Það á tafarlaust að setja á fót óháða rannsóknanefnd til að fara yfir þennan atburð og aðdraganda hans. Við verðum að draga lærdóm af þessu - þetta má ekki gerast í okkar samfélagi:
þriðjudagur, 29. apríl 2008
Hvað gerðist við Rauðavatn?
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
6 ummæli:
Ég er algerlega sammála því að það er fullt tilefni til opinberrar rannsóknar þegar óeirðalögregla er kölluð út á Íslandi.
Hvar er Jóhanna Sigurðardóttir núna með allar sínar kröfur um opinberrar rannsóknir.
Það er miklu brýnna að setja á fót forvarnarnefnd innan Frjálslynda flokksins til varnar því að barnalegir kjánar á borð við formann Landssambands ungra frjálslyndra komist til áhrifa.
Síðustu ummæli koma örugglega frá einhverjum flokksbundnum í Samfylkingunni. Maður er farinn að kannast við retóríkina og tilsvörin. Þetta lið er í standandi vandræðum vegna getuleysis og vanhæfis eigin flokks til að takast á við landsmálin og reyna því iðulega að tala um eitthvað annað þegar komið er að einhverju sem máli skiptir.
Guð gefi að Samfylkingunni verði sparkað út úr þessari ríkissjórn sem allra allra fyrst.
Tek undir það Magnús
Kv.
Eins og þér var sparkað af þingi.....
Ég upplifi það nú ekki þannig að hafa verið sparkað af þingi.
Ég var í framboði í Reykjavík Norður þar sem flokkurinn minn hefur aldrei haft þingmann áður. Fór þangað úr Suðurkjördæmi til að reyna að vinna nýtt land fyrir flokkinn minn.
Ég fékk 2.216 atkvæði eða 6,3 prósent. Bætti atkvæðahlutfall Frjáslynda flokksins í Reykjavík Norður um 0,8% frá 2003 í þessu kjördæmi.
Niðurstöðurnar dugðu ekki á þing en hefðu allt eins getað gert það. Ég var inni alla nóttina.
Það gengur betur næst.
Skrifa ummæli