu
2. Barði lögreglan einhvern
3. Var eingöngu um kjarabaráttu að ræða

Það er ekki fyrr en svör við þessum spurningum eru komin, sem hægt er að svara þinni fullyrðingu/spurningu.

Nafnlaus sagði...

Erfið? Frekar kjánaleg.

Hvaða fólk hefur lögreglan barið t.d.?

Þú lætur eins og þetta fólk hafi verið með friðardúfur á lofti og sungið kumbæja.

Lög voru brotin, ráðist var á lögreglumenn. Handtökur voru augljósar.

Það sem þú ert að reyna að gera er að præma hugmyndir í huga auðtrúa fólks með þá von að veiða þér nokkur atkvæði.

Heimskur maður mun lesa þetta og hugsa "Það er rétt, Ingibjörg Sólrún er að láta berja fólk sem er bara að berjast fyrir kjarabótum."

Kannski er markhópur frjálslyndaflokksins, fólk undir meðalgreind. Hvað veit ég.

Þó að ég kjósi ekki samfylkinguna, þá vona ég innilega að þeirra kjósendur séu meðfylgjandi því að fólk sem brýtur lög, eigi í hættu að vera handtekið.

Nafnlaus sagði...

nafnlaus, varðandi hjúkrunarfræðingana... það er einfaldlega af því að þeir hafa mun meiri áhrif með því að fara í verkfall þar sem það er meira í húfi!

Magnús Þór sagði...

Eins og ég hef sagt áður og nokkuð oft. Samfylkingin ber ábyrgð á lögreglunni sem annar af flokkunum í ríkisstjórn. Það má því segja að hún geri út vopnaðar lögreglusveitir sem nota til dæmis úðabrúsa og kylfur. Ég hef grun um að formaður og jafnvel ráðherrar Samfylkingar voru upplýst um að það ætti að láta til skarar skríða gegn bílstjórunum. Til að fá úr þessu skorið sem og öðru, tel ég mikilvægt að þingið láti rannsaka hvað gerðist þarna.

Og kylfunum var beitt við Rauðavatn segja vitni. Kvikmyndir af vettvangi sem eru meðal annars á youtube sýna að þarna var ekki verið að beita neinum vettlingatökum.

Og þetta er kjarabarátta hjá bílstjórunum. Það má setja spurningamerki við lögmæti aðferðanna en þetta er kjarabarátta engu að síður.

Nafnlaus sagði...

Mikið ert þú nú fyndinn Magnús :) Það gæti vel farið svo að maður kysi Fáránlega Flokkinn næst þó ekki væri nema fyrir kómík.

Kær kveðja,
Jónatan læknir

Nafnlaus sagði...

Þetta svar þitt er farið að fjarlægjast hina upprunalegu fullyrðingu nokkuð mikið.

"Ég hef grun um", sem sagt gerviþekking. Af hverju ætti lögreglan að upplýsa stjórnmálamenn að þeir ætli að stöðva ólögleg mótmæli - og ef svo væri er eitthvað að því að lögregla stöðvi mótmæli? Er það ekki hlutverk hennar að stöðva lögbrot? En eru ekki tveir flokkar í ríkisstjórn, hvað þá með þátt Sjálfstæðisflokksins?

"Vitni segja að kylfum hafi verið beitt - engin vettlingatök á myndböndum á youtube" Ég hef ekki séð það á neinu myndbandanna að kylfum hafi verið beitt og þó er nóg af myndefninu að taka. Vitni segja ekki alltaf allann sannleikann og það verður að taka öllu slíku með fyrirvara. Það eru aldrei vettlingatök þegar menn eru handteknir.

En gott þú viðurkennir að þeir voru ekki eingöngu í "kjarabaráttu" heldur einnig að brjóta lög.

Magnús Þór sagði...

Spurt er um þátt Sjálfstæðisflokksins. Ég minnist ekki á hann einfaldlega vegna þess að það sem við sáum við Rauðavatn er í anda þess sem sá flokkur hefur staðið fyrir.

Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur auðmanna og fjármagnseigenda, hefur alltaf verið og mun alltaf verða. Hann hefur áður barið á fólki samanber hér við Austurvöll 30. mars 1949.

En að Samfylkingin skuli samþykkja þessi vinnubrögð gegn vinnandi fólki er svo fjarri því sem ég hefði getað ímyndað mér að sá flokkur stæði fyrir - að ég hef séð mig tilneyddan að benda á það og spyrja spurninga.

Ég trúi ekki öðru en að óbreytt Samfylkingarfólk sé mjög hugsi yfir þessu öllu þó það tali ekki upphátt um það að svo stöddu.

Nafnlaus sagði...

Bílstjórarnir hafa staðið sig afleitlega í sínum mótmælum. Allt þjóðfélagið er að ræða "aðgerðir" þeirra en fáir eru að ræða "málefnin".
Þeir kvarta undan því að á þá hafi ekki verið hlustað. Það hefur svo sannarlega verið hlustað á þá. Þeir hafa fengið fund með samgönguráðherra, fjármálaráðherra, lögreglunni, þeir hafa verið í mörgum drottningarviðtölum í öllum fjölmiðlum landsins, Samtök atvinnulífsins hafa verið að vinna í að stilla af vinnutímatilskipunina ásamt samgönguráðuneytinu o.s.frv.
Það er hins vegar allt annað hvort viðmælendurnir eru sammála öllu því sem þeir segja. Það er ekki það sama að hlusta og að vera sammála.
Menn hafa einfaldlega komist að því eftir að þessi mótmæli hófust að álögur á eldsneyti á Íslandi eru lægri en í löndunum í kringum okkur. Almennt í heiminum er verið að vinna í því að draga úr eftirspurn eftir eldsneyti en ekki auka hana. Því væri það fráleitt að ætla að lækka álögur á olíu og bensín eins og sakir standa. Þvert á móti eru uppi kröfur um verulega dýrar vegaframkvæmdir um allt land; tvöföldun Suðurlandsvegar, tvöföldun Vesturlandsvegar, tvöföldun Hvalfjarðarganga, tvöföldun Reykjanesbrautar, Sundabraut, Vaðlaheiðargöng, göng á Austfjörðum auk lagfæringa á vegakerfinu öll sem hefur látið verulega á sjá eftir að umferð stórra flutningabíla hefur aukist undanfarin ár. Allt eru þetta milljarðapóstar.

Það hefur ekki skort svör. Þeir hafa bara ekki fengið þau svör sem þeir sjálfir kusu og því halda þeir því fram að á þá hafi ekki verið hlustað. Slíkt gerist oft.

Hvað orrustuna við Rauðavatn áhrærir þá fór lögreglan einfaldlega þangað til að taka bílana af liðinu. Bíla sem þeir höfðu notað við ólöglegt athæfi trekk í trekk vikum saman. Þó gaf hún bílstjórunum tækifæri á að fjarlægja þá sjálfir sem þeir gerðu ekki. Þegar lögreglan hreinsaði vettvanginn í því skyni að fjarlægja bílana þá varð allt vitlaust. Þó er athyglisvert að slys á fólki í þessum djöfulgangi virðast hafa verið alveg í lágmarki. Það getur aðeins verið lögreglunni að þakka sem með aðferðum sínum kom í veg fyrir handalögmál sem var þeirra markmiðið og þeirra starfsaðferðir miðast við.

Nafnlaus sagði...

Ég held að það sé umhugsunarvert að í þessum gríðalegu átökum skuli meiðsl á fólki vera minniháttar.
Handtaka á kolvitlausum manni er aldrei fögur sjón. Þetta gerist ítrekað um helgar í bænum og víðar en eini munurinn er sá að núna vorum við í beinni útsendingu. Mér sýnist á myndum að dæma að lögreglan hafi sýnt alveg ótrúlegt langlundargeð með þessum mönnum og reynt til þrautar allar diplómatískar leiðir sem í boði voru. Mótmælendum var á öllum stigum málsins gefin kostur á að forða sér og hlýða lögreglunni.
Mér finnst þetta bara svo einfallt að meira að segja Magnús Þór ætti að skilja þetta. Það á að fara eftir lögum og hlýða fyrirmælum lögreglu. Punktur.