Er vísifingur orðinn hættulegur í augum stjórnvalda þessa lands?
Er fólki bannað að tjá skoðanir sínar í orðum við lögreglumenn?
Á þessu myndbandi hér fyrir neðan fæ ég ekki betur séð en að minnst fimm lögreglumenn gráir fyrir járnum; - með hjálma, skildi og kylfur, - ráðist fyrirvaralaust á varnalausan mann með ofbeldi og yfirgangi.
Getum við átt von á því að fólk verði nú sótt með þessum hætti hvar sem í það næst, fyrir þær sakir einar að hafa skoðun og láta hana í ljósi?
Var þessi handtaka í boði Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar?
Ég þekki manninn sem lenti í þessu. Hann kaus Sjálfstæðisflokkinn í mörg ár.
En ekki meir.
fimmtudagur, 24. apríl 2008
Lögregla ræðst á varnalausan mann
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
12 ummæli:
Þarna er brotið gróflega á rétti borgarans til þess að gera aðsúg að lögreglunni. Þennan sama dag var brotið jafn gróflega gegn rétti fólks til þess að henda grjóti í lögregluna.
Hvar halda þessar löggur eiginlega að þær séu? Í siðmenntuðu samfélagi?
Er komið á dagskrá hjá frjálslyndaflokkinum að leggja niður lögregluna?
90% af þessum trukkabílstjórum eru og hafa verið dyggir kjósendur Sjálfstæðisflokksins.Er ekki hægt að segja að handtakan sé í boði flokksforustunnar?
Hans Haraldsson:
Er það nú orðið "að gera aðsúg að lögreglunni" þegar almennur borgari segir við lögreglumennina að það sé hans réttur sem borgara í lýðræðisríki að mótmæla?
Fyrir að segja þetta með vísifingur á lofti, stukku þeir á hann. Ekki einn - heldur margir.
Ég meina - maðurinn er ekki einu sinni bílstjóri. Bara almennur borgari sem var staddur þarna. Að vísu hefur hann samúð með málstað bílstjóranna en það réttlætir vart svona aðgerð.
Eða hvað?
sbs:
Nei, við í Frjálslynda flokknum höfum alltaf borið mikla virðingu fyrir lögreglunni og talað máli hennar. En ég verð að segja það sem mína persónulegu skoðun að það sem gerðist í gær var eitt allsherjar klúður hjá löggunni eða kannski öllu heldur forystu hennar.
Sérstaklega fyrir ímynd hennar í augum almennings. Þetta er mjög miður. Í lögreglunni er fjöldi fólks sem vinnur mjög erfið störf sem ekki eru metin að verðleikum.
Og lögreglan er ekki hafin yfir gagrýni. Vinur er sá er til vamms segir.
Nafnlaus:
Eflaust er það rétt að yfirgnæfandi hluti bílstjóranna hafi verið stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins. Þetta eru einyrkjar, sjálfstæðir menn, harðduglegir. Handtökurnar voru eflaust í boði Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Það fór vel á því að úðabrúsarnir með piparvökvanum voru rauðir - í flokkslit Samfylkingarinnar "jafnaðarmanna og verkalýðsflokksins".
Samfylkingin minnir æ meir og með hverjum deginum sem líður, á svínin í Dýrabæ eftir Orwell.
Þessi maður var ekki þáttakandi í friðsamlegum mótmælum heldur uppþoti þar sem þegar hafði verið ráðist á lögregluna. Þegar farið hefur verið yfir þá línu þá gilda aðrar leikreglur. Þú getur ekki rifið þennan atburð úr hinu stærra samhengi.
Þessi maður nálgaðist línu lögreglumannanna og hafði uppi ógnandi tilburði. Ég gef mér að honum hafi verið sagt að hafa sig til hlés en verið tekinn þegar hann gerði það ekki.
Mér skilst það af þeim sem til þekkja að þetta sé venjuleg aðferð þegar lögreglan á við æstan múg; mestu ólátabelgirnir eru teknir úr hópnum svo þeir leiði ekki hina með sér upp á næsta stig. Þú verður að muna að múgur er ekki sérlega greint eða yfirvegað fyrirbæri.
Hvað hefur þetta með Samfylkinguna að gera?
Samfylkingin er annar tveggja flokka í ríkisstjórn og ríkisstjórn ber ábyrgð á lögreglunni.
Ergo: Samfylkingin ber ábyrgð á lögreglunni.
Í gær var lögreglunni beitt á launamenn sem eru í kjarabaráttu. Hinn mikli "Jafnaðarmannaflokkur" stendur fyrir því ásamt samstarfsflokkinum í ríkisstjórn.
Ég held að slíkur flokkur - eða vinstri flokkur yfir höfuð - hafi aldrei fyrr í Íslandssögunni verið kenndur við að siga lögreglunni á alþýðuna.
Íslenskt launafólk.
Ég er ekki viss um að allir geri sér grein fyrir á hvaða grafalvarlegu brautir málin virðast ætla að þróast núna.
"Í gær var lögreglunni beitt á launamenn sem eru í kjarabaráttu"
Nei, kjarabarátta er þegar um er að ræða lögmæt verkföll launþega. Hér var um ólögmætar mótmælaaðgerðir bílstjóra að ræða. Það er grundvallarmunur þar á.
Rússneska byltingin var örugglega ólögleg.
Var hún þá ekki barátta fátækrar og kúgaðrar alþýðu fyrir bættum kjörum? Kjarabarátta?
Ef hugtakið kjarabarátta er bara gilt þegar um er að ræða "löglegar aðgerðir" þá mætti með smá gríni segja að stjórnvöldum á hverjum tíma sé í lófa lagið að búa svo um hnútana að kjarabaráttu sé útrýmt, - hreinlega með því að banna hana með lögum.
Þurfa ekki einu sinni að banna verkföll. Skilgreina hugtakið "kjarabarátta" og segja bara í lögum:
Fyrsta grein: Kjarabarátta er bönnuð.
Önnur grein: Viðurlög við brotum á lögum þessum varða handtöku og allt að 16 ára fangelsi.
Þriðja grein: Lög þessi taka þegar gildi.
Þetta er nú sá mesti útúrsnúningur sem ég hef séð.
Ætla ekki einu sinni að reyna að skilgreina hugtakið kjarabarátta fyrir þér, það hefur ekki þýðingu.
Þeir brutu lög!
Þeir sem brjóta lög mega búast við afleiðingum - eða ertu að mæla með lögbrotum? Skil ekki þinn málfutning, né samflokksmanna þinna. Ykkur virðist finnast í lagi að brjóta lög af því ykkur finnst málstaðurinn góður. Hvar liggja mörkin, hvenær má brjóta lögin og hvenær ekki?
Hef ekki séð eitt ykkar í frjálslynda flokkunum fordæma árásina á lögreglumanninn í gær. Fannst þér það í lagi - er það eitt af þeim lögbrotum sem er í lagi, allt fyrir málstaðinn.
Mikið ertu í sorglegri pólitískri atkvæðaveiði, með þessum málflutningi.
Ríksistjórn Íslands stjórnar ekki lögreglunni frá degi til dags, og það var ekki samfylkingin sem samdi lögreglulög í landinu, þau hafa verið til ansi lengi, sem betur fer.
Þú vilt kannski breyta þeim á þann veg að hver sá sem að ógnar lögreglumanni, með atyrðum og ógnandi fingurbendingum, hversu lítil eða stór sem þau eru, hefur fullan rétt á. Lendi lögreglu maður í þeim aðstæðum ber honum að víkja.
Upp úr öllu þessu stendur að "verkalýðsflokkurinn" mikli Samfylkingin, sigar lögreglu á launafólk í þessu landi.
Enda er Samfylkingin enginn alþýðuflokkur.
Lesið frábæra Staksteina í dag, laugardag.
"Flokkur elítunnar"
http://morgunbladid.blog.is/blog/morgunbladid/entry/520314/
Skrifa ummæli